Viðurkenning á prófgráðum í Danmörku
De nordiske lande har aftalt at anerkende hinandens adgangsgivende eksamener
- Ljósmyndari
- Johannes Jansson/norden.org
Norðurlöndin hafa gert með sér samning um að viðurkenna menntun sem veitir aðgang að námi, þ.e.a.s. lokapróf úr framhaldsskóla. Einnig hefur verið gerður samningur sem felur í sér að námsmaður sem hefur fasta búsetu í öðru norrænu ríki skuli hafa aðgang að æðri menntun á sömu forsendum og umsækjendur sem hafa fasta búsetu í landinu.
Samkvæmt Reykjavíkur-yfirlýsingunni frá árinu 2004 vinna Norðurlöndin einnig að fullkominni viðurkenningu á æðri menntun milli ríkjanna.
Nánar um norrænt samstarfstarf um gagnkvæma viðurkenningu á menntun hér.
Nánari upplýsingar um mat og viðurkenningu á erlendri menntun í Danmörku má finna hjá stofnun um alþjóðlega menntun (Styrelsen for International Uddannelse).
