Document Actions

Einkunnaskali í danska menntakerfinu

Hér eru upplýsingar um einkunnaskala sem notaður er í Danmörku og hvernig erlendar einkunnir eru umreiknaðar í danskar einkunnir.

Anteckningar
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Í öllu dönsku skólakerfi frá grunnskóla til háskóla er notaður svonefndur sjöþrepaskali.

Hæsta einkunn er 12. Hún samsvarar A í ECTS-skalanum. Versta einkunn er -3. Hún samsvarar F á ECTS-skalanum.

Eftirfarandi einkunnir eru gefnar:

  • 12. samsvarar A í ECTS-skalanum.
  • 10. samsvarar B í ECTS-skalanum.
  • 7. samsvarar C í ECTS-skalanum.
  • 4. samsvarar D í ECTS-skalanum.
  • 02. samsvarar E í ECTS-skalanum.
  • 00. samsvarar Fx í ECTS-skalanum.
  • -3. samsvarar F í ECTS-skalanum.

Nánari upplýsingar um danska einkunnarkerfið eru á vefsíðu Styrelsen for International Uddannelses netsted [en].

Fyrri einkunnarskali: 13-skalinn

Nýting sjöþrepaskalans hófst skólaárið 2006/2007 og kom hann í stað fyrri skala þar sem einkunnir voru gefnar frá 00 upp í 13.

Umreikningstafla frá 13 skalanum í sjöþrepaskalann er á vefsíðu menntamálaráðuneytisins.

Umreikningur erlendra einkunna yfir í danskar einkunnir

Stjórn alþjóðlegar menntunnar í Danmörku sér um að samþykkja hæfni erlendra umsækjenda.

Á vefsíðu stjórnar alþjóðlegrar menntunar eru töflur sem sína umreikning erlendra einkunna yfir í danskar einkunnir.

Upplýsingarnar eru einungis á dönsku. Velja skal heimaland í yfirliti og „einkunn" í neðsta gráa yfirlitsborðanum.

Tengt efni

 

Vantar þig nánari upplýsingar?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.