Document Actions

Skólastarf Norrænu félaganna

Mikilvægur hluti af starfi Norrænu félaganna felst í því að veita upplýsingar og aðstoða kennara sem kenna um Norðurlönd og norræn tungumál. Einnig býðst skólum að ganga í Norrænu félögin.

Félagsaðild skóla

Félagsaðild fyrir skóla í Norræna félaginu kostar lítið. Sem félagsaðili fær skólinn meðal annars fréttbréf félagsins og aðgang að kennsluefni um Norðurlönd. Einnig gefst félögum tækifæri á að sækja um styrki, kaupa vörur með afslætti og margt fleira. Hafið samband við starfsmann sem sér um skólamál hjá Norræna félaginu í viðkomandi landi og fáið upplýsinar um hvað skólaaðild felur í sér.

Norrænn vinabæjarbekkur

Norrænu félögin bjóða skólabekkjum tækifæri á því að eignast vinabekk í öðru norrænu ríki. Norrænn vinabekkur veitir skólabörnum tækifæri á að kynnast menningu annars staðar á Norðurlöndum, öðlast skilning á tungumálinu og um leið að tengjast nýjum félögum.

Bekkirnir ákveða sjálfir hvernig þeir viðhalda tengslum og hvað þeir vilja gera saman. Þeir geta til að mynda skrifast á eða verið í tölvupóstsamskiptum, opnað sameiginega fésbókarsíðu, unnið sem erlendir fréttaritarar fyrir skólablöð hvors annars og heimsótt hvor annan.

Það kostar ekkert að eignast norrænan vinabekk. Frekari upplýsingar fást hjá Norræna félaginu í þínu landi.

Námsstuðningur

Norræna félagið aðstoðar kennara sem vilja sækja norræn endurmenntunarnámskeið eða sem vilja fara í skólaheimsóknir til annarra norrænna ríkja. Hugmyndin byggir á því að auka þekkingu kennara um Norðurlönd og leiðbeina þeim og gefa hugmyndir um kennslu á norrænum tungumálum í gegnum vinabekkina, námsefni og annað sem til boða stendur í hverju landi fyrir sig.

Hafið samband

Svíþjóð

Um skólaaðild
Sækja um skólaaðild
(PDF)
Tilkynning um vinabekk (PDF)
Hafið samband

Finnland

Skólasamstarf
Sækja um skólaaðild

Hafið samband

Danmörk

Upplýsingar fyrir skóla
Sækja um vinabekk
(PDF)
Hafið samband

Noregur

Norðurlönd í skólanum
Sækja um skólaaðild

Hafið samband

Ísland

Norræna félagið á Íslandi