Document Actions

Menntakerfið í Noregi

Í Noregi eru 7 háskólar, 33 tækniháskólar og sjö vísindaháskólar auk nokkurra einkarekinna æðri menntastofnana. Háskólarnir og tækniháskólarnir bjóða upp á nám til BA/BS prófs og meistaraprófs, annars vegar þriggja ára og hins vegar fimm ára nám. Hér eru nánari upplýsingar um umsóknarferli, skólagjöld og inntökuskilyrði menntastofnana í Noregi.

Bøger
Ljósmyndari
Ane Cecilie Blichfeldt/norden.org

Menntakerfið

Í Noregi eru 7 háskólar, 33 tækniháskólar og sjö vísindaháskólar auk nokkurra einkarekinna æðri menntastofnana. Bæði ríkisreknir- og einkaskólar fylgja sömu lögum um háskóla og tækniháskóla. Háskólarnir og tækniháskólarnir bjóða upp á nám til BA/BS prófs og meistaraprófs, annars vegar þriggja ára og hins vegar fimm ára nám.

Nám við norskar menntastofnanir er sambærilegt námi annars staðar í Evrópu. Auk þess nýta allir háskólar og tækniháskólar alþjóðlegt einkunnarkerfi með bókstöfunum frá A til F. Að loknu meistaraprófi er nemanda heimilt að sækja um aðgang að doktorsnámi (Ph.D), sem er þriggja ára nám.

Skólagjöld á önn

Í Noregi greiða nemendur gjöld fyrir hverja önn. Gjaldið greiðist til stúdentasamtaka sem menntastofnanirnar eru tengdar. Gjöldin skulu renna til þess að greiða kostnað sem tengist velferðarþörf nemenda í skólanum. Sumar menntastofnanir rukka einnig ljósritunargjald. Upphæð gjalds fyrir önn er þess vegna ekki alveg það sama hjá öllum menntastofnunum.

Umsóknarferli

Stofnun sem samræmir aðgang að æðra grunnnámi í tækniháskólum og háskólum nefnist á norsku „Samordna opptak". Það þýðir að ef nemandi sækir um grunnnám í háskóla eða tækniháskóla í Noregi, er umsókn yfirleitt send þangað.

Almennur umsóknarfrestur, einnig fyrir umsækjendur frá Norðurlöndum, er 15. apríl. Umsóknareyðublað, upplýsingar um umsóknarfrest fyrir sérstaka umsóknahópa og yfirlit yfir umsóknarferlið er á vefsíðu Samordna opptak .

Hjá Samordna opptak er einnig hægt að fá nánari upplýsingar um umsóknarferlið. Spurningum um innihald náms, skal beina til menntastofnana sem eiga aðild að Samordna opptak, nánara yfirlit yfir allar menntastofnanir og námsframboð eru á vefsíðu Samordna opptak.

Aðgangur að grunnnámi (BA/BS námi) í Noregi

Fyrsta stig náms í háskóla eða tækniháskóla í Noregi er BA/BS nám, eða grunnnám.

Skilyrði til inntöku í grunnnám eru almenn námsfærni eða annað sambærilegt nám:

  • Almenn námsfærni þýðir að viðkomandi hefur menntun frá öðru landi, sem er sambærileg við framhaldsskólamenntun í Noregi.
  • Þeir sem eru með þriggja ára æðri menntun frá öðru norrænu ríki uppfylla kröfur um aðgang án þess að þurfa að sýna fram á kunnáttu í norsku, en sýna verður fram á enskukunnáttu. Umsækjendur með erlenda menntun frá öðru landi en norrænu verða að sýna fram á ensku- og norskukunnáttu. Nánar um þetta á vefsíðu NOKUT.
  • Annað sambærilegt nám þýðir að nemandi kemst inn í æðra nám á tvennan hátt, nánari upplýsingar um þær reglur eru á vefsíðu Samordna opptak

Ef frá eru skildar einkareknar æðri menntastofnanir skal sækja um inngöngu í gegnum Samordna opptak.

Aðgangur að meistaranámi í Noregi

Meistaranám, sem einnig nefnist æðra nám, er nám sem tekið er eftir að lokið hefur verið við BA/BS nám við háskóla eða tækniháskóla.

Nauðsynlegt er að hafa lokið BA/BS námi áður en sótt erum aðgang að meistaranámi. Erlend BA/BS próf eru ekki viðurkennd sem norsk BA/BS gráða, því gætu nemendur þurft að taka einhver viðbótarfög í norskum háskóla áður en hægt er að sækja um aðgang að meistaranámi, þrátt fyrir að þeir séu með BA/BS próf frá heimalandi.

Upplýsingar um þetta eru á vefsíðu Námsmatsstofnunar um gæði í menntun NOKUT undir landspesifikk informasjon om utdanning.

Sótt er um aðgang að meistaranámi beint til menntastofnunar.

Tengt efni
  • Námsefni um Norðurlönd

    Yfirlit yfir námsefni um Norðurlönd og norræn tungumál.

  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Organisation)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Landamæraþjónustan (Organisation)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.


 

Vantar þig nánari upplýsingar?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.