Fjármögnun náms á Íslandi
Upplýsingar um möguleika varðandi námslán og námsstyrki fyrir þá sem hyggja á nám á Íslandi.
Námslán
Lánasjóður íslenskra námsmanna veitir námslán til námsmanna sem uppfylla ákveðin skilyrði sem sjóðurinn setur. Íslenskir ríkisborgarar fá aðeins lán úr sjóðnum ef þeir hafa átt lögheimili á Íslandi í eitt ár áður en lánshæft nám hefst. Búseta á Norðurlöndum jafngildir búsetu á Íslandi í þessu sambandi. Íslenskur ríkisborgari heldur rétti sínum í tvö ár eftir að hann flytur lögheimili sitt úr landi.
Þó aðalreglan sé sú að Norðurlandabúar sæki um lán frá heimalandi sínu þegar þeir stunda framhaldsnám á Íslandi, eiga þeir sem eru heimilisfastir á Íslandi rétt á námslánum til jafns við íslenska námsmenn, svo lengi sem þeir njóta ekki námsaðstoðar frá heimalandinu. Mögulegt er að óska eftir viðtali hjá ráðgjafa LÍN til að kanna mögulega á að fá námslánlán.
Lánsupphæð er meðal annars miðuð við tekjur námsmanns en ýmislegt annað getur haft áhrif á heildarlánveitinguna, til dæmis hvort lánþegi býr í leiguhúsnæði eða foreldrahúsum og fjöldi barna.
Sækja má um hækkun á láni vegna skólagjalda í framhaldsnámi í háskóla og ferðakostnaðar til dæmis.
Námslán þarf ekki að telja fram til skatts. Endurgreiðsla námslána hefst tveimur árum eftir að námi lýkur og er upphæð endurgreiðslunnar á hverju ári miðuð út frá tekjum lántaka árið áður.
Allar nánari upplýsingar um Lánasjóð íslenskra námsmanna er að fá á heimasíðu lánasjóðsins.
Námsstyrkir
Enginn opinber námsstyrkur er í boði fyrir námsmenn. Þó geta námsmenn af landsbyggðinni sem þurfa að dvelja fjarri heimili sínu vegna náms fengið svokallaðan jöfnunarstyrk.
Námsmenn í fjölbrauta- eða menntaskólum sem stunda sérnám sem leiðir til starfsréttinda, geta fengið námslán.
Nemendur sem óska eftir Nordplus eða Erasmus-styrk til að stunda nám á Íslandi í eina eða tvær annir hafa samband við alþjóðaskrifstofu þess háskóla sem þeir stunda nám við í heimalandinu. Námið er svo metið sem hluti af náminu í heimalandinu. Mennta- og menningarmálaráðuneytið veitir auk þess örfáa styrki til erlendra nema.
Ýmsir styrktarsjóðir eru til fyrir nema sem stunda nám í ákveðnum greinum og má meðal annars finna upplýsingar um þá í handbók um styrki frá Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins.
