Document Actions

Námsstyrkir frá Noregi

Flestir norrænir námsmenn í Noregi fá námsstyrki frá heimalandi sínu. Norrænir nemendur geta, að uppfylltum vissum skilyrðum, einnig fengið námsstyrk frá Noregi. Norskir námsmenn eiga rétt á stuðningi frá Lánasjóðnum til náms á Norðurlöndum. Nánari upplýsingar um námsstyrki frá Noregi.

Bogkunst
Ljósmyndari
Sigurður Ólafsson/norden.org

Námsstyrkir

Flestir norrænir námsmenn í Noregi fá námstyrki frá heimalandi sínu á meðan þeir stunda nám í Noregi. Norskir námsmenn eiga rétt á stuðningi frá Lánasjóðnum til náms á Norðurlöndum. Námið verður að vera viðurkennt og falla undir styrkjakerfi námslandsins. Námið verður að vera fullt nám og það má ekki vera fjarnám. Þess er krafist að nemendur dvelji á námsstað.

Stuðningur Lánasjóðsins felst í námsstyrkjum og lánum.

Meginreglan er sú að einungis norskir ríkisborgarar fá stuðning frá Lánasjóðnum. Norrænir ríkisborgarar sem stunda nám í Noregi, eiga rétt á námsstuðningi frá Lánasjóðnum ef þeir:

  • eru giftir, búa og eiga barn með norskum ríkisborgara og báðir aðilar eru búsettir í Noregi
  • hafa búið og verið í fullu starfi í Noregi að minnsta kosti síðustu 24 mánuði áður en námið hefst og hafa greitt skatta í Noregi þann tíma
  • hafa stundað nám í Noregi án stuðnings frá Lánasjóðnum í minnsta kosti þrjú síðustu árin áður en námið hefst, og hafa lokið námi sem er sambærilegt við að minnsta kosti þriggja ára fullt nám
  • eru börn EES- eða EFTA ríkisborgara, eða gift, í sambúð og eiga sameiginleg börn með EES- eða EFTA ríkisborgara, sem er launþegi í Noregi. Aðrir í fjölskyldunni geta einnig átt rétt á styrkjum.
  • einnig er hægt að sækja um styrkina byggt á varanlegu dvalarleyfi. Þetta á við um EES ríkisborgara eða fjölskyldu þeirra sem fengið hafa varanlegt dvalarleyfi í Noregi. Norrænir ríkisborgarar verða að skila vottorði þar sem staðfest er að viðkomandi hafi búið í Noregi samfellt í a.m.k. fimm ár áður en nám hefst.

Norrænir ríkisborgarar geta átt rétt á námsstuðningi þegar nám þeirra tengist faglegu starfi þeirra í Noregi. Krafan um faglegt samhengi á ekki við ef viðkomandi er atvinnulaus.

Á vefsíðu Lánasjóðsins Lånekassens nettsted eru nánari upplýsingar um styrkupphæðir og hverjir eiga rétt á námsstyrkjum.

Menntun á Norðurlöndum

Þeir sem fá styrki frá Lánasjóðnum til menntunar annars staðar á Norðurlöndum verða að skila inn vottorði árlega um framvindu námsins og, ef við á, greiðslur skólagjalda. Skjölin eru nauðsynleg undirstaða þess að styrkur fáist áfram, ef þeim er ekki skilað er hætt við að styrkir til áframhaldandi náms og skólagjalda verði minnkaðir að stöðvaðir. Vottorðið sem fylla þarf út nefnist á norsku „Dokumentasjon på faglig progresjon og eventuelle skolepenger" (N-skjema). Eyðublað fyrir það er á vefsíðu Lánasjóðsins Lånekassen (vefsíða með eyðublöðum).

Vottorð bæði um próf sem nemandi hefur staðist og greiðslur skólagjalda verður að senda inn einu sinni á ári. Lánasjóðurinn mun ekki meta þörf og samþykkja nýja styrki fyrir en skjölin hafa verið móttekin.

Munið að senda staðfestingu á prófum sem nemandi hefur staðist og greiðslu skólagjalda að loknu lokaprófi (BA,BS, Master, Magister o.s.frv.). Nánari upplýsingar á vefsíðum Lánasjóðsins Lånekassen.

Tengt efni
  • Landamæraþjónustan (Organisation)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.

  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Organisation)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Námsefni um Norðurlönd

    Yfirlit yfir námsefni um Norðurlönd og norræn tungumál.


 

Vantar þig nánari upplýsingar?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.