Kosningaréttur í Svíþjóð
Kosið er í Svíþjóð á fjögurra ára fresti. Eftirfarandi reglur gilda um kosningarétt.
Sveitastjórna- og landsþingskosningar
Ríkisborgarar Norðurlanda og ESB/EES ríkjanna sem orðnir eru 18 ára á kosningadag hafa kosningarétt í sveitastjórna- og landsþingskosningum í Svíþjóð.
Þeir sem hafa verið skráðir í þjóðskrá í Svíþjóð í þrjú ár fyrir kosningar hafa einnig kosningarétt. Viðkomandi verður að eiga lögheimili í þeirri sýslu eða sveitarfélagi sem hann kýs í.
Þingkosningar
Aðeins sænskir ríkisborgarar sem eru orðnir 18 ára og eru, eða hafa einhvern tíma verið, skráðir í þjóðskrá í Svíþjóð hafa rétt til að kjósa til þings (Riksdagen)
Evrópuþingið
Allir ESB-borgarar sem orðnir eru 18 ára á kosningadegi (þó ekki borgarar EES-ríkjanna) sem búsettir eru í Svíþjóð hafa rétt til að kjósa til Evrópuþingsins, að því gefnu að þeir kjósi ekki til sama þings í öðru ESB-ríki.
Kosningaréttur
Upplýsingar í íbúaskrá Skattstofunnar 30 dögum fyrir kosningar ákvarða kosningarétt einstaklinga. Allir þeir sem hafa kosningarétt fara sjálfkrafa á kjörskrá fyrir hverjar kosningar og fá kosningakort sent heim í pósti. Kjörskrá er listi með nöfnum allra þeirra sem hafa kosningarétt. Nánar á vefsíðu viðkomandi stjórnvalda sem sjá um kosningar.
