Námsmannaíbúðir í Noregi
Félagsstofnun stúdenta leigir eingöngu út íbúðir til námsmanna,sem stunda nám við háskóla og tækniháskóla í Noregi. Námsmannaíbúðirnar eru oftast nálægt skólanum og er leigan lægri en á almennum leigumarkaði. Nánari upplýsingar um námsmannaíbúðir í Noregi.
Flestar félagsstofnanir stúdenta við háskóla og tækniháskóla í Noregi leigja út eina eða fleiri gerðir námsmannaíbúða. Sumar stofnananna reka einnig einkareknar leigumiðlanir.
Í ágúst og janúar er oft erfitt að fá námsmannaíbúð, því borgar sig að sækja snemma um. Margar félagsstofnanir stúdenta hafa tekið ákveðinn fjölda íbúða frá fyrir alþjóðlega nemendur eða skiptinema. Krækjur á vefsíður félagsstofnana stúdenta eru á vefsíðu menntamálaráðuneytisins Kunnskapsdepartementets hjemmesider.
Einnig er hægt að leigja íbúð á almennum leigumarkaði. Bæði er hægt að auglýsa eftir íbúð og skoða leiguauglýsingar í stóru dagblöðunum, bæjarblöðum og á netinu. Nánari upplýsingar um húsnæði bæði kaup og leigu íbúða á almennum markaði.
