Námsstyrkir í Danmörku (SU)
Eftirfarandi eru upplýsingar um menntunarstyrk ríkisins í Danmörku
Menntunarstyrkur ríksins (SU)
Danskir námsmenn fá fjárhagsaðstoð (SU) á meðan þeir stunda nám. Danski námsstyrkurinn er hár miðað við flest önnur lönd.
SU er annars vegar styrkur og hins vegar lán. Margir kjósa einnig að vinna samhliða námi.
SU-styrkinn þarf ekki að greiða tilbaka til ríkisins, en lánið greiðist tilbaka að námi loknu.
Mikilvægt er að hafa í huga að það eru takmörk fyrir því hversu mikið námsmenn mega hafa í tekjur á meðan þeir eru í námi og fá SU. Ef farið er yfir tekjumörk, þurfa námsmenn að endurgreiða hluta SU-styrksins.
Réttur erlendra ríkisborgara til SU
Yfirleitt eiga ríkisborgarar annarra norrænna ríkja að sækja um námsstyrki til heimalands. Nánari upplýsingar eru á meðfylgjandi vefsíðum:
Erlendir ríkisborgar geta átt rétt á SU uppfylli þeir viss skilyrði.
Aðrir geta notið sömu réttinda og danskir ríkisborgarar þegar sótt er um SU, annars vegar samkvæmt dönskum reglum og hins vegar ESB-reglum:
- Nánar á su.dk.
Réttindi samkvæmt dönskum reglum
Einstaklingur getur fengið sömu réttindi og danskur ríkisborgari samkvæmt dönskum reglum,
- hafi hann flutt til Danmerkur með foreldrum sínum fyrir 20 ára aldur. Skilyrði er að fjölskyldan eigi lögheimili í Danmörku og að viðkomandi ásamt foreldrum búi þar.
- ef viðkomandi hefur búið í Danmörku a.m.k. í tvö ár áður en sótt er um SU og jafnframt verið giftur eða í skráðu sambandi við danskan ríkisborgara í a.m.k. tvö ár. Skilyrði er að viðkomandi sé giftur eða í skráðu sambandi þegar sótt er um. Einstaklingur sem hefur búið í Danmörku og unnið a.m.k. 30 tíma á viku í tvö ár samfellt áður en nám er hafið, nýtur einnig sömu réttinda og danskur ríkisborgari.
- ef viðkomandi hefur búið samfellt í Danmörku í a.m.k. fimm ár áður en sótt er um, án þess að ákveðið hafi verið að stunda nám í Danmörku.
- ef viðkomandi er þýskur ríkisborgari og tilheyrir danska minnihlutanum í Suður-Slesvig.
- ef viðkomandi heyrir undir § 2, málsgrein 2 (flóttamenn) eða § 2, málsgrein 3 (útlendingar sem flytjast til lands vegna fjölskyldutengsla (familiesammenførte)) í samþættingarlögunum.
Réttindi samkvæmt ESB reglum
Einstaklingur getur notið sömu réttinda og danskur ríkisborgari samkvæmt ESB reglum,
- ef hann er ESB eða EES ríkisborgari og launþegi eða sjálfstæður atvinnurekandi í Danmörku.
- ef hann er barn ESB eða EES ríkisborgara.
- ef maki hans er ESB eða EES ríkisborgari.
- ef foreldri hans er ESB eða EES ríkisborgari.
- ef hann er ESB eða EES ríkisborgari eða í fjölskyldu ESB eða EES ríkisborgara og hefur búið samfellt í Danmörku í a.m.k. fimm ár. Ef viðkomandi hefur dvalið samfellt utan Danmerkur í tvö ár fást ekki réttindi til SU styrks fyrr en eftir fimm ára samfellda dvöl í Danmörku.
SU til náms erlendis
Ef námsmaður vill stunda nám í öðru norrænu ríki, getur hann í flestum tilfellum flutt SU námsstyrkinn með sér.
Námið skal gefa almenn starfsréttindi í Danmörku og námið og skólinn verða að vera viðurkennd af opinberum stjórnvöldum í námslandinu.
Nánar um reglur sem gilda um SU styrkinn á: su.dk.
