Document Actions

Leikskólar, umönnun skólabarna og grunnskólar í Svíþjóð

Hvað á við þegar þú eða börn þín byrja í skóla eða leikskóla í Svíþjóð?

Skola
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Leikskólar

Þegar þú starfar, stundar nám, ert í atvinnuleit eða heimavinnandi með yngri systkin, á barnið rétt á að stunda leikskóla. Í Svíþjóð eru það venjulega sveitarfélögin sem bera ábyrgð á leikskólum.

Til þess að geta sótt um leikskóla fyrir barnið verður viðkomandi í flestum tilfellum að vera með lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi eða sýna fram á fasta búsetu í sveitarfélaginu.

Reglurnar eru þó mismunandi eftir sveitarfélögum og því er best hafa samband við það sveitarfélag sem flytja á til, til þess að grennslast fyrir um þær reglur sem gilda. Þú átt rétt á leikskólaplássi fyrir barnið þitt frá og með eins árs aldri.

Leikskóli

Algengasta tegund skólastarfs fyrir börn á aldrinum eins til fimm ára er leikskóli. Leikskóli er uppalandi hópastarf sem börn geta tekið þátt í frá eins árs aldri þar til þau hefja skólagöngu.

Leikskólar fylgja eigin námskrá, sem leikskólum er skylt að hafa. Flestir leikskólar eru reknir af sveitarfélögunum en einkareknir leikskólar eru einnig algengir, t.d. samstarfsfélög foreldra þar sem foreldrarnir sjá sjálfir um rekstur leikskólans.

Leikskólar sem reknir eru af sveitarfélögunum eru opnir allt árið. Leikskólarnir eru opnir á daginn, en einnig eru til leikskólar í sumum sveitarfélögum sem hafa opið á kvöldin og nóttunni. Hafið samband við viðeigandi sveitarfélag til að fá nánari upplýsingar. Upplýsingar um öll sveitarfélög í Svíþjóð eru á heimasíðum allra sveitarfélaga og landsþinga í Svíþjóð.

Í Svíþjóð eru settar reglur um hámarksgreiðslur (Maxtaxa) sem fela í sér þak á því gjaldi sem foreldrar þurfa að greiða. Nánari upplýsingar um leikskólann eru á vef Skolverket.

Forskóli

Forskóli er sjálfstæð tegund skóla sem oft er staðsett á sama stað og grunnskólinn. Námskrá grunnskólans nær til forskólans en þær kennsluaðferðir sem notaðar eru, byggja á aðferðum leikskólans.

Undirbúningur sex ára barna fyrir skólagöngu hefst í forskólanum. Jafnvel þó þátttaka í forskóla falli ekki undir skólaskyldu, sækja flest sex ára börn námið. Nánari upplýsingar fást hjá Skolverket.

Uppeldisfræðileg umönnun

Uppeldisfræðileg umönnun getur til dæmis verið kennsla innritaðra barna á heimili skipuleggjandans eða aðrar lausnir þar sem fleiri fjölskyldur eiga hlut að máli.

Þetta getur verið valkostur í stað forskóla. Hafðu samband við það sveitarfélag sem þú ætlar að flytja til, til þess að fá nánari upplýsingar.

Umönnunargreiðsla

Í sumum sveitarfélögum geta foreldrar fengið bætur sem nefnast umönnunargreiðsla ef þeir kjósa ekki að láta barn á aldrinum eins til þriggja ára fara í leikskóla eða til dagforeldra.

Umönnunargreiðlsan er 3.000 sænskar krónur á mánuði og veitir ekki lífeyrisréttindi. Hafðu samband við það sveitarfélag sem þú ætlar að flytja til, til þess að fá nánari upplýsingar.

Umönnunargreiðslan er metin sem ESB-fjölskylduréttindi. Ef foreldrar búa eða starfa í sitt hvoru ríkinu á ESB/EES-svæðinu eru fjölskylduréttindin samræmd. Nánar um umönnunargreiðsluna á heimasíðu Försäkringskassan.

Gæsla skólabarna

Umönnun skólabarna fer fram á skóladagheimilum (í frítíma), opinni tómstundaiðju eða með uppeldisfræðilegri umönnun barna á aldrinum sex til tólf ára.

Umönnun stendur til boða frá því snemma á morgnana fram á kvöld, til þess að veita foreldrum tækifæri til að vinna eða stunda nám. Foreldrar greiða gjald fyrir vistun barna.

Í flestum tilfellum er starfið samþætt með skólanum og stjórnað af sömu aðilum. Nánar um umönnun skólabarna á Skolverket.

Grunnskóli

Sænski grunnskólinn er níu ár, og skiptist í haust- og vorönn. Skólaganga er skylda og ókeypis fyrir börn á aldrinum 7 til 16 ára.

Grunnskólar geta verið reknir af sveitarfélögunum eða einkareknir. Allir grunnskólar fylgja sömu námskrá, en einkaskólarnir geta haft áherslur sem aðskilja þá frá skólum sem sveitarfélögin reka, til dæmis trúarlegar eða uppeldisfræðilegar.

Annareinkunn er gefin í lok haust- og vorannar á áttunda ári og einnig í lok haustannar á níunda ári. Lokaeinkunn er gefin þegar skólaskyldu lýkur.

Skólaskyldu lýkur við lok vorannar á því ári sem barnið verður 16 ára.

Barn sem talar annað tungumál á heimilinu á rétt á móðurmálskennslu. Nánari upplýsingar veitir sveitarfélagið. Nánari upplýsingar um grunnskólann fást hjá Skolverket.

Frjálst val á skóla

Foreldrar og nemendur geta valið í hvaða skóla börnin ganga. Hægt er að velja um einkaskóla eða skóla á vegum sveitarfélagsins. Biðlisti er í marga einkaskóla. Á heimasíðu Skolverket Utbildningsinfo.se má sjá hvaða skóla hægt er að sækja um.

Réttur til menntunar

Til þess að eiga rétt á menntun í Svíþjóð verður viðkomandi að vera skráður í þjóðskrá. Einungis þau börn sem hafa dvalarleyfi í Svíþjóð eru skólaskyld, en fjölskyldur sem sótt hafa um hæli eiga einnig rétt á því að senda börn í skóla. Nánar um þetta í öðrum reglum (Övriga bestämmelser) í Skólalögum, kafla 29.

Tungumál

Nemandi sem býr hjá forráðamanni með annað móðurmál en sænsku á rétt til móðurmálskennslu í því tungumáli ef það er talað daglega á heimilinu og nemandin býr yfir grundvallarþekkingu í tungumálinu. Ef móðurmál forráðamanns er sænskt minnihlutatungumál skal bjóða nemandanum móðurmálskennslu í því tungmáli jafnvel þó það sé ekki talað á heimilinu. Sænsku minnihlutatungumálin eru finnska, meänkieli (tornedalsfinnska, samíska (allar mállýskur), romani chib (tungumál sígauna) og jiddíska. Á vefsíðunni minoriet.se sem rekin er á vegum Samaþingsins samkvæmt samningi við sænsku ríkisstjórnina, eru nánari upplýsingar um þjóðarbrot og minnihlutatungumál í Svíþjóð.

Alþjóðlegir skólar

Leyfilegt er fyrir börn sem dveljast í Svíþjóð í stuttan tíma eða sækja menntun sína af öðrum ástæðum í alþjóðlega skóla ef skólinn er viðurkenndur af Skolverket sem alþjóðlegur skóli. Til þess að hljóta viðurkenningu verður menntun skólans að teljast sambærileg við menntun sænska grunnskólans.

Skólaakstur

Nemandi sem býr langt frá skóla eða býr við hreyfihömlun sem krefst aksturs á rétt á því að fá skólaakstur án endurgjalds að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Meðal annars því að sveitarfélagið geti ekki boðið nemandanum annan skóla sem er nærri. Nánar um þetta í skollagen (skólalögunum).

Tengt efni
  • Framhaldskólamenntun (Cooperation Area)
  • Grunnskóli (Cooperation Area)
  • Æðri menntun (Cooperation Area)
  • Starfsnám (Cooperation Area)
  • Landamæraþjónustan (Organisation)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.

  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Organisation)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Öresund Direkt (Organisation)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.