Document Actions

Nám í Noregi

Upplýsingar um það að stunda nám í Noregi
Menntakerfið í Noregi
Í Noregi eru 7 háskólar, 33 tækniháskólar og sjö vísindaháskólar auk nokkurra einkarekinna æðri menntastofnana. Háskólarnir og tækniháskólarnir bjóða upp á nám til BA/BS prófs og meistaraprófs, annars vegar þriggja ára og hins vegar fimm ára nám. Hér eru nánari upplýsingar um umsóknarferli, skólagjöld og inntökuskilyrði menntastofnana í Noregi.
Námsstyrkir frá Noregi
Flestir norrænir námsmenn í Noregi fá námsstyrki frá heimalandi sínu. Norrænir nemendur geta, að uppfylltum vissum skilyrðum, einnig fengið námsstyrk frá Noregi. Norskir námsmenn eiga rétt á stuðningi frá Lánasjóðnum til náms á Norðurlöndum. Nánari upplýsingar um námsstyrki frá Noregi.
Námsmannaíbúðir í Noregi
Félagsstofnun stúdenta leigir eingöngu út íbúðir til námsmanna,sem stunda nám við háskóla og tækniháskóla í Noregi. Námsmannaíbúðirnar eru oftast nálægt skólanum og er leigan lægri en á almennum leigumarkaði. Nánari upplýsingar um námsmannaíbúðir í Noregi.
Viðurkenning á hæfni í Noregi
Hér eru nánari upplýsingar um hvernig hægt er að fá erlenda menntun metna í Noregi og hvaða störf eru lögbundin þar.
Almannatryggingar námsmanna í Noregi
Þeir sem hyggjast dvelja lengur en 6 mánuði í Noregi þurfa að skrá sig hjá Hagstofu. Hér eru upplýsingar um kröfur og réttindi þeirra sem stunda nám í Noregi og eru ríkisborgarar Norðurlanda og EES ríkja, og um réttindi norskra ríkisborgara sem stunda nám á Norðurlöndum.
Tengt efni
  • Vinna í Noregi

    Er nauðsynlegt að sækja um atvinnu- og dvalarleyfi til að geta starfað í Noregi? Greiða einstaklingar sem starfa í Noregi skatta? Hvað með þá sem einnig starfa í öðru norrænu ríki? Hér eru upplýsingar um allt sem lýtur að því að starfa í Noregi.

  • Staðreyndir um Noreg

    Olía og fjöll eru fyrir marga samheiti fyrir Noreg. Ægifögur náttúra teygir sig frá strandsvæðum í suðri í gegnum stór fjallasvæði í Mið-Noregi í miðnætursólina á Norðurkollu.

  • Landamæraþjónustan (Samtök)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.

  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Flytja til Noregs

    Er hægt að taka bílinn með þegar flutt er til Noregs? Hvað þarf að vinna lengi til að eiga rétt á lífeyri? Hver hefur kosningarétt í Noregi? Hér eru upplýsingar um réttindi og skyldur þeirra sem flytja til Noregs og um við hvaða stjórnvöld skal hafa samband.


 

Vantar þig nánari upplýsingar?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.