Document Actions

Húsnæði fyrir námsfólk á Íslandi

Mikilvægt er fyrir þá sem halda til náms á Íslandi að kynna sér þá möguleika sem eru í boði á húsnæðismarkaði fyrir námsfólk. Nemendasambönd við flesta íslenska háskóla eiga húsnæði sem leigt er út til námsmanna sem stunda nám við viðkomandi skóla.

Boende
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Húsnæði fyrir námsmenn er af ýmsu tagi, ætlað einstaklingum jafnt sem fjölskyldum. Námsmannaíbúðir eru oftast, en ekki alltaf, í nágrenni við háskólana.

Nánari upplýsingar um húsnæði fyrir námsmenn má meðal annars finna á heimasíðum eftirfarandi aðila: Stúdentagarðar, nemendaíbúðir Keilis, Byggingafélag námsmanna og Félagsstofnun stúdenta á Akureyri.

Algengt er að námsfólk leigi á hinum almenna leigumarkaði. Námsmenn frá Norðurlöndunum geta sótt um húsaleigubætur til sveitarfélaga að því tilskildu að þeir eigi lögheimili á Íslandi og séu með þinglýstan samning.

Tengt efni
  • Húsnæði á Íslandi

    Hér má finna upplýsingar um húsnæðiskerfið á Íslandi, um kaup, kaupleigu og leigu á húsnæði. Einnig eru hér upplýsingar um húsaleigubætur.

  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.


 

Vantar þig nánari upplýsingar?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.