Námsefni um Norðurlönd
Yfirlit yfir námsefni um Norðurlönd og norræn tungumál.
Tungumálakennsla
Norðurlönd í bíó
Sameiginlegt norrænt tungumálaátak fyrir skóla á Norðurlöndum. Markmiðið er að nemendur bæti kunnáttu sína í norrænum tungumálum með aðstoð námsefnis sem byggir á kvikmyndum. Framleiðsla efnisins er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni.
Tilraunaverkefni í tungumálakennslu
Heimasíða fyrir verkefnið Sprogpiloterne. Síðan er ætluð öllum þeim sem vilja gera kennslu í norrænum tungmálum nútímalega og áhugaverða fyrir nemendur í grunnskólum á Norðurlöndum. Framleidd með styrk frá Norrænu ráðherranefndinni.
Norræn tungumál með rætur og fætur
„Norræn tungumál með rætur og fætur" er fagleg og lifandi kynning á norrænum tungumálum frá sögulegu sjónarhorni. Efnið er á skandínavísku tungmálunum, íslensku, færeysku, samísku, grænlensku og finnsku. Sagt er frá uppbyggingu tungumálanna, sögulegri þróun og innbyrðis skyldleika. Bókinni og heimasíðunni fylgir umfangsmikið námsefni sem samanstendur af stuttum, aðgengilegum textum um málsögu og tengd efni.
http://eplads.norden.org/nordenssprak (HTML)
http://www.norden.org/da/publikationer/publikationer/2004-010 (pdf og möguleiki að panta bókina)
Að skilja hver annan á Norðurlöndum
Góð ráð um samstarf þvert á norræn tungumál. Rit frá Norrænu stofnuninni í Finnlandi
http://www.nifin.helsinki.fi/pdf/Attforsta.pdf (pdf)
http://www.nifin.helsinki.fi/se/material.html (bestilling)
Danska ríkisútvarpið - Norræn tungumál
Vefsíða DR um norræn tungumál, gerð með styrk frá Norrænu ráðherranefndinni. Hlustaðu til dæmis á ljóð á samísku eða færeysku, prófaðu að semja rapptexta eða leystu þraut um Norðurlöndin.
Norrænar orðabækur
Listi yfir norrænar orðabækur á Netinu
Saga
Saga Norðurlandanna
Saga Norðurlanda frá víkingatímanum til dagsins í dag
Saga norræns samstarfs
Bókmenntir
Norrænar bókmenntir til þjónustu reiðubúnar
Viðmið norrænna bókmennta. Hér eru dæmi um ýmsar tegundir bókmennta: ljóðlist, ballöður, vísur, sálma, skáldsögur, smásögur, ferðabækur, goðsagnir, þjóðsögur, ævintýri, dæmisögur og leikrit. Allir textarnir eru á upprunalega tungumálinu og með nútímastafsetningu. Finnsku, samísku, færeysku, íslensku og grænlensku textarnir hafa einnig verið þýddir á eitt af skandínavísku tungumálunum. Til þess að auðvelda lestur textanna hafa verið gerð sérstök hefti með orðaskýringum á dönsku, sænsku og norsku.
http://www.norden.org/da/publikationer/publikationer/2008-002
Bibbi - Norrænt sýndar-barnabókasafn
Sýndarbókasafn með barnabókum frá Norrænu stofnuninni í Finnlandi.
http://www.nifin.helsinki.fi/bibbi/
Annað námsefni um Norðurlönd
Efni um Norðurlönd frá Dönsku kennslugáttinni
EMU - Á heimasíðu dönsku kennslugáttarinnar er undirsíða með gagnvirku kennsluefni um Norðurlöndin.
http://www.emu.dk/elever0-3/natfag/norden
Norðurlönd hafa ýmislegt fram að færa
Hvert er hlutverk Norðurlandanna í nýrri Evrópu? Þessi og fleiri spurningar eru til umræðu í bókinni „Norðurlönd hafa ýmislegt fram að færa". Í bókinni eru fimm kaflar eftir norrænu höfundana Jan Kærstad, Henrik Nordbrandt, Einar Má Guðmundsson, Eva Ström og Kari Hotakainen. Að auki eru í henni staðreyndir um Norðurlöndin og norrænt samstarf og ábendingar um hvernig nálgast má meiri vitneskju. Bókin er gefin út í skandíanvískri útgáfu (danskri/sænskri/norskri) og á finnsku og íslensku.
http://www.norden.org/da/publikationer/publikationer/2004-002
Valhalla - vefgátt fyrir barna- og ungmennamenningu
Valhalla er vefgátt Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir barna- og ungmennamenningu í öllum norrænu ríkjunum. Á vefgáttinni eru ábendingar um flest það sem gerist á Norðurlöndum á sviði byggingarlistar og hönnunar, myndlistar, danslistar og sviðslistar, fjöllistar, kvikmynda og fjölmiðla, rannsókna og menntunar, leik og hreyfingar, bókmennta og tónlistar fyrir börn og ungmenni.
Norrænn loftslagsdagur
Norrænn loftslagsdagur er gsm-viðburður sem haldinn er einu sinni á ári og geta þeir sem ganga í 7.-10.bekk á Norðurlöndum tekið þátt. Nemendur fá verkefni í gegnum farsímann og skulu þeir leysa það sama dag. Þeir geta síðan sett efnið á heimasíðuna og jafnframt séð verkefni annarra nemenda á Norðurlöndum.
Upplýsingar fyrir skóla frá Norrænu félögunum
Upplýsingar um vinabekki, pöntun á námsefni, skólaaðild og önnur tilboð frá Norrænu félögunum í hverju landi fyrir sig.
Danska ríkisútvarpið - Norðurlönd fyrr og nú
Samstarfsverkefni Norrænu ráðherranefndarinnar og norrænu ríkisútvarps og -sjónvarpsstöðvanna. Sýndarferð um Norðurlönd með myndskeiðum og stuttum textum. Framleitt með styrk frá Norrænu ráðherranefndinni.
Kort af Norðurlöndum
krækjusafn með kortum af Norðurlöndunum
Ábendingar um norrænt kennsluefni
Við viljum gjarnan fá ábendingar um kennsluefni um Norðurlönd á netfangið webredaktionen@norden.org.
