Upplýsingar um námsstyrk í Finnlandi, styrkinn sjálfan, úthlutunarskilyrði og önnur hlunnindi sem í boði eru fyrir námsfólk. Einnig upplýsingar um greiðslu finnsks námsstyrks til annarra landa.
Tilgangur námsstyrksins er að gera nemendum fjárhagslega fært að stunda fullt nám. Námsstyrkur er ætlaður nemendum á háskólastigi, öllum stigum iðnnáms, þeim sem taka einstök námskeið við menntaskóla (ekki þó nemendum í fullorðinsfræðslu) auk nemendum annarra, sértilgreindra stofnana.
Í námsstyrk felst
Ákvarðanir um úthlutun námsstyrks eru teknar af Almannatryggingastofnun Finnlands, Kansaneläkelaitos eða Kela.
Framfærslustyrkur er upphæð greidd af ríkinu, sem sótt er um til Almannatryggingastofnunar. Framfærslustyrkurinn er greiddur mánaðarlega inn á reikning viðkomandi. Almenn úthlutunarskilyrði framfærslustyrks eru hin sömu og fyrir námsstyrkinn almennt (sjá heimasíðu Almannatryggingastofnunar).
Framfærslustyrkur er aðeins greiddur þá mánuði sem nám stendur yfir. Yfir sumarmánuðina er framfærslustyrkur þá því aðeins greiddur ef viðkomandi stundar fullt nám um sumarið og uppfyllir skilyrði fyrir sumarnámsstyrk.
Nemandi getur fengið framfærslustyrk greiddan frá fyrsta degi næsta mánaðar eftir að hann nær 17 ára aldri. Nemendur undir 17 ára aldri fá greiddar barnabætur og fá því ekki námsframfærslustyrk.
Fái nemandi laun fyrir starfsnám eða nemastarf, eða styrk frá þeirri stofnun sem hann stundar nám við, getur það í vissum tilvikum komið í veg fyrir að hann fái framfærslustyrk.
Húsnæðisstyrkur er upphæð greidd af ríkinu, sem greidd er mánaðarlega inn á reikning viðkomandi. Húsnæðisstyrkur telst til skattfrjálsra tekna, sem þýðir að af honum er ekki innheimtur skattur. Almenn úthlutunarskilyrði húsnæðisstyrks eru hin sömu og fyrir námsstyrkinnalmennt.
Húsnæðisstyrkur eru aðeins greiddur þá mánuði sem nám stendur yfir og vegna íbúðar, hverrar staðsetning gerir viðkomandi kleift að stunda nám sitt. Yfir sumarmánuðina er húsnæðisstyrkur þá því aðeins greiddur ef viðkomandi stundar fullt nám um sumarið og uppfyllir skilyrði fyrir sumarnámsstyrk.
Húsnæðisstyrkur er greiddur þá mánuði sem nám stendur yfir, búi viðkomandi í leiguhúsnæði, húsnæði í eigu búsetafélags (búseturéttur) eða húsnæði sem er í hlutaeign viðkomandi. Ekki er greiddur húsnæðisstyrkur, búi viðkomandi í foreldrahúsum eða íbúð í sinni eigu eða maka síns. Búi viðkomandi með barni sínu eða maka síns er húsnæðisstyrkur námsmanna ekki greiddur, heldur heyra slík tilfelli undir almenna húsnæðisstyrkjakerfið.
Námslán er ríkistryggt lán sem skylt er að endurgreiða. Eftir að námsmaður hefur fengið ríkisábyrgð lánsins samþykkta getur hann sótt um lánið hjá banka að eigin vali. Þar sem námslánið er ríkistryggt þarf enga aðra tryggingu fyrir láninu. Ríkisábyrgðin er í gildi í að hámarki 30 ár frá fyrstu útborgun lánsins.
Viss hluti lánsskilyrðanna ákvarðast af ríkisábyrgðinni. Önnur skilyrði lánsins, t.d. vexti og tímaramma endurgreiðslu, semur námsmaður sjálfur um við bankann.
Almenn skilyrði fyrir veitingu námsstyrks eru
Styrkhæfir mánuðir námsársins eru allajafna frá og með september til og með maí. Sækja þarf sérstaklega um námsstyrk vegna sumarnáms. Upphæð styrksins og fjöldi styrkhæfra mánaða veltur á eðli námsins sem sótt er um styrkinn til. Veiting og upphæð húsnæðisstyrks veltur aftur á móti á húsnæðisaðstæðum og því hvernig húsnæðið er fjármagnað.
Sé umsækjandi yngri en 18 ára hafa tekjur foreldra áhrif á upphæð húsnæðisstyrks. Tekjur maka hafa ekki áhrif á upphæð húsnæðisstyrks. Viss tekjutakmörk gilda um námsstyrkinn; aðeins er leyfilegt að hafa tekjur upp að vissu marki auk styrksins. Þetta þurfa þeir nemendur að hafa í huga sem vinna samhliða námi sínu. Sé farið yfir tekjutakmörk þarf að endurgreiða hluta námsstyrksins.
Meðal annarra hlunninda fyrir námsfólk er máltíðastyrkur, sem heldur verðlagi í mötuneytum stúdenta hagstæðu. Til að fá afslátt í mötuneytunum þarf að sýna stúdentakort eða máltíðastyrkjakort Almannatryggingastofnunar.
Nemendur æðri menntastofnana geta einnig fengið hluta námslána frádráttarbæran frá skatti, sé námi lokið á tilætluðum tíma. Einnig er hægt að fá starfslífeyri á forsendum náms sem lokið er.
Til náms á framhaldsskólastigi er hægt að fá skólaferðastyrk, sé vegalengdin í skólann að minnsta kosti 10 kílómetrar og kostnaður meiri en 54 evrur á mánuði.
Ríkisborgarar hinna Norðurlandanna geta fengið námsstyrk, hafi þeir fasta búsetu í Finnlandi og dvelji þar af öðrum orsökum en til náms, til dæmis vegna atvinnu, uppruna, fjölskyldutengsla eða hjúskapar. Námsstyrksumsókn þarf að fylgja fylgiskjal OT10 fyrir erlenda ríkisborgara.
Fjölskyldumeðlimur norræns ríkisborgara getur einnig fengið námsstyrk, sé hann skráður til dvalar í Finnlandi eða hafi þar dvalarleyfi.
Sé nám meginástæða flutnings til Finnlands hefur viðkomandi ekki rétt á finnskum námsstyrk, heldur skal snúa sér til viðeigandi yfirvalda í heimalandi sínu. Frekari upplýsingar um námsstyrk má finna á heimasíðu Almannatryggingastofnunar.
Að vissum skilyrðum uppfylltum getur nemandi fengið finnskan námsstyrk greiddan vegna náms, eða hluta þess, sem stundað er við menntastofnun erlendis. Nám eða starfsnám sem stundað er erlendis þarf þá að tengjast því námi sem viðkomandi hefur stundað í Finnlandi, eða að samsvara styrkhæfu námi í Finnlandi.
Meginreglan er að aðeins finnskir ríkisborgarar fái námsstyrk vegna náms sem að öllu leyti er stundað í öðru landi en Finnlandi. Í vissum tilvikum eru þó gerðar undantekningar á þessu fyrir ríkisborgara annarra landa. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Almannatryggingastofnunar.
Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.