Framhaldsskólar í Svíþjóð
Á þessari vefsíðu eru upplýsingar fyrir þá sem eiga börn í framhaldsskóla, eða ætla í framhaldsskóla og fyrir þá sem huga á framhaldsskólanám í Svíþjóð.
Framhaldsskólanám
Framhaldsskólanám er frjálst og ókeypis fyrir 16 – 20 ára, sem geta valið að hefja framhaldsskólanám að loknum grunnskóla.
Nær öll ungmenni fara í framhaldsskóla að loknum grunnskóla. Framhaldsskólanám samanstendur af almennri námskrá, sérstakri námskrá og undirstöðunámi fyrir þá sem vantar einingar í einstökum fögum.
Foreldrar og nemendur geta valið milli skóla. Skólarnir eru ýmist reknir af sveitarfélögum eða einkareknir. Erfiðara getur reynst að komast inn í suma einkaskólana, og getur það tekið nokkur ár. Á heimasíðu Skolverket Utbildningsinfo.se eru nánari upplýsingar um þá skóla sem barnið getur sótt um.
Framhaldsskólanám er þrjú ár með ólíkar áherslur. Framhaldsskólar eru reknir bæði af sveitarfélögum og einkaaðilum. Sumar námsleiðir eru eingöngu í boði á fáum stöðum í landinu. Nánari upplýsingar eru á vefsíðu Skolverket.
Norræni framhaldsskólasamningurinnfelur meðal annars í sér, að börn fá tækifæri til að stunda nám í framhaldsskóla í öðru norrænu ríki við svipaðar aðstæður og í heimalandinu, sér og fjölskyldu sinni að kostnaðarlausu.
Sérskólar eru fyrir börn með sérþarfir. Á heimasíðu Skolverket eru nánari upplýsingar um þessar skólategundir.
Börn frá öðru norrænu ríki sem vilja stunda nám í eitt ár í framhaldsskóla í Svíþjóð þurfa ekki að skrá sig folkbokföra inn í landið.
Lýðháskólar
Einnig er unnt er að stunda framhaldsskólanám í lýðháskóla. Þeir eru ólíkir hefðbundnum skólum og bjóða upp á ólíkar leiðir. Nánari upplýsingar um hvaða skólar það eru á: Folkhögskolornas hemsida
Tungumálakunnátta
Þegar nemandi frá öðru norrænu ríki hefur nám í sænskum skóla er kunnátta nemandans í sænsku metin af skólanum til þess að ganga úr skugga um að nemandinn hafi nægilega mikla tungumálakunnáttu til þess að nýta sér kennsluna.
Ef nemandinn hefur ekki nægilega þekkingu er honum boðin kennsla í sænsku sem öðru tungumáli.
Gerð er krafa um að nemendur sem stunda sænskan framhaldsskóla skilji nægilega mikla sænsku til að geta nýtt sér kennsluna ásamt því að uppfylla almennar aðgangskröfur um þekkingu í stærðfræði og ensku.
Móðurmálskennsla
Nemandi sem er á forræði einstaklings með annað móðurmál en sænsku á rétt á móðurmálskennslu á viðkomandi tungumáli, svo fremi það sé talað heima og nemandinn hafi grunnkunnáttu í því. Hafi forráðmaður minnihlutatungumál sem móðurmál, skal nemandanum boðin kennsla í tungumálinu jafnvel þó það sé ekki talað heima. Sænsk minnihlutatungumál eru finnska, meänkieli (tornedalsfinnska), samíska (allar málýskur), romani chib og jiddíska. Á vefsíðunni minoriet.se sem Samaþingið gerði fyrir sænska ríkið, eru upplýsingar um sænska minnihlutahópa og -tungumál.
Erlend prófskírteini
Á framhaldsskólastigi er fyrri menntun og tungumálakunnátta nemandans borin saman við sambærilega menntun sem í boði er á sama aldursstigi í sænska skólanum. Tvær leiðir eru við mat á erlendum prófskírteinum. Nemandinn er settur í próf til að kanna þekkingu hans miðað við sænskt nám. Eða skólastjóri getur samþykkt prófskírteini nemandans, sé sýnt fram á það í prófskírteininu að kunnátta nemandans sé nægileg til að unnt sé að samþykkja hana. Skólastjóri getur ekki gefið aðra einkunn en „samþykkt". Nánari upplýsingar í 7. kafla 16 § í reglum um framhaldsskóla.
Námstyrkir
Þeir sem flytja til Svíþjóðar og fá ótímabundið dvalarleyfi eiga almennt rétt á námstyrkjum. Nánari upplýsinar á vefsíðunni Centrala studiestödsnämndens hemsida um hver skilyrðin eru. CSN veitir yfirleitt einungis rétt til sænskra námstyrkja hafi einstaklingur flutt til Svíþjóðar af öðrum ástæðum en til að stunda nám. Gestanemendur verða að fjármagna nám sitt sjálfir. Nánari upplýsinar og eyðublöð eru á vefsíðuCSN:s hemsida.
Háskólafærni
Nánari upplýsinar um kröfur sem gerðar eru til þeirra sem vilja stunda háskólanám eru á vefsíðunni um högre utbildning.
