Document Actions

Æðri menntun í Finnlandi

Upplýsingar um æðri menntun í Finnlandi, þ.e. á háskólastigi, svo og um Norræna samninginn um æðri menntun.

Orðabók
Ljósmyndari
Ane Cecilie Blichfeldt

 

Menntun á háskólastigi er í boði í 16 ríkisreknum háskólum, svo og ýmsum iðnháskólum, sem oft eru reknir sem sjálfstæð fyrirtæki og þá ýmist á vegum hins opinbera eða af einkaaðilum. Kennsla er í boði á finnsku, sænsku og ensku.

Iðnháskólar

Iðnháskólar veita menntun sem miðar að ástundun iðngreinar og oft einnig margvíslega aðra menntun á háskólastigi. Framhalds- eða iðnskólamenntun veitir hæfilegan grunn til slíks náms. Hægt er að sækja um skólavist að vori og hausti gegnum sameiginlegt umsóknakerfi og yfirleitt fara fram inntökupróf. Sé sótt um skólavist að vori er um fjölbreyttara námsval að ræða. Iðnháskólamenntun er í flestum tilvikum án endurgjalds.

Í flestum finnskum iðnháskólum er kennslan á finnsku, þótt einnig fyrirfinnist skólar þar sem alfarið er kennt á sænsku. Einnig standa margir iðnháskólar fyrir námslotum á ensku. Lista yfir allar námsleiðir á ensku má finna á vefnum Study in Finland, gagnagrunni á vegum CIMO (Center for International Mobility).

Það tekur um 3-4 ár að ljúka grunnnámi við iðnháskóla og er hluti þess starfsnám í eina önn. Til að fá inngöngu í framhaldsnám við iðnháskóla þarf nemandi að hafa lokið viðeigandi grunnnámi og auk þess starfað á sínu sviði í að minnsta kosti þrjú ár. Það tekur 1–1 ½ ár að ljúka framhaldsnámi við iðnháskóla, sé miðað við fullt nám.

Háskólar

Í háskólum og öðrum fræðilegum, æðri menntastofnunum, svo sem í tækniháskólum og listaháskólum, sameinast fræðilegar rannsóknir kennslu. Viðmiðunartími til að ljúka grunnnámi eða B.A. -gráðu er þrjú ár og framhaldsnámi eða M.A. -gráðu tvö ár. Eigi skal taka lengri tíma en sjö ár samanlagt að ljúka grunn- og framhaldsnámi. Samkvæmt ríkjandi verklagi ljúka nemendur fyrst grunnnámi og öðlast þannig réttindi til inngöngu í framhaldsnám við sömu deild. Að framhaldsnámi loknu er hægt að sækja um doktorsnám, annað rannsóknatengt framhaldsnám eða nám til sérfræðileyfis, sem veitir löggildingu í viðkomandi starfsgrein.

Háskólar eru ýmist ein- eða tvítyngdir (á finnsku og/eða sænsku). Eins er töluvert um kennslu og rannsóknir á ensku. Lista yfir allar námsleiðir á ensku má finna á Study in Finland.

Háskólanám er án endurgjalds, en nemendur þurfa að tilheyra nemendafélagi og greiða meðlimagjald til félagsins.

Frestur til umsóknar um háskólanám er á vorin, með fáeinum undantekningum. Sótt er um háskólavist gegnum sameiginlegt umsóknakerfi háskólanna. Ekki er víst að sérstök boð verði send út um inntökupróf og því þurfa nemendur sjálfir að henda reiður á tíma- og staðsetningu þeirra; þessar upplýsingar er yfirleitt auðvelt að nálgast á heimasíðum háskólanna. Frekari upplýsingar um námsleiðir má finna á Study in Finland og heimasíðum deilda innan háskólanna. Upplýsingar um sameiginlegt umsóknakerfi háskólanna má nálgast hér.

Norræni samningurinn um æðri menntun

Norræni samningurinn um æðri menntun tryggir öllum Norðurlandabúum umsóknarrétt til náms við opinberar háskólastofnanir á Norðurlöndum á sömu eða sambærilegum forsendum og heimamönnum. Samkvæmt samningnum er leyfilegt að viðurkenna nám sem lokið hefur verið í öðru Norðurlandi sem hluta af finnskri háskólagráðu. Hver menntastofnun fyrir sig sér um námsmat þar að lútandi. Það borgar sig að kanna með fyrirvara hvaða fylgiskjala finnskar menntastofnanir krefjast til að geta viðurkennt menntun frá öðru Norðurlandi.

Tengt efni

 

Vantar þig nánari upplýsingar?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.