Document Actions

Sjúkratryggingar námsmanna í Danmörku

Eftirfarandi eru upplýsingar um sjúkratryggingar námsmanna í Danmörku

Stetoskop

Munið að vera tryggð!

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Einstaklingar sem ekki eru skráðir í þjóðskrá í Danmörku

Ef norrænn ríkisborgari flytur til Danmerkur og býr þar skemur en 6 mánuði er yfirleitt ekki litið á það sem búferlaflutninga.

Óski einstaklingur hins vegar eftir því getur hann skráð sig í þjóðskrá: folkeregistreret í Danmörku þegar dvalið er þar í a.m.k. 3 mánuði.

Sé viðkomandi ekki skráður í þjóðskrá í Danmörku er hann tryggður af sjúkratryggingum heimalands síns.

Þó getur fólk að sjálfsögðu leitað meðhöndlunar á dönskum sjúkrahúsum: Det danske sygehusvæsen ef skyndileg veikindi koma upp.

Einstaklingar sem eru skráðir í þjóðskrá í Danmörku

Hyggist einstaklingar búa lengur en 6 mánuði í Danmörku þurfa þeir að skrá sig: folkeregistreresí því sveitarfélagi sem þeir setjast að í.

Þeir fá þá sjúkrasamlagsskírteini sem veitir rétt til meðhöndlunar í dönsku heilbrigðiskerfi: det danske sygehusvæsen til jafns á við danska ríkisborgara.

Mikilvægt er að skrá sig inn í landið áður en 6 mánuðir eru liðnir – að öðrum kosti getur fólk lent í því að vera hvorki sjúkratryggt í heimalandinu né Danmörku.

Ef það liggur ljóst fyrir að fólk ætli að dveljast lengur en 6 mánuði í Danmörku borgar sig að skrá sig inn í landið eins fljótt og unnt er.

Tengt efni
  • Öresund Direkt (Samtök)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.

  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Staðreyndir um Danmörk

    Danmörk liggur syðst Norðurlandanna. Landið sem er lítið samanstendur af mörgum eyjum, það er þéttbýlt og umkringt yndislegum ströndum.


 

Vantar þig nánari upplýsingar?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.