Document Actions

Viðurkenning á námi í Finnlandi

Upplýsingar um möguleika á að fá prófgráður frá öðrum löndum viðurkenndar til frekara náms eða vinnu í Finnlandi. Einnig upplýsingar um starfsgreinar sem þarf að fá samþykki viðkomandi yfirvalda til að mega stunda í Finnlandi og hvernig viðurkenning fæst á finnskum prófgráðum í öðrum löndum.

 

Ungdommar

 

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

 

Sé flutt til Finnlands til náms eða starfs þarf fyrra nám að hljóta fræðilega viðurkenningu og innan vissra starfsgreina er krafist faglegrar viðurkenningar á fyrra námi.

Fræðileg viðurkenning

Í fræðilegri viðurkenningu prófgráðu felst annars vegar inntaka í nám á forsendum erlendrar prófgráðu og hins vegar mat á námi, sem stundað var erlendis, til hluta af gráðu sem ljúka skal í Finnlandi. Ákvarðanir um námsmat eru teknar innan viðkomandi háskóla eða námsstofnunar. Norræni Sigtuna-samningurinn tryggir að skólar á háskólastigi á Norðurlöndunum viðurkenni gráður hver frá öðrum.

Frekari upplýsingar um fræðilega viðurkenningu veitir Fræðsluráð Finnlands, Opetushallitus.

Fagleg viðurkenning

Með faglegri viðurkenningu prófgráðu er átt við mat á þeirri hæfni sem erlend gráða veitir til starfs sem gerir formlegar kröfur um hæfni.

Ákvörðun um hæfni til starfa á vegum ríkis eða sveitarfélags er tekin af fræðsluráði. Ákvarðanir um starfsréttindi eru teknar af yfirvöldum innan viðkomandi geira, til dæmis hjá leyfis- og eftirlitsskrifstofu velferðar- og heilbrigðissviðs, Valvira, vegna starfa innan heilbrigðisgeirans.

Löggiltar starfsstéttir í Finnlandi

Með löggiltri starfsstétt er átt við að um starfsemi hennar gildi lögbundnar hæfniskröfur, sem kveði á um tiltekið nám eða prófgráðu. Til löggiltra starfsstétta teljast stöður á vegum hins opinbera, svo og starfsgreinar sem sérstakt leyfi þarf til að mega stunda. Ákvarðanir um leyfisveitingar vegna löggiltra starfa eru teknar af yfirvaldi innan viðkomandi geira.

Löggiltar starfsstéttir eru til dæmis:

  • björgunarsveitarmaður, bókavörður, fangavörður, félagsliði, félagsráðgjafi, forskólakennari, íþróttakennari, kennari, leikskólakennari, lögregluþjónn, námsráðgjafi, sérkennari, vaktmaður á neyðarmóttöku (ákvörðun um starfsleyfi tekur fræðsluráð)
  • efnafræðingur á sjúkrahúsi, fótaaðgerðafræðingur, geðlæknir, hjúkrunarfræðingur, iðjuþjálfi, ljósmóðir, lyfjafræðingur, lyfsali, læknir, nuddari, næringarfræðingur, osteópati, réttingalæknir (naprapati), sálfræðingur, sjóntækjafræðingur, sjúkraþjálfari, starfsmaður á rannsóknarstofu, talmeinafræðingur, tannfræðingur, tannheilsufræðingur, tannlæknir, tannsmiður (ákvörðun um starfsleyfi tekur leyfis- og eftirlitsskrifstofa velferðar- og heilbrigðissviðs, Valvira)
  • djákni, prestur (ákvörðun um starfsleyfi tekur Kirkjuráð Finnlands,Kirkkohallitus)
  • kranastjóri, kafari (ákvörðun um starfsleyfi tekur skrifstofa öryggismála á vinnustöðum í Uusimaa-héraði, Uudenmaan työsuojelupiirin työsuojelutoimisto)
  • sótari (ákvörðun um starfsleyfi taka héraðsyfirvöld í Suður-Finnlandi, Etelä-Suomen aluehallintovirastoi)
  • sprengjumaður [hleður dínamíti í kletta eða grjót sem á að sprengja] (ákvörðun um starfsleyfi taka héraðsyfirvöld í Vestur- og Innra-Finnlandi, Länsi- ja Sisä-Suomen aluehallintovirasto)
  • einkaleyfalögfræðingur (ákvörðun um starfsleyfi tekur Einkaleyfa- og skrásetningarráð, Patentti- ja rekisterihallitus)

 

Aðrar starfsgreinar sem krefjast leyfis eru eftirfarandi:

  • starfsfólk á sviði siglinga og sjómennsku (ákvörðun um starfsleyfi tekur Umferðaröryggisráð, Trafi)
  • rafvirki (ákvörðun um starfsleyfi tekur Seti ehf.)

Viðurkenning finnskra prófgráða í öðrum löndum

Það er alþjóðlegt verklag við viðurkenningu prófgráða, að sú stofnun sem tekur á móti námsfólki sér um að meta prófgráðu erlendis frá og þá hæfni sem hún veitir. Finnsk yfirvöld hafa engin bein áhrif á ákvarðanatökur erlendra yfirvalda í þessum efnum. Þó að vissar almennar reglur finnist í tilskipunum Evrópusambandsins eða alþjóðasamningum heldur hvert land fyrir sig ákvörðunarrétti um framkvæmd reglnanna og hvernig þeim skuli beitt í einstökum tilvikum.

Samskipti vegna verklags við viðurkenningar á almennum prófgráðum innan EB fara fram gegnum fræðsluráð. Hlutverk fræðsluráðs í því samhengi er að veita upplýsingar um prófgráður og hæfniskröfur, svo og um viðurkenningarferli prófgráða í Finnlandi og öðrum aðildarríkjum.

Fræðsluráð veitir þeim ráðgjöf eftir þörfum sem hafa lokið prófi í Finnlandi og vilja fá námið viðurkennt í öðru aðildarlandi.

Við atvinnuleit í öðrum löndum borgar sig að kynna sér fyrirfram hjá viðkomandi yfirvöldum hvernig viðurkenningarferli prófgráðu fer þar fram og hvaða skjöl eru nauðsynleg í því sambandi.

Þegar sóst er eftir viðurkenningu á prófgráðu í öðru landi má nýta skjöl Evrópska starfsmenntavegabréfsins til stuðnings, sérstaklega þau viðhengi prófskírteina sem ætluð eru til alþjóðlegrar notkunar. Einnig má óska eftir vitnisburði um finnska prófgráðu frá fræðsluráði.

Fræðsluráð veitir, gegn gjaldi, faglegan vitnisburð til alþjóðlegrar notkunar um finnskar prófgráður. Slíkir vitnisburðir eru veittir um gráður sem hefur verið lokið og sem falla undir opinbert prófgráðuskipulag Finnlands.

Sjá einnig:

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Æðri menntun í Finnlandi

    Upplýsingar um æðri menntun í Finnlandi, þ.e. á háskólastigi, svo og um Norræna samninginn um æðri menntun.


 

Vantar þig nánari upplýsingar?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.