Viltu vita meira um sögu norrænna tungumála? Eða leita að upplýsingum um sögufræga norræna persónu? Hér að neðan eru upplýsingar um sögu Norðurlanda.
Norræna saga frá fortíð til nútíðar er gefin út af Pohjola Norðurlöndum árið 1998. Ritinu er hægt að hlaða niður ókeypis af vefnum í PDF formi.
Árið 2009 gaf Norræna félagið í Finnlandi,Pohjola-Norden, út bók um sögu finnska stríðsins og skiptingu ríkisins. Bókin er á sænsku og finnsku og hana er hægt að panta á vefsíðu Norræna félagsins Pohjola Nordens hemsida. Bókinni fylgja einnig verkefnaæfingar.
Ferð án landamæra er námsefni um hindranir bæði einstaklings- og landamærahindranir í dag og á átjándu öldinni. Var átjándu aldar maðurinn líkur okkur? Í námsefninu eru leiðbeiningar fyrir kennara og kerfi sem skipt er upp í 6 ólíka flokka með viðeigandi verkefnum og viðbótar upplýsingum og myndum. Námsefnið er gert í samstarfi þriggja safna í Svíþjóð, Noregi og Danmörku.
„Norræn tungumál með rótum og fótum” er fagleg og lifandi kynning á norrænu tungumálunum í sögulegu samhengi. Efnið er gefið út á skandinavísku tungumálunum, íslensku og færeysku og á samísku, grænlensku og finnsku. Í bókinni er sagt frá uppbyggingu tungumálanna, sögulegri þróun og skyldleika. Með bókinni og á vefsíðunni er námsefni sem samanstendur af stuttum, auðveldum textum um tungumálasöguna og efni sem tengjast henni. Einnig er hægt að hlaða bókinni niður í PDF formi eða panta hana hjá norden.org.
Alexander Arguelles er málvísindamaður og mjög þekktur fyrir að vera fjöltyngdur. Hann hefur gert kynningarmyndbönd þar sem hann lýsir uppbyggingu tungumáls og hvernig það aðskilur sig frá líkum tungumálum. Af norrænu tungumálunum hefur hann fjallað um íslensku, færeysku, dönsku, sænsku, bókmál og nýnorsku.
Skrá yfir þekkta einstaklinga á Norðurlöndum með áerslu á Svíþjóð og sænska konunga. Skráin nær frá tíundu öldinni fram til dagsins í dag og í henni eru upplýsingar um u.þ.b. 3350 einstaklinga.
Á vefsíðu danska ríkisútvarpsins, Norðurlönd fyrr og nú, er gagnvirkt kort þar sem hægt er að leita að sögulegum viðburðum á Norðurlöndum. Verkefnið er unnið í samstarfi Norrænu ráðherranefndarinnar og norrænu ríkissútvarpsstöðvanna og gefið út með styrk frá Norrænu ráðherranefndinni.
Vinsamlega sendið ábendingar um námsefni um Norðurlönd á netfangið: webredaktionen@norden.org.