Document Actions

Meðlag í Svíþjóð

Ef barn býr eingöngu hjá öðru foreldri, er hinu skylt að greiða með því meðlag. Nánari upplýsingar um þær reglur sem í gildi eru.

Foreldrum ber skylda til að framfleyta barni sínu þar til það verður 18 ára. Ef barnið er enn í skóla ber þeim skylda til þess að framfleyta barninu þar til það verður 21 árs.

Ef barnið býr til skiptis og jafnmikið hjá báðum foreldrum (deilt forræði) þarf ekki að greiða meðlag með barninu. Framfærsluskyldunni er sinnt með því að barnið býr jafn mikið hjá báðum foreldrum.

Ef barn býr aðeins hjá öðru foreldranna er hinu foreldrinu skylt að greiða meðlag. Foreldrar geta samið um upphæð meðlagsins.

Ef foreldrarnir komast ekki að samkomulagi geta þeir beðið um úrskurð dómstóla. Ef meðlagsgreiðslur berast ekki á barnið rétt á framfærslustyrk (underhållsstöd).

Það er styrkur ríkisins til barna foreldra sem búa ekki saman. Til þess að fá framfærslustyrk þarf barnið og foreldrið sem það býr hjá að vera búsett í Svíþjóð.

Ef þú býrð erlendis eða færð tekjur frá útlöndum og barnið býr ekki hjá þér

Ef þú býrð erlendis eða hefur tekjur frá útlöndum, getur Tryggingastofnun Försäkringskassan farið fram á að þú greiðir meðlagið til Tryggingastofnunar í stað þess að senda greiðsluna til hins foreldrisins.

Í slíkum tilvikum getur Tryggingastofnun (Försäkringskassan) einnig séð um greiðslu þess hluta meðlagsins sem er umfram 1.273 SEK á mánuði. Það þýðir að þú greiðir allt meðlagið til Tryggingastofnunar (Försäkringskassan).

Ef þú átt í greiðsluerfiðleikum

Eigir þú í erfiðleikum með að greiða umsamda upphæð geturðu sótt um greiðslufrest. Í vissum tilvikum eru skuldir afskrifaðar. Hringið í þjónustuver Tryggingastofnunar eða sækið umsóknareyðublöð á vefsíðunni Försäkringskassan.

Tengt efni
  • Landamæraþjónustan (Organisation)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.

  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Organisation)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Öresund Direkt (Organisation)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.