Document Actions

Viðurkenning á hæfni í Noregi

Hér eru nánari upplýsingar um hvernig hægt er að fá erlenda menntun metna í Noregi og hvaða störf eru lögbundin þar.

Forskningsmiljö
Ljósmyndari
Johannes Jansson/Norden.org

Norðurlöndin eru einn mennta- og vinnumarkaður. Með „Samningi um norrænt menningarsamstarf" samþykktu norrænir ráðherrar mennta- og vísindamála að auka möguleika nemenda í æðra námi og annarra sem búa á Norðurlöndunum til að mennta sig og taka próf hjá menntastofnunum hinna landanna, auk þess að koma á gagnkvæmri viðurkenningu á prófum, hlutaprófum og öðru námsmati.

Framhaldsskólamenntun

Hafir þú almenna framhaldsskólamenntun (menntaskóla/fjölbrautarskóla) frá Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi, Íslandi, Færeyjum eða Grænlandi er menntun þín jafnt metin í Noregi og í heimalandinu, þ.e. ef menntun þín veitir aðgang að háskólanámi/æðra námi í heimalandinu.

Hafir þú ekki lokið framhaldsskólaprófi, verður þú að bæta við þig þeim fögum sem á vantar í norskum framhaldsskóla. Ef þú ert í vafa um hvort þú uppfyllir almennar kröfur um framhaldsskólapróf, er hægt að láta meta nám sitt hjá háskólum eða æðri stofnunum, eða hjá stofnuninni Samordna opptak (SO). Það borgar sig að gera þetta tímanlega áður en sótt er um inngöngu, vegna þess að það getur tekið langan tíma að fá nám metið. Menntun þín er einnig metin þegar þú sækir um inngöngu. Nánar um þetta á vefsíðu Samordna.

Umreikningur einkunna

Einkunnir frá Norðurlöndunum eru umreiknaðar samkvæmt gildandi stöðlum. Einnig er hægt að fá stig fyrir raungreinar eins og umsækjendur með umsögn frá norskum skólum. Umreikningatafla er gefin út á vefsíðu Samordna opptak.

Erlend æðri menntun

Einstaklingur sem hefur stundað nám eða hluta náms erlendis, getur óskað eftir því að fá námið metið inn í nám eða sem starfsheiti.

NOKUT (Stjórnsýslustofnun með umsjón með mati á gæðum í menntun) getur veitt viðurkenningu á æðra námi sem stundað hefur verið erlendis . NOKUT metur hvort erlent æðra nám er jafngilt norsku háskólanámi og hve mörgum einingum námið samsvarar. Sé menntunin viðurkennd, fær viðkomandi sent viðurkenningarskírteini, sem nýta má þegar sótt er um starf. Nánari upplýsingar eru á vefsíðum NOKUT .

Háskólar og æðri menntastofnanir geta metið erlenda æðri menntun faglega til jafns á við próf og nám sem þau sjálf bjóða. Háskólar og æðri menntastofnanir sjá um að samþætta erlenda námið faglega fyrir þá sem vilja halda námi áfram í Noregi. Nánari upplýsingar fást hjá hverri menntastofnun fyrir sig. Yfirlit yfir alla viðurkennda háskóla og tækniháskóla í Noregi er á vefsíðum NOKUT.

Löggilding og starfsleyfi

Ýmsar starfsgreinar eru löggildar og þarf leyfi til að stunda þær í Noregi. Sérstakar reglur og tilskipanir gilda um ríkisborgarar ESB/EES og gagnkvæmt mat á starfsmenntun milli ríkja ESB/EES. Í Noregi er menntamálaráðuneytið samræmingaraðili og tengiliður fyrir almennar tilskipanir.

Eftirfarandi er yfirlit yfir algengustu löggildar starfsgreinar og hverjir veita leyfi til að stunda þær í Noregi:

Heilbrigðismenntun:

Matsstofnun ríkissins um heilbrigðisstarfsfólk (SAFH) gefur leyfi til starfssemi innan heilbrigðissviðsins svo sem fyrir lækna, sálfræðinga, hjúkrunarfræðinga, sjúkraþjálfara, lyfjafræðinga, lífverkfræðinga, sjúkraliða, o.fl. Nánari upplýsingar á vefsíðum Statens autorisasjonskontor for helsepersonell (SAFH)

Kennarar, leikskólakennarar:

Menntamálaráðuneytið metur faglega hæfni kennara og leikskólakennara sem menntaðir eru erlendis, nánari upplýsingar á vefsíðu menntamálaráðuneytisins Utdanningsdirektoratet.

Endurskoðendur, fjármálaumsjón, fasteignasalar:

Fjármálaeftirlitið sér um mat og viðurkenningu á löggildum endurskoðendum, skráðum endurskoðendum, löggildum bókurum, fasteignasölum og innheimtumönnum. Á vefsíðu fjármálaeftirlitsins Finanstilsynet er lýsing á viðurkenningarferlinu.

Dýralæknar, sjávarlíffræðingar, aðstoðarmenn dýralækna.

Matvælaeftirlitið metur og veitir dýralæknum, sjávarlíffræðingum og aðstoðarmönnum dýralækna leyfi til starfa. Á vefsíðu Matvælaeftirlitsins Mattilsynet eru upplýsingar um starfsleyfisveitingar.

Lögfræðingar:

Eftirlitsnefnd með starfsemi lögmanna gefur út leyfi til lögmanna, viðurkenndra starfsmanna lögmanna og veitir leyfi til ýmis konar réttaraðstoðar og líkrar starfsemi, nánari upplýsingar eru á vefsíðum eftirlitsnefndarinnartilsynets hjemmesider.

Siglingar:

Siglingastofnun veitir leyfi til starfsemi í siglingageiranum. Nánari upplýsingar á vefsíðu SiglingastofnunarSjøfartsdirektoratet.

Flug, flugvirkjar.

Flugmálastofnun veitir leyfi til starfa tengdu flugi, nánari upplýsingar á vefsíðum stofnunarinnar tilsynet um hvernig sótt er um starfsleyfi.

Rafiðnaðarmenn:

Ráðuneyti samfélagsöryggis og almannavarna gefur út starfsleyfi vegna starfa innan rafiðnaðargreina. Nánari upplýsingar eru á vefsíðu ráðuneytisins direktoratet.

Tengt efni
  • Landamæraþjónustan (Organisation)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.

  • Námsefni um Norðurlönd

    Yfirlit yfir námsefni um Norðurlönd og norræn tungumál.

  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Organisation)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.


 

Vantar þig nánari upplýsingar?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.