Kaup á vörum og þjónustu í Svíþjóð
Upplýsingar um hvernig gerast má áskrifandi að breiðbandi, síma og rafmagni í Svíþjóð.
Sjónvarpsáskrift
Allir sem eiga, leigja eða fá lánað sjónvarp eiga að greiða áskriftargjöld, samkvæmt sænskum lögum.
Einstaklingar eru ábyrgir fyrir því að tilkynna sjónvarpsaðgang til Radiotjänst í Kiruna í gengum vefsíðuna Radiotjanst.se eða í síma: 020-91 00 00.
Farsímar, heimilissímar og breiðband
Þeir sem ekki eiga lögheimili í Svíþjóð geta átt í erfiðleikum með að fá áskrift hjá símafyrirtæki.
Hafa þarf samband við það fyrirtæki sem viðkomandi vill gerast áskrifandi hjá til að fá upplýsingar um hvernig og hvert viðskiptavinir sem ekki eiga lögheimili í Svíþjóð skuli bera sig að.
Hafi einstaklingur ekki átt lögheimili í Svíþjóð í lengri tíma, krefjast mörg fyrirtækjanna þess að viðkomandi leggi fram launakvittanir eða sambærileg gögn, til að sýna fram á tekjur. Í einstaka tilvikum fara fyrirtækin fram á fyrirframgreiðslu.
Hvað varðar farsíma, þá er alltaf hægt að kaupa fyrirframgreitt símakort. Við kaup á slíku korti þarf ekki sænska kennitölu.
Heimasími, stafrænt sjónvarp og breiðband
Í mörgum nýjum fjölbýlishúsum er hægt að fá heimasíma, stafrænt sjónvarp og breiðband í gegnum netið.
Hægt er að velja milli símafyrirtæka, allt eftir því hvar búið er. Áður en ákvörðun er tekin er gott ráð að skoða vefsíðu Neytendasamtakanna Konsumentverket sem birtir samanburð á verði þjónustunnar.
Á vefsíðunni Cint er einnig samanburður á verði og þar er einnig hægt að eiga samskipti við aðra neytendur.
Raforkusalar og dreifingaraðilar
Í Svíþjóð er hægt að velja um raforkusala, en ekki um dreifingaraðila. Dreifingaraðilar taka alltaf visst gjald fyrir dreifingu á raforkunni, og á þetta gjald getur þú ekki haft áhrif.
Hins vegar má velja raforkusala að vild. Ef ekkert er valið, ákveður dreifingaraðilinn orkusalann.
Áður en raforkusali er valinn er gott ráð að skoða verðsamanburð á vefsíðu Neytendasamtakanna: Konsumentverket.
Einnig er gott að skoða vefsíðu Cint. Hafa skal samband við dreifingaraðila til að gerast áskrifandi að raforku.
Þegar flutt er úr íbúð er mikilvægt að muna að segja upp áskrift, þannig að viðkomandi verði ekki ábyrgur fyrir greiðslum vegna raforkuneyslu annarra.
