Húsnæði fyrir námsfólk í Danmörku
Eftirfarandi eru upplýsingar um húsnæði fyrir námsfólk í Danmörku
Ef ekki tekst að finna íbúð er hægt að sækja um húsnæði á stúdentagarði.
Yfirleitt er ódýrara að búa á stúdentagarði en í íbúðum en rýmið er að sjálfsögðu minna.
Húsaleigan er lág og oft er erfitt að finna íbúðir og því er biðlistinn á stúdentagörðum yfirleitt langur.
Þess vegna er ráðlegt að skrá sig eins snemma og hægt er á biðlista að húsnæði á stúdentagörðum.
Til þess að sækja um herbergi á stúdentagörðum er haft beint samband við stúdentagarðinn eða námsráðgjafa á menntastofnuninni þar sem námið er stundað.
