Innflutningur hunda og katta til Svíþjóðar
Hér að neðan eru upplýsingar um þær kröfur sem gerðar eru vegna innflutnings dýra frá norrænu ríkjunum til Svíþjóðar.
Ólíkar reglur gilda um ferðamenn sem koma til Svíþjóðar með hund eða kött eftir því hvaða landi þeir eru að koma frá.
Hundar og kettir frá Finnlandi, Danmörku og Íslandi
Áður en ferðast er með kött eða hund til Svíþjóðar verður:
- Dýrið að vera merkt með örflögu eða húðflúri.
- Að bólusetja dýrið gegn hundaæði. Blóðsýni skal tekið til að meta hvort mótefni séu til staðar. Prófið má gera í fyrsta lagi 120 dögum eftir síðustu bólusetningu gegn hundaæði og í síðasta lagi síðasta dag áður en bólusetning fellur úr gildi. Viðurkennd rannsóknastofa skal greina niðurstöður.
- Dýrið skal hafa verið bandormhreinsað, hreinsunin skal hafa verið framkvæmd af dýralækni innan við tíu dögum áður en ferðin hefst. Þetta á ekki við um dýr sem flutt eru frá Finnlandi (þar með talið Álandseyjum).
Ef hundurinn eða kötturinn eru flutt með flugi sem fragt, skal dýralæknisskoðun fara fram innan við 24 tímum fyrir ferð. Nánari upplýsingar eru á vefsíðu landbúnaðarráðuneytisins.
Inn- og útflutning á dýrum innan ESB verður alltaf að tilkynna til Tollstjóra. Þetta er gert þannig að þegar komið er til landsins er farið í „rauða hliðið" og tilkynnt að viðkomandi ferðist með dýr.
Tollurinn ákveður hvort ástæða sé til að skoða dýrið og vegabréfið, eða að það sé ekki nauðsyn. Ekki þarf að tilkynna innflutning á hundum og köttum fyrirfram, tilkynningarskylda er eingöngu við landamærin.
Á tollstöðum, þar sem enginn starfsmaður er á vakt, eiga að vera upplýsingar um hvar hægt er að hafa samband við Tollinn.
Ef slíkar upplýsingar eru ekki til staðar, af einhverjum orsökum, skal hringja til Tollstjóra Rikssambandscentral í síma 0980-84550 til að fá aðstoð.
Landbúnaðarráðuneytið getur í sérstökum tilvikum veitt undanþágu vegna innflutnings frá landi þar sem ekki eru dæmi um hundaæði, sé dýrið yngra en þriggja mánaða.
Nánari upplýsingar hjá landbúnaðarráðuneytinu.
Fjögurra vikna leyfi vegna ferða milli Svíþjóðar og Danmerkur
Einstaklingur sem ferðast reglulega milli Svíþjóðar og Danmerkur getur nýtt svokallað fjögurra vikna leyfi ásamt dýravegabréfinu. Slík leyfi eru gefin út fyrir dýr sem eiga heima í Svíþjóð eða Danmörku, sem fylgja eigendum sínum milli þessara landa.
Eyðublöð vegna þessara leyfa fást hjá landbúnaðarráðuneytinu og hjá dýralæknum.
Leyfin eru gefin út af viðurkenndum dýralæknum í Svíþjóð og Danmörku. Dýralæknir hreinsar einnig bandorm úr dýrum.
Þegar fjögurra vikna leyfi er gefið út í fyrsta sinn fyrir dýr sem eingöngu hefur verið í Svíþjóð, Noregi eða Finnlandi þarf ekki að bandormshreinsa dýrið, vegna þess að enginn bandormur er í þessum löndum.
Þegar ferðast er með danskan hund eða kött til eða frá Bornholm
Sérstakar reglur gilda fyrir Dani sem ferðast með hund eða kött í gegnum Svíþjóðar í einkabifreið, vörubifreið, í rútu eða lest, milli Sjálands og Bornholm. Tilkynningu um innflutning er þá hægt að fylla út á Netinu. Nánari upplýsingar um sérstakar reglur hjá landbúnaðarráðuneytinu.
Innflutningur á hundum og köttum frá Noregi
Þegar hundur eða köttur er fluttur inn frá Noregi er ekki gerð krafa um dýravegabréf né heldur sérstakrar meðhöndlunar á dýrinu. Ekki er heldur þörf á að tilkynna innflutninginn til Tollsins.
Nánari upplýsingar um bólusetningu, eftirlit, bandormshreinsun, leyfi vegna dýra sem eru undir þriggja mánaða gömul og ferðir til Bornholm, á vef landbúnaðarráðuneytisins.
