Ríkisborgararéttur í Svíþjóð
Eftirfarandi skilyrði þarf að uppfylla til að geta sótt um ríkisborgararétt í Svíþjóð.
Danskur, finnskur, norskur eða íslenskur ríkisborgari getur sótt um að verða sænskur ríkisborgari hjá sýslumanni (borgarar annarra ríkja sækja um hjá Innflytjendastofnun). Til þess að geta sótt um ríkisborgararétt verður umsækjandi að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Umsækjandi má ekki hafa fengið núverandi norrænan ríkisborgararétt með sérstakri ákvörðun yfirvalda.
- Þegar sótt er um verður umsækjandi að vera orðinn 18 ára (lögráða).
- Umsækjandi verður að hafa búið í Svíþjóð í minnst fimm ár áður en sótt er um.
- Umsækjandi má ekki hafa hlotið fangelsisdóm eða annan varðhaldsdóm á þeim fimm árum.
Með umsókn um sænskan ríkisborgararétt skal senda persónuskilríki. Þau eru pöntuð hjá skattstofunni.
Tvöfaldur ríkisborgararéttur
Í Svíþjóð er leyfilegt að hafa tvöfaldan ríkisborgararétt.
Ríkisborgararéttur barna
Forráðamenn geta sótt um ríkisborgararétt fyrir börn. Ef barnið er orðið tólf ára þarf skriflegt samþykki þess.
Ef tveir forráðamenn sækja um og fá sænskan ríkisborgararétt samtímis, fá ógift börn þeirra undir 18 ára aldri sjálfkrafa ríkisborgararétt.
Það sama á við ef einstaklingur sem fer einn með forráð barns sækir um og verður sænskur ríkisborgari. Í þeim tilfellum þegar forráðamaður sækir um og verður sænskur ríkisborgari og hinn forráðamaðurinn er þegar sænskur ríkisborgari, fá ógift börn þeirra einnig sjálfkrafa sænskan ríkisborgararétt.
Börn sænskra mæðra fá sjálfkrafa sænskan ríkisborgararétt við fæðingu, óháð því hvort barnið fæðist í Svíþjóð eða ekki. Barn sænsks karls og erlendrar konu verður sænskur ríkisborgari ef foreldrarnir eru giftir, óháð því hvar barnið fæðist.
Ef foreldrarnir eru ekki hjón fær barnið eingöngu ríkisborgararétt ef það fæðist í Svíþjóð. Barn erlendrar móður sem er gift eða í sambúð með sænskri konu verður einnig ríkisborgari ef það er fætt í Svíþjóð.
Reglur sem í gildi eru um ríkisborgararétt barna samkynhneigðra kvenna eru ekki til fyrir samkynhneigða karla. Í þeim tilfellum getur einungis líffræðilegur faðir yfirfært ríkisborgararétt sinn til barnsins.
