Húsnæði í Svíþjóð
Að neðan eru upplýsingar um hvernig hægt er að finna húsnæði og hvers vegna ráðlegt er að selja húsnæði í því landi sem flutt er frá áður en flutt er til Svíþjóðar.
Að finna húsnæði í Svíþjóð
Í Svíþjóð eru margar tegundir húsnæðis. Hægt er að leigja íbúð í gegnum leigumiðlun sveitarfélaga eða af einkaaðilum. Hægt er að kaupa íbúð (búseturétt), hús eða sumarhús. Ef einstaklingur er námsmaður á hann einnig möguleika á að búa á stúdentagarði.
Á vefsíðunni Om boende eru almennar upplýsingar um húsnæðisleit í Svíþjóð.
Leiguhúsnæði (hyresrätt)
Ef einstaklingur óskar að leigja húsnæði, ætti viðkomandi að hafa samband við það sveitarfélag í Svíþjóð sem hann hyggst flytja til, til þess að fá upplýsingar um hvaða leigufélög eru á vegum sveitarfélagsins. Sveitarfélögin reka eigin húsnæðismiðlanir þar sem hægt er að skrá sig á biðlista.
Allar upplýsingar um sænsku sveitarfélögin eru á vefsíðu sveitarfélaganna.
Einnig er hægt að hafa samband við einkaaðila sem leigja út húsnæði í því sveitarfélagi sem viðkomandi hyggst flytja til.
Hægt er að finna íbúðir í auglýsingum í stærri dagblöðum, en skoðið einnig staðarblöð á því svæði sem þið ætlið að flytja til. Einnig eru nokkrar vefsíður sem gott er að þekkja til, s.s. Blocket, Bovision og Bostadsportal.
Framleiga (andrehandskontrakt)
Í mörgum stærri borgum Svíþjóðar er algengt að semja um framleigu þar sem erfitt getur reynst að finna leiguhúsnæði. Framleiga felur í sér að viðkomandi hefur ekki umráðarétt yfir íbúðinni og að hann leigir hana af upprunalega leigjandanum en ekki eiganda húsnæðisins.
Þessi tegund húsnæðis er oft dýrari en venjulegt leiguhúsnæði og samningurinn er tímabundinn. Ávallt skal sjá til þess að hafa leigusamning í höndunum áður en flutt er inn í íbúð. Uppsagnarfrestur í Svíþjóð er 1 mánuður, nema um annað hafi verið samið.
Búnaður í leiguíbúðum
Í Svíþjóð er ísskápur og frystir, sturta og/eða baðkar og aðgangur að þvottahúsi, staðalbúnaður. Að auki er ekki algengt að greidd sé fyrirframgreiðsla.
Hægt er að fá svör við mörgum spurningum varðandi leigu á húsnæði og réttindi leigjenda í Svíþjóð hjá Hyresgästföreningen.
Ef einstaklingar þurfa almennar upplýsingar um leigulögin eða ef viðkomandi á í deilum við leigusala, getur hann haft samband við Hyresnämnden.
Að kaupa húsnæði
Engar takmarkanir eru á rétti norrænna borgara til að eiga fasteign í Svíþjóð.
Þá eru heldur ekki takmarkanir á rétti til að skrá sig í þjóðskrá og búa í sumarhúsi. Leita ætti upplýsinga um hvaða þjónustu þeir sem búa í sumarhúsi eiga hjá búsetusveitarfélagi.
Ef einstaklingur vill kaupa húsnæði í Svíþjóð, getur viðkomandi farið á vefsíðuna Hemnet. Hemnet er í eigu allra fasteignasala í Svíþjóð og þar eru auglýstar allar íbúðir sem til sölu eru.
Margar íbúðir eru með búseturétt (bostadsrätt) sem er búsetuform þar sem einstaklingur kaupir og á íbúðina, yfirleitt með ákveðnum skilyðrum þó. Hann má t.d. ekki leigja íbúðina nema með leyfi frá stjórn húsfélagsins.
Húsfélagið á og stjórnar húsnæðinu sem íbúðin tilheyrir. Húsfélaginu er stjórnað af öllum sem búa í húsinu og eru reglurnar mismunandi frá einu félagi til annars.
Nánari upplýsingar um kaup á einbýlishúsi eða sumarhúsi á Om boende eða kaup á búseturétti á sömu vefsíðu. Nánari upplýsingar um fjármögnun veitir Konsumenternes Bank- och finansbyrå.
Óháð því hvaða tegund húsnæðis er leitað, er það þess virði að skoða vefsíðuna Om boende, sem gerð er af sænsku stofnununum Boverket og Konsumentverket. Þar eru ábendingar, upplýsingar og krækjur sem nýta má við húsnæðisleit.
Námsmannaíbúðir
Í mörgum skólabæjum er takmarkaður fjöldi námsmannaíbúða Til þess að eiga kost á þeim þurfa einstaklingar að uppfylla ýmis námsskilyrði.
Til þess að fá námsmannaíbúð í Svíþjóð þarf viðkomandi venjulega sænska kennitölu. Hún fæst hjá Skatteverket.
Á vefsíðunni Student och Bostad eru upplýsingar um flest sveitarfélög og fyrirtæki sem bjóða námsmannaíbúðir.
Á vefgáttinni Sök Studentbostad er hægt að sækja um námsmannaíbúðir alls staðar í Svíþjóð.
Á Studentbostäder eru allar upplýsingar um námsmannaíbúðir í Svíþjóð.
Studentbostadsföretagen eru samtök fyrirtækja sem reka námsmannaíbúðir í Svíþjóð.
Húsaleigubætur
Försäkringskassan veitir upplýsingar um húsaleigubætur fyrir barnafjölskyldur, ungt barnlaust fólk og lífeyrisþega.
Sala á húsnæði í landi sem flutt er frá
Ef einstaklingur flytur til Svíþjóðar og skráir sig í þjóðskrá þar áður en hann selur húsnæði í því landi sem flutt er frá, verður hann að greiða skatt af hagnaði til Skatteverket í Svíþjóð. Það er vegna þess að mögulegur hagnaður er skattlagður samkvæmt sænskum skattareglum.
Því er ráðlegt að velta fyrir sér hvort selja eigi húsnæði í því landi sem flutt er frá, áður en flutt er til Svíþjóðar.
