Tungumálanámskeið í Finnlandi
Upplýsingar um hvar finnska og önnur norðurlandamál eru kennd í Finnlandi.
Finnskukennsla í Finnlandi
Byrjenda- og framhaldsnámskeið í finnsku eru í boði um allt landið, til dæmis í símenntastofnunum sem finnast í nær hverju sveitarfélagi. Kennslan fer fram á t.d. finnsku, sænsku eða ensku.
Lista yfir allar símenntastofnanir Finnlands má nálgast á heimasíðu Sambands finnskra símenntastofnana.
Símenntastofnanir tíu stærstu bæjarfélaganna eru:
- Helsingfors stad svenska arbetarinstitutet (Helsinki)
- Esbo stad arbetarinstitutet (Espoo)
- Tampereen työväenopisto (Tampere)
- Vantaan aikuisopisto (Vantaa)
- Turun suomenkielinen työväenopisto (Turku, hægt að velja ensku til hliðar)
- Oulun kansalaisopisto (Oulu, aðeins upplýsingar á finnsku)
- Jyväskylän kansalaisopisto (Jyväskylä)
- Lahden Wellamo-opisto (Lahti, aðeins upplýsingar á finnsku)
- Kuopion kansalaisopisto (Kuopio)
- Kouvolan kansalaisopisto (Kouvola)
Finnskukennsla í formi einstakra námskeiða fer einnig fram í opnum háskólum í Helsinki, Oulu og Rovaniemi. Nánari upplýsingar má nálgast á vefsvæði opnu háskólanna í Finnlandi.
Ýmsir lýðháskólar víða um land bjóða einnig upp á tungumálanámskeið. Nánari upplýsingar um starfsemi lýðháskólanna má nálgast hér.
CIMO (Center for International Mobility) stendur einnig fyrir finnskukennslu í Finnlandi, m.a. sumarnámskeiðum. CIMO stendur einnig fyrir námskeiðum og starfsnámi í háskólum erlendis fyrir erlenda finnskunema.
Kennsla norðurlandamála í Finnlandi
Sænskunámskeið eru í boði víða um landið í símenntastofnunum, opnum háskólum og lýðskólum. Langoftast fer kennslan fram á finnsku.
Minna er um kennslu í dönsku, norsku og íslensku, en símenntastofnanir stærstu sveitarfélaganna, svo og opnir háskólar, tungumálamiðstöðvar háskóla, sumarmenntaskólar (aðeins upplýsingar á finnskuog lýðháskólarbjóða þó upp á námskeið í einhverju mæli. Einnig stendur Norræna félagið í Finnlandi, Nifin, fyrir námskeiðum á höfuðborgarsvæðinu. Samvinnufélag Norðurlandabúa, Pohjola-Norden, býður einnig upp á námskeið í norðurlandamálum öðru hverju. Kennsla í dönsku, norsku og íslensku fer yfirleitt fram á sænsku eða finnsku.
