Document Actions

Námsefni um norræna menningu og bókmenntir

Menning á Norðurlöndum vex og dafnar. Hér að neðan eru krækjur meðal annars á sýnisbók um norrænar kvennabókmenntir, norrænar barnabækur og tónlist á norrænu tungumálunum.

Norrænar bókmenntir

Sýnisbók norrænna bókmennta. Í bókinni er yfirlit yfir fjölmargar tegundir bókmennta: ljóð, skáldsögur, smásögur, ferðabækur, goðsagnir, þjóðsögur og ævintýri, spakmæli og leikritun. Allir textar eru á frummálinu og með nútíma stafsetningu. Finnskir, samískir, færeyskir, íslenskir og grænlenskir textar eru einnig þýddir á eitt af skandinavísku tungumálunum. Til að auðvelda lesturinn fylgja danskar, sænskar og norskar glósur með bókinni í litlum heftum.

Norræn kvennabókmenntasaga

Bókmenntasagan er í fimm bindum. Norræn kvennabókmenntasaga, er einnig aðgengileg í rafrænu formi frá í mars 2012. Á vefsíðunni eru ævisögur og greinar um 800 kvenhöfunda á sænsku, dönsku og ensku.

Valhalla – vefgátt fyrir barna- og ungmennamenningu

Valhalla er vefgátt Norrænu ráðherranefndarinnar um barna- og ungmennamenningu í öllum norrænu ríkjunum. Þar eru ábendingar og upplýsingar um flest það sem er á döfinni á Norðurlöndum hvað varðar byggingalist og hönnun, myndlist, dans og leiklist, fjölmenningu, kvikmyndir og fjölmiðlun, rannsóknir og menntun, leik og hreyfingu, bókmenntir og tónlist á barna- og ungmennasviðinu.

Bibbi – Norrænt sýndarbarnabókasafn

Bibbi er barnabókasafn með bókum og öðru efni fyrir börn á aldrinum 3 - 12 ára. Verkin eru innbundin og þeim fylgir stuttur lýsandi texti. Norræna stofnunin í Finnlandi, Nifin, hefur umsjón með Bibbi.

Ellen – Lesandi Norðurlönd

Ellen er safn barnabóka frá öllum Norðurlöndunum. Í safninu er hægt að leita eftir titlum og aldurshópi lesenda, tungumáli eða höfundi. Bækurnar eru ætlaðar börnum á aldrinum 6 - 15 ára. Ellen er verkefni sem heyrir undir norræna barnabókasafnið Bibbi.

Bækur og tungumál

Námsefni sem tengist fjölda barna- og ungmennabóka. Efnið er gefið út á sænsku, norsku og dönsku.

Ágrip fyrir leshringi

Norræna upplýsingaskrifstofan á suður Jótlandi hefur gefið út ágrip sem er nær 100 bls. fyrir leshringi sem vilja lesa og fjalla um norrænar bókmenntir. Í ágripinu er stutt lýsing á fjölda ólíkra hefðbundinna og nútíma verka frá öllum Norðurlöndunum. Einnig hefur verið gefið út ágrip af bókum sem fjalla um innflytjendur.

Hvað er granninn að syngja?

Tónlist er gott verkfæri fyrir þá sem kenna norræn tungumál. Skolverket hefur látið gera tónlistarmyndbönd með tilheyrandi textum og æfingum sem nýta má við kennslu.

Norræn söngbók

Norræna félagið í Danmörku hefur tekið saman söngbók með norrænum vísum.

Icelandic Cinema Online

Á vefsíðunni Icelandic Cinema Online er hægt að horfa á íslenskar kvikmyndir. Um er að ræða fræðslumyndir, kvikmyndir í fullri lengd, stuttmyndir, tónlistarmyndbönd o.fl. Sumt af efninu er ókeypis og annað er selt ódýrt.

Ábendingar um norrænt námsefni

Vinsamlega sendið ábendingar um námsefni um Norðurlönd á netfangið: webredaktionen@norden.org.