Æðri menntun í Danmörku
Eftirfarandi eru upplýsingar um æðri menntun í Danmörku
Námsleiðir í æðri menntun í Danmörku eru þrjár: stutt nám, meðallangt nám og langt nám
Stutt æðri menntun
Stutt æðri menntun er almennt tveggja ára nám, en getur verið lengra.
Þetta er m.a. hönnunarnám, stutt verslunarnám og nám í skapandi greinum.
Meðallöng æðri menntun
Meðallöng æðri menntun er yfirleitt nám í sérstökum greinum og er 3 - 4 ára nám.
Þetta á m.a. við um grunnskólakennaranám og leikskólakennaranám, og einnig um tungumálanám og nám í upplýsingatækni.
Löng æðri menntun
Löng æðri menntun er 3 - 6 ára nám. Námið er rannsóknanám sem gefur breiða faglega þekkingu og sértæka kunnáttu.
Í Danmörku er BA/BS nám, þriggja ára nám. Að loknu BA/BS námi er hægt að bæta við tveggja ára námi til að frá kanditatspróf/meistaragráðu.
Margir velja einnig að fara í starfsþjálfun í stuttan tíma, oftast nær í hálft ár.
Flestir vinnustaðir sem taka við fólki í starfsþjálfun ráða eingöngu þá sem hafa lokið BA/BS prófi í sínu fagi.
Inngönguskilyrði
Norrænir ríkisborgarar eiga sama rétt til að sækja um inngöngu og danskir ríkisborgarar. Allir umsækjendur með erlend prófskírteini þurfa þó að sækja um í síðasta lagi 15. mars kl. 12.
Námspláss skiptast milli tveggja kvóta: „kvóta 1" og „kvóta 2". Norrænir ríkisborgarar eru metnir bæði í kvóta 1 og kvóta 2.
Í kvóta 1 er inngönguskilyrði meðaleinkunn þess prófs sem til þarf til að sækja um inngöngu. Það er meðaltal fyrsta prófs sem gildir og því eru einkunnir úr fögum sem bætt hefur verið við ekki teknar með í meðaltali í kvóta 1. Þó svo að einstaklingur hafi bætt meðaltalseinkun sína eftir stúdentspróf með viðbótarnámskeiðum, er einungis hægt að nýta meðaltalseinkunn upprunalega prófsins, þegar sótt er um inngöngu í æðri menntun í Danmörku. Viðbótarnám er stundum hægt að nýta til að uppfylla kröfur í einstökum fögum.
Í kvóta 2 er einstaklingur metinn út frá uppsafnaðri reynslu og námi, sem getur verið starfsreynsla, viðbótarnám, lýðháskóladvöl og annað sambærilegt háð stofnun eða námsleið.
Nánari upplýsingar á optagelse.dk og á borger.dk.s vefsíðum um menntun í Danmörku fyrir norræna ríkisborgara.
Viðbótareiningar
Ef einstaklingur hefur tekið námskeið í einni námsleið, getur hann sótt um að fá eitt eða fleiri fög metin sem hluta af nýju námi.
Alltaf skal spyrjast fyrir á námstaðnum.
