Document Actions

Framhaldsskólanám í Finnlandi

Upplýsingar um framhaldsskólanám eða annað nám að loknum grunnskóla.

Einstaklingur sem lokið hefur grunnskólaprófi eða öðru sambærilegu námi getur sótt um inngöngu í framhaldsskóla. Framhaldsnám og sambærilega almenna menntun í Finnlandi veita menntaskólar og iðnskólar.

Einnig er mögulegt að ljúka tvöföldu prófi með samfléttun menntaskóla- og iðnnáms. Umsóknartími í framhaldsskóla er að vori gegnum sameiginlegt umsóknakerfi (á finnsku eða sænsku). Sækja má um námsstyrk til framhaldsnáms, að fullorðinsfræðslu undanskilinni. Í mörgum framhaldsskólum fá nemendur heitar máltíðir í hádeginu án endurgjalds.

Menntaskólar

Finnskir menntaskólar veita almenna, bóklega menntun. Meðallengd menntaskólanáms er þrjú ár og náminu lýkur alla jafna með stúdentsprófi. Menntaskólagengnir nemendur hafa rétt til áframhaldandi náms á háskólastigi, við annaðhvort háskóla eða iðnháskóla. Bæði ungt fólk og fullorðið getur stundað nám við menntaskóla. Auk hefðbundinnar námsheildar eru stök námskeið í boði.

Menntaskólar eru ýmist ríkisreknir eða einkareknir, en námið er ávallt án endurgjalds. Nemendur verða þó sjálfir að verða sér úti um námsefnið.

Í menntaskólum er yfirleitt kennt á finnsku eða sænsku. Í stærri borgum eru einnig alþjóðlegir menntaskólar, þar sem stunda má nám á t.d. ensku, þýsku eða frönsku,

Menntaskólanám má stunda á þrjá vegu: í dagskóla, sem er einkum ætlaður ungu fólki sem lokið hefur grunnskólaprófi þótt fullorðnir megi einnig sækja um; í öldungadeild, sem er einkum ætluð 18 ára og eldri og þar sem kennsla fer einnig fram á kvöldin; eða í fjarskóla, þar sem námið er aðallega fjarnám. Auk þess er m.a. hægt að sækja sumarskóla.

Frekari upplýsingar um menntaskólanám er að finna á heimasíðu Fræðsluráðs.

Iðnnám

Iðnnám er nátengt atvinnulífinu og miðar að því að ljúka prófi í ákveðinni iðngrein. Prófi má ýmist ljúka með hefðbundnu grunnnámi, með stöðuprófum og námsmati á forsendum starfsreynslu, eða á námssamningi.

Bæði ungt fólk og fullorðið getur sótt um inngöngu í grunnnám iðngreina. Námið er m.a. skipulagt af iðnskólum og fullorðinsfræðslumiðstöðvum. Auk kennslu iðngreina samanstendur námið að nokkru leyti af almennu námi, valfrjálsum einingum og yfirleitt einnig starfsnámi. Samhliða iðnnámi er hægt að stunda menntaskólanám eða gangast undir stúdentspróf.

Sá möguleiki að ljúka prófi gegnum stöðupróf og námsmat er ætlaður fullorðnu fólki sem þegar hefur aflað sér færni og starfsreynslu í viðkomandi fagi. Nemendur sýna þá fram á færni með sýnishornum af vinnu sinni, auk skriflegra og munnlegra verkefna. Fyrir þá námsleið er einnig undirbúningsnám í boði. Með stöðuprófum og námsmati má, auk grunngráðu, ljúka sérfagsgráðu þar sem krafist er dýpri þekkingar á einhverju sérsviði fagsins.

Iðngreinamenntun veitir aðgang að æðri menntun innan háskóla eða iðnháskóla.

Nánari upplýsingar um fagnám má finna á heimasíðu Fræðsluráðs.

Tengt efni
  • Samningur um norrænt menntunarsamfélag á framhaldsskólastigi (Samningur)

    Samningur milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um norrænt menntunarsamfélag á framhaldsskólastigi (sem tekur til almennra bóknáms- og starfsmenntaskóla)

  • Flytja til Finnlands

    Hér eru gagnlegar upplýsingar varðandi flutning til og búsetu í Finnlandi, sem gott er að hafa í huga meðan skipulag flutninga stendur yfir. Meðal efnisatriða eru flutningstilkynning, íbúðarleit, skólaganga og nám auk heilsugæslu og ellilífeyris. Einnig er vakin athygli á flipanum Flytja frá Finnlandi, en þar má lesa um flutningstengd atriði sem gott er að hafa í huga þegar flutt er frá Finnlandi til annars Norðurlands.

  • Flytja með börn til Finnlands

    Upplýsingar sem hafa ber í huga þegar flutt er með börn til Finnlands, til dæmis um ungbarnaeftirlit og foreldraorlof auk barnabóta og annarrar aðstoðar fyrir barnafjölskyldur.

  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.


 

Vantar þig nánari upplýsingar?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.