Tollareglur í Svíþjóð
Eftirfarandi reglur gilda um innflutning á vörum til Svíþjóðar.
Innan ESB gilda reglur um frjálst flæði vara og því þarf undir venjulegum kringumstæðum ekki að tilkynna innflutning til Tollstjóra.
Aftur á móti er skylda að tilkynna um vörur sem sérstakar reglur gilda um, svo sem vopn, dýr, tóbak, áfengi og matvöru.
Ef flutt er til Svíþjóðar frá Noregi eða Íslandi verður alltaf að tilkynna um það sem flutt er til Tollayfirvalda.
Hægt að sækja um tollaundanþágu fyrir búslóðir. Það þýðir að ekki þarf að greiða toll og virðisaukaskatt af presónulegum munum.
Til þess að fá undanþágu frá greiðslu tolla verður að uppfylla kröfur um lengd búsetu erlendis, hve lengi viðkomandi hefur átt og notað munina o.fl.
Nánari upplýsingar um flutning til Svíþjóðar frá landi utan ESB á vefsíðu Tollstjóra.
Ef bifreið er hluti af búslóð sem flutt er til Svíþjóðar skal hafa samband við Umferðarstofnun. Nánari upplýsingar í kaflanum um bifreiðar.
Útflutningur menningarverðmæta
Jafnvel þó reglur kveði á um frjálst flæði vara innan ESB, eru í gildi ákvæði sem takmarka útflutning menningarverðmæta frá Svíþjóð.
Ef einstaklingur á menningarverðmæti og flytur frá Svíþjóð þarf mögulega leyfi til útflutnings, allt eftir því hver munurinn er.
Umsóknareyðublað og upplýsingar um hvaða hluti þarf leyfi til að flytja út má nálgast hjá embætti þjóðminjavarðar og þangað skal einnig senda umsóknina.
Ef flytja á mennigarverðmæti til Íslands eða Noregs getur þurft að sækja um leyfi Nánar á vefsíðu Tollstjóra.
Ferðamenn í Svíþjóð
Á vefsíðu Tollstjóra eru góð ráð fyrir þá sem ferðast til Svíþjóðar.
Að hafa áfengi og tóbak meðferðis
Ef einstaklingur ferðast til Svíþjóðar frá öðru ESB-ríki má hann hafa meðferðis áfengi og tóbak sem keypt er þar, en eingöngu til eigin neyslu og fjölskyldu.
Ef viðkomandi kemur frá ríki utan ESB má hann hafa meðferðis takmarkað magn áfengis og tóbaks. Lágmarksaldur fyrir áfengi er 20 ár og 18 ár fyrir tóbak.
Hafa má áfengi meðferðis án þess að greiða af því gjöld ef viðkomandi hefur ferðast með flugvél eða verið fjarverandi a.m.k. 20 klukkustundir. Hafi viðkomandi ekki ferðast með flugvél eða verið fjarverandi skemur en 20 klukkustundir verður hann að greiða gjöld af því áfengi sem hann hefur meðferðis frá Noregi og Álandseyjum. Nánar á vefsíðu Tollstjóra.
Vopn og hættulegir hlutir
Til þess að flytja vopn yfir landamæri þarf oft leyfi frá sænskum lögregluyfirvöldum.
Reglurnar eru mismunandi eftir gerð vopna og hvort vopnið er flutt til Svíþjóðar varanlega eða tímabundið. Nánari upplýsingar á vefsíðuTollstjóra um vopn og hættulega hluti.
Plöntur
Einstaklingar mega flytja margar tegundir plantna til Svíþjóðar. Aðrar plöntur þarf leyfi fyrir og sumar er bannað að flytja inn. ESB-ríkin eru með sameiginlega löggjöf varðandi plöntur og eru sænskar reglur í stórum dráttum eins og reglur ESB. Nánari upplýsingar á vefsíðum Tollstjóra og Landbúnaðarstofnunar.
Matvæli
Grundvallarreglan er sú að hafa má meðferðis matvæli frá löndum innan ESB. Undantekningin er sú að aðeins má hafa meðferðis 15 kíló af fiski frá öðru ESB ríki. Ekki er leyfilegt að hafa meðferðis kjöt og mjólkurafurðir frá ríkjum utan ESB, með nokkrum undantekningum þó. Um innflutning frá Noregi, Andorra, Liechtenstein, San Marínó og Sviss gilda sömu reglur og um ESB-ríkin. Um innflutning frá Færeyjum, Grænlandi, Íslandi og Króatíu gildir að einungis má hafa meðferðis 10 kíló af matvælum til einkaneyslu á hvern einstakling.
Þá er einnig skattfrjáls innflutningur sem þýðir að einstaklingur má hafa meðferðis vörur að andvirði að hámarki 4.300 sænskar krónur ef viðkomandi ferðast með flugvél eða ferju og 3.000 sænskar krónur ef ferðast er á annan hátt. Nánari upplýsingar eru á vefsíðu Tollstjóra.
Lyf
Ferðamenn mega hafa meðferðis nauðsynleg lyf án þess að sækja um leyfi. Það á einig við um lyf fyrir dýr sem höfð eru meðferðis. Nánari upplýsingar um dýr eru á Innflutningur hunda og katta til Svíþjóðar. Um lyf sem flokkuð eru sem ávanabindandi gilda sérstakar reglur. Tollstjóri veitir nánari upplýsingar.
Ökutæki
Á vefsíðu Halló Norðurlanda um bifreiðar í Svíþjóð eru upplýsingar um reglur um innflutning bifreiða til Svíþjóðar.
