Document Actions

Námsefni með upplýsingum um Norðurlönd

Hér á eftir eru krækjur á efni um Norðurlönd sem hentar bæði yngri og eldri nemendum.

Efni um Norðurlönd á kennslugátt Danmerkur

Á vefsvæði EMU – kennslugáttar Danmerkur er undirsíða með gagnvirku námsefni um Norðurlönd.

Norðurlönd hafa ýmislegt fram að færa

Hvert er hlutverk Norðurlanda í nýrri Evrópu? Um þessa og aðrar spurningar er fjallað í bókinni „Norðurlönd hafa ýmislegt fram að færa” . Í bókinni eru fimm kaflar eftir norrænu rithöfundana Jan Kjærstad, Henrik Nordbrandt, Einar Már Gudmundsson, Eva Ström og Kari Hotakainen. Að auki inniheldur bókin upplýsingar um norrænu ríkin og norrænt samstarf ásamt ábendingum um hvar nánari upplýsingar er að finna. Bókin er gefin út í skandínavískri (danskri/sænskri/norskri), finnskri og íslenskri útgáfu.

Danmarks Radio – Norðurlönd fyrr og nú

Norðurlönd fyrr og nú er samstarfsverkefni Norrænu ráðherranefndarinnar og norrænu ríkisútvarpanna. Sýndarferð um Norðurlönd með myndskeiðum og stuttum textum. Framleitt með styrk frá Norrænu ráðherranefndinni.

Kynnist Norðurlöndunum

Efnið „Lär känna Norden” (Kynnist Norðurlöndunum) er ætlað börnum á aldrinum 3-9 ára og samanstendur af hefti með upplýsingum um norræn ríki og nokkrar norrænar sögur, kort af Norðurlöndunum, ábendingar um Norðurlandafræðslu á leikskólum og minnisspil með kortum af Norðurlöndum. Hægt er að hlaða niður efninu á vefsíðu Pohjola-Norden (Norræna félagið í Finnlandi) en einnig er hægt að panta það ókeypis í vefverslun þeirra.

Norræna félagið

Á vefsíðu Norræna félagsins í Svíþjóð er mikið safn kennsluefnis fyrir þá sem kenna um Norðurlönd. Þar er einnig yfirlit um hvað sænsk námskrá segir um Norðurlönd í mismunandi fögum.

norDist

norDist stundar rannsóknir um ný tækifæri í fullorðinsfræðslu. Nýrri tækni s.s. vefnámskeiðum og snjallsímaforritum er lýst með bloggfærslum, myndskeiðum, á samskiptavefjum o.fl.

Norrænar morgunstundir

Norræna félagið í Finnlandi, Pohjola-Norden, hefur sett saman tillögur að morgunstundum með norrænu þema.

Norræn dýr

Skånes djurpark hefur sérhæft sig í norrænum dýrum. Á vefsíðunni eru lýsingar á fjölda dýra í norrænni náttúru.

Vetamix

Sænskt námsefni YLE í Vetamix inniheldur fjölmörg myndskeið með efni um Norðurlönd og norræn tungumál.

Ábendingar um norrænt námsefni

Við viljum gjarnan fá ábendingar um námsefni um Norðurlönd á webredaktionen@norden.org.