Document Actions

Upplýsingar fyrir hreyfihamlaða

Að neðan eru upplýsingar fyrir hreyfihamlaða sem hyggjast flytja til Svíþjóðar.

Handikapp
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Áður en flutt er, skal hafa samband við það sveitarfélag eða borgarhluta sem flytja á til. Þar eru veittar upplýsingar um hvaða stuðning sveitarfélagið eða borgarhlutinn getur boðið þeim sem eiga við einhvers konar hreyfihömlun að stríða. Á vefsíðu sænsku sveitarfélaganna og landsþinganna (SKL) er listi yfir sveitarfélög í Svíþjóð.

Lög um félagsþjónustu (SoL) og heilbrigðismál- og umönnun (HSL) kveða á um hvaða aðstoð er veitt. Þessi lög eiga við um alla sem þurfa á aðstoð að halda. SoL tryggir félagslegt og efnahagslegt öryggi borgaranna. HSL tryggir læknisþjónustu, meðferð, endurhæfingu, þjálfun og hjálpartæki.

Ef hreyfihömlunin er mikil og varanleg eru einnig til lög um aðstoð og þjónustu við ákveðna hópa hreyfihamlaðra (LSS). LSS veitir umfangsmeiri aðstoð til þeirra sem falla undir lögin. Þeir sem falla undir LSS eru þeir sem geta fengið aðstoð og þjónustu samkvæmt lögunum.

Tryggingastofnun úrskurðar um og greiðir m.a. örorkubætur, umönnunarbætur, bifreiðastyrki og greiðslur vegna aðstoðar. Þar að auki er þar hægt að sækja um hjálpartæki vegna vinnu, tómstundastyrki, sjúkrabætur og fá upplýsingar um hvernig hægt er að fá aðstoð við húsnæðisgreiðslur. Einnig er hægt að fá upplýsingar hjá Samtökum um samfélag án hindrana fyrir hreyfihamlaða.

Góð ráð!

Á FIA Guide for the disabled traveller eru nytsamlegar upplýsingar um reglur um bílastæði í 130 löndum fyrir hreyfihamlaða ferðalanga.

Sjá einnig Nýja stefnu ESB um málefni hreyfihamlaðra sem ætlað er að auðvelda hreyfihömluðum einstaklingum að taka þátt í þjóðfélaginu á jafnréttisgrundvelli alls staðar í ESB.

Tengt efni
  • Hreyfihömlun (Samstarfssvæði)
  • Landamæraþjónustan (Samtök)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.

  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Öresund Direkt (Samtök)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.