Almannatryggingar námsmanna í Noregi
Þeir sem hyggjast dvelja lengur en 6 mánuði í Noregi þurfa að skrá sig hjá Hagstofu. Hér eru upplýsingar um kröfur og réttindi þeirra sem stunda nám í Noregi og eru ríkisborgarar Norðurlanda og EES ríkja, og um réttindi norskra ríkisborgara sem stunda nám á Norðurlöndum.
Erlendir nemendur í Noregi
Norrænn ríkisborgari sem flytur til Noregs og dvelur þar skemur en 6 mánuði þarf ekki að skrá sig inn í landið hjá Hagstofu Noregs. Nemendur sem dvelja í Noregi allt að 6 mánuði eiga aðild að almannatryggingum í heimalandi sínu. En þeir eiga rétt til bráðaþjónustu sem er sambærileg við að þeir væru skráðir inní landið, gerist þess þörf.
Þeir sem hyggja á dvöl í Noregi lengur en 6 mánuði eiga að skrá sig hjá Hagstofu. Við skráninu hjá Hagstofu fær einstaklingur aðild að almannatryggingum og NAV (heilbrigðis- og almannatryggingakerfið) í námssveitarfélaginu. Ef einstaklingur veit að hann ætlar að dvelja lengur en 6 mánuði í Noregi er mælt með því að hann skrái sig hjá Hagstofu eins fljótt og unnt er.
Lánasjóðurinn og veikindi á námstíma
Verði einstaklingur veikur á námstímanum og geti ekki haldið námi áfram getur Lánasjóðurinn breytt láni hans fyrir tímabilið í styrk.
Þeir sem þiggja námslán og veikjast eiga rétt á sjúkrastyrk, þetta á einnig við vegna veikinda barna yngri en 12 ára. Þetta á við ef einstaklingur er veikur lengur en 14 daga í einu.
Nánari upplýsingar um sjúkrastyrki á vefsíðum Lánasjóðsins Lånekassens hjemmesider.
Ef seinkun verður á námi vegna ófullnægjandi námsframvindu, tímabundins leyfis eða vegna frestunar á prófatöku veitir Lánasjóðurinn styrk í eitt ár til viðbótar við eðlilegan námstíma. Ef frestun varir lengur en eitt ár, metur Lánasjóðurinn hvort hann styrki viðkomandi áfram ef frestunin er vegna veikinda, þungunar eða vegna skertar starfsorku. Nánari upplýsingar um þetta á vefsíðum Lánasjóðsins.
Námsmaður í öðru norrænu ríki, skemur en 6 mánuði
Skiptinemar sem dvelja í öðru norrænu ríki í að hámarki 6 mánuði og fá styrk frá Lánasjóðnum skulu vera með aðild að norsku almannatryggingunum. Hafa ber í huga að ef námsmaður tekur launaða vinnu samhliða námi getur það haft áhrif á greiðslur lyfja- og lækniskostnaðar og aðild að almannatryggingum. Hafið samband við alþjóðadeild NAV; NAV Internasjonalt og fáið nánari upplýsingar um þetta og kynnið ykkur upplýsingar á vefsíðu NAV.
Námsmaður í öðru norrænu ríki, lengur en 6 mánuði
Námsmaður sem hyggst dvelja í öðru norrænu ríki lengur en 6 mánuði skal skrá sig hjá Hagstofu í námslandinu (nema í Svíþjóð, þar má dvelja í allt að 12 mánuði án þess að skrá sig). Námsmaðurinn er þá, þrátt fyrir að hann fái styrk frá Lánasjóðnum, ekki lengur með skylduaðild að almannatryggingum, heldur fær aðild að tryggingunum í námslandinu.
EES-ríkisborgarar sem eiga aðild að almannatryggingum og stunda nám í öðru EES-ríki eiga rétt á bótum vegna heilbrigðisþjónustu. Reglur dvalarlandsins segja til um réttindin og almennt er gerð krafa um að opinber heilbrigðisþjónusta sé nýtt.
Þeir sem ekki eiga aðild að almannatryggingum njóta engra réttinda samkvæmt almannatryggingalögum.
Það þýðir meðal annars að
- almannatryggingakerfið greiðir ekki kostnað við læknisþjónustu viðkomandi erlendis
- engin lífeyrisréttindi/lífeyriseiningar verða til samkvæmt almannatryggingalögum
- þetta getur haft afleiðingar í för með sér hvað varðar örorkubætur og bætur til eftirlifandi maka og barna
Bætur til námsmanna erlendis
Námsmenn eiga ekki sjálfvirkan rétt á greiðslu bóta frá almannatryggingum ef þeir búa erlendis.
Til þess að eiga rétt á bótum verður viðkomandi að uppfylla skilyrði vegna þeirra bóta sem um ræðir, eiga aðild að almannatryggingum sem veita rétt á bótunum og uppfylla þær sértæku kröfur sem gerðar eru til að bæturnar séu greiddar til einstaklinga sem dvelja erlendis.
Bætur vegna dvalar erlendis geta verið barnabætur, fjárhagsstuðningur, foreldragreiðslur eða eingreiðslur og aðstoðar- eða grunnframfærsla.
