Document Actions

Menntakerfið á Íslandi

Hér má finna upplýsingar um íslenskt menntakerfi, allt frá leikskóla til háskóla auk fullorðinsfræðslu. Sérstaklega er fjallað um íslenskukennslu fyrir útlendinga og nám sem fer fram á ensku.

Islands Universitet
Ljósmyndari
Sigurður Ólafsson/norden.org

Íslenskt menntakerfi

Menntakerfið á Íslandi skiptist í fjögur stig:

  • Leikskóli fyrir börn á aldrinum 2-6 ára
  • Grunnskóli fyrir börn á aldrinum 6-16 ára
  • Framhaldsskóli fyrir 16-20 ára, eða alla þá sem hafa lokið skyldunámi (grunnskóla) eða eru orðnir 18 ára. Í sumum framhaldsskólum má finna styttri námsleiðir á borð við læknaritaranám og leiðsögumannanám þar sem stúdentspróf er inntökuskilyrði.
  • Háskóli fyrir þá sem hafa lokið framhaldsskóla, oftast 20 ára og eldri

Þrjú stig háskólanáms á Íslandi

Háskólanám á Íslandi skiptist eftir stigum; grunnnám, framhaldsnám og doktorsnám.

Grunnnám er fyrsta háskólagráða og tekur námið að jafnaði þrjú ár sem samsvarar 180 ECTS einingum. Því lýkur með BA, BS eða B.Ed. gráðu. Einnig er boðið upp á styttra nám til diplómagráðu.

Meistaranám lýkur með MA, MS eða M.Ed. gráðu. Námið tekur að jafnaði tvö ár.

Í vissum fögum eru námsleiðir lengri og geta tekið fjögur til sex ár. Hjúkrunarfræði til BS prófs er fjögur ár. Aðrar lengri gráður teljast til kandidat eða meistaragráðu s.s. ljósmæðranám, lögfræði eða læknanám.

Doktorsnám er í boði í ákveðnum fögum. Það tekur að jafnaði þrjú til fjögur ár og því lýkur með Ph.d. gráðu.

Hagnýtar upplýsingar um íslenska háskóla

Á Íslandi bjóða sjö skólar upp á nám á háskólastigi, bæði ríkisreknir háskólar og einkaskólar. Aðgangskröfur í háskólanám eru yfirleitt að nemandi hafi lokið stúdentsprófi eða sambærilegu námi. Í einhverjum tilfellum er boðið upp á sérstaka fornámsdeild fyrir þá sem ekki hafa lokið stúdentsprófi auk þess sem starfsreynsla er metin í vissum tilfellum.

Oftast er umsóknarfrestur í maí eða júní fyrir þá sem hyggjast hefja grunnnám að hausti en misjafnt er eftir skólum og námsgreinum hvort mögulegt er að hefja nám á vorönn. Þá er umsóknarfrestur oft seint árið á undan, í október eða nóvember. Í ákveðnum fögum þarf að þreyta inntökupróf. Aðrar dagsetningar gilda þó að jafnaði vegna umsókna um framhaldsnám í háskólum.

Í einkareknum háskólum eru greidd skólagjöld en í ríkisreknum háskólum er greitt skráningargjald.

Meginreglan er sú að nám í íslenskum menntastofnunum fer fram á íslensku. Undantekningar eru þó á þessu bæði í grunn- og framhaldsnámi. Nám í erlendum tungumálum fer þannig að mestu leyti fram á viðkomandi tungumáli og eins eru í boði örfáar námsleiðir á grunnstigi sem kenndar eru alfarið á ensku.

Margir háskólar bjóða upp á einstök námskeið eða heilar námsleiðir á ensku. Á heimasíðu Study in Iceland má finna lista yfir námsleiðir í grunnnámi, meistaranámi og doktorsnámi sem fram fer á ensku.

Námsefni í flestum fögum er á ensku, hins vegar er námsefni í staðbundnum fögum eins og lögfræði á íslensku. Í vissum fögum er hluti námsefnis á norðurlandatungumálum.

Allar upplýsingar um skóla, hvort heldur um er að ræða grunnskóla, framhaldsskóla, háskóla eða aðrar menntastofnanir er að finna á heimasíðu Mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins veitir upplýsingar og aðstoð vegna þátttöku í fjölþjóðlegum samstarfsáætlunum í menntamálum. Hún þjónar stúdentum sem fara utan sem skiptinemar og aðstoðar þá sem koma til Íslands.

Á heimasíðu Alþjóðskrifstofu má finna upplýsingar um háskóla á Íslandi, skiptinám og ýmsa styrki til náms. Flestir háskólar og margar deildir innan þeirra eru einnig með alþjóðafulltrúa sem aðstoðar erlenda nema.

Fullorðinsfræðsla

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auðveldar þátttöku fullorðinna í námi. Lögð er áhersla á að fullorðnir sem ekki hafa lokið formlegu námi á framhaldsskólastigi eigi kost á fjölbreyttum námstækifærum þar sem fyrra nám, námskeið og lífs- og starfsreynsla er metin.

Fræðslu- og símenntunarstofnanir eru reknar víða um land auk þess sem framhaldsskólar bjóða upp á nám í öldungadeildum. Á heimasíðu ráðuneytisins má finna upplýsingar um fullorðinsfræðslu.

Leikn er sameiginlegur vettvangur aðila í fullorðinsfræðslu á Íslandi og málsvari þeirra gagnvart stjórnvöldum. Tilgangur samtakanna er að efla fræðslu fullorðinna á Íslandi. Á heimasíðu samtakanna má finna lista yfir aðila í fullorðinsfræðslu.

Endurmenntun Háskóla Íslands býður upp á ýmsar námsleiðir sem og starfstengd styttri námskeið, réttindanám á vegum sendiráða og stök námskeið á meistarastigi. Aðrir háskólar bjóða einnig upp á endurmenntun í formi námskeiða.

Mörg stéttarfélög á Íslandi veita félagsmönnum sínum styrki til námskeiða eða annars konar menntunar. Eins halda stéttarfélögin námskeið sem yfirleitt hafa það að markmiði að efla færni þátttakenda og auka hæfni þeirra í starfi. Á vefnum Námskeið.is eru upplýsingar um námskeið af ýmsu tagi á vegum einkaaðila.

Íslenskukennsla fyrir útlendinga má finna hjá ýmsum stofnunum og námsflokkum í þéttbýli víðs vegar um landið. Námskeiðsgjöld vegna námskeiða í íslensku fyrir útlendinga eru yfirleitt fremur lág þar sem Menntamálaráðuneytið veitir styrki til kennsluaðila.  Sjá nánar á heimasíðum Fjölmenningarseturs og Mímis.

Tengt efni

 

Vantar þig nánari upplýsingar?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.