Document Actions

Æðri menntun í Svíþjóð

Þessi vefsíða er fyrir þá sem stunda nám í Svíþjóð eða hyggja á æðra nám eða fullorðinsfræðslu í Svíþjóð. Einnig eru hér upplýsingar fyrir námsráðgjafa.

Diskussion
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Um sænska háskóla

Í Svíþjóð er ríkið ábyrgt fyrir þeirri starfsemi sem fram fer á háskólasviðinu. Þingið og ríkisstjórnin setja reglur og ákveða hvernig fjármagni skuli skipt. Nokkrar stofnanir sjá um framkvæmd á háskólasviðinu, þeirra á meðal er Högskoleverket

Í Svíþjóð eru ríkisháskólar 14 og aðrar ríkisreknar æðri stofnanir 22. Auk þess eru þrír skólar viðurkenndir til að veita rannsóknamenntun, það eru Kalmar tækniháskólinn , Viðskiptaháskólinn í Stokkhólmi og háskólinn í Jönköping. Munurinn á háskóla og öðrum æðri menntastofnunum felst meðal annars í því að háskólar mega útskrifa vísindamenn.

Þá eru níu menntastofnanir sem bjóða upp á grunnháskólanám og nokkrar menntastofnanir sem mega útskrifa sállækna.

Réttindi til að stunda nám í háskólum og öðrum æðri menntastofnunum

Vissar kröfur eru gerðar um menntun áður en aðgangur að æðri menntastofnunum í Svíþjóð er veittur. Kröfurnar eru einnig nefndar hæfnisvottorð: behörighetskrav. Hæfniskröfum er skipt í grunnhæfni og sérstaka hæfni. Grunnhæfni er krafist vegna allrar æðri menntunar. Auk grunnhæfni er gerð krafa um sérstaka hæfni í fjölda greina, þetta kallast sértæk hæfni. Á vefsíðu Högskoleverkets eru nánari upplýsingar um hæfniskröfur.

Hver háskóli og æðri menntastofnun setur eigin reglur um inntöku nemenda.

Þeir sem hafa menntun frá öðru landi og hug á því að stunda áframhaldandi nám í Svíþjóð geta fengið aðstoð við að fá menntun sína metna. Hafa skal samband við þann háskóla eða æðri stofnun sem ætlunin er að stunda nám í. Nánari upplýsingar eru vefsíðunni Högskoleverkets sida om att tillgodoräkna utländska studier.

Lengd menntunar er talin í háskólaeiningum

Háskólanám er talið í einingum. Eitt ár, 40 vikna nám, svarar til 60 háskólaeininga og ein önn er 30 einingar.

Háskólaeiningar fyrir hvert námskeið eru ákveðnar með tilliti til þeirrar vinnu sem eðlileg er til að ná settum markmiðum í námskeiðinu. Markmiðin og fjöldi háskólaeininga eru gefin upp í námskrá.

Próf og einkunnir

Námskeiðum lýkur með prófi sem getur verið skriflegt eða munnlegt. Nemendur fá einkunnir fyrir þau námskeið sem þeir hafa lokið. Yfirleitt er einkunnum lýst með; fall, staðið og mjög gott. Háskólar og aðrar æðri menntastofnanir geta þó einnig ákveðið að nota önnur einkunnakerfi.
Menntuninni er skipt í þrjú stig

Grunnnám, sem byggir að mestu á þekkingu nemenda úr framhaldsskólanum, framhaldsnám, sem byggir á þekkingu sem nemendur hafa öðlast í grunnnámi og vísindanám/doktorsnám sem byggir á þekkingu sem nemendur hafa öðlast í grunnnámi og vísindanámi/doktorsnámi.

Almenn próf

Í grunnnámi:

  • BA og BS próf, 120 háskólaeiningar
  • kandidatspróf, 180 háskólaeiningar

Í framhaldsnámi:

  • magisterpróf, 60 háskólaeiningar
  • meistarapróf, 120 háskólaeiningar

Í vísindanámi/doktorsnámi:

  • doktorspróf (licentiatet), 120 háskólaeiningar
  • doktorspróf, 240 háskólaeiningar

Nánari upplýsingar um nám í Svíþjóð eru á vefsíðunni: Högskoleverkets hemsida.

Erlend framhaldsskólapróf

Verket för högskoleservice metur erlend framhaldsskólapróf og ákveður hvaða sænskum prófum þau samsvara.

Erlend háskólamenntun

Þeim sem hafa stundað nám í erlendum háskóla og vilja halda námi áfram í Svíþjóð er bent á að snúa sér til námsráðgjafa í þeim háskóla eða þeirri æðri menntastofnun sem þeir vilja leggja stund á nám hjá. Þar fá þeir aðstoð við mat á erlendri menntun.

Á vefsíðu Högskoleverket um háskólanám studera.nu, eru nánari upplýsingar.

Enskumælandi?

Study in Sweden er vefsíða á ensku með upplýsingum um æðra nám í Svíþjóð.

Kostnaður

Erlendir námsmenn sem vilja stunda grunn- eða framhaldsnám í Svíþjóð þurfa að greiða fyrir námið. Kostnaður er ákveðinn af hverjum háskóla eða æðri menntastofnun fyrir sig, samkvæmt þeirri grunnreglu að gjaldið skuli nægja fyrir kostnaði sem til fellur. Vísindamenntun er þó ókeypis. Hafið sambandi við háskóla eða æðri menntastofnun sem ætlunin er að stunda nám hjá til að fá upplýsingar um kostnað.

Aðgangur að námi

Þeir sem hefja nám að hausti fá upplýsingar um hvort þeir hafi komist inn um miðjan júlí. Þeir sem vilja hefja nám á vormisseri fá upplýsingar um hvort þeir hafi komist inn í desember. Venjan er að viðkomandi hefur tvær vikur til að láta vita hvort hann mun þiggja plássið og hefja nám eður ei.

Þeir sem ekki uppfylla skilyrði til að hefja háskólanám

Þeir sem ekki uppfylla skilyrði til að hefja háskólanám geta sent prófskírteini sín til Komvux, fullorðinsfræðslu sveitarfélaga, eða til lýðháskóla.

Komvux

Komvux, eða vux eins og það er kallað í mörgum sveitarfélögum, er til staðar fyrir þá sem vilja ljúka þeim stúdents- og grunnskólafögum sem upp á vantar. Nánari upplýsingar um Komvux eru á Alla Studiers webbplats.

Lýðháskólar

Lýðháskólar eru reknir vítt og breitt um Svíþjóð. Þeir eru ólíkir hefðbundnum skólum og bjóða upp á ólíkar leiðir Á almennum námskeiðum lýðháskólanna gefast tækifæri til að undirbúa sig fyrir æðra nám. Auk þess er boðið upp á fjölbreytt námskeið á ýmsum sviðum. Framboð á menningartengdum námskeiðum er mikið í lýðháskólum, þar er hægt að taka undirbúningsnámskeið í listum, tónlist, dansi, leiklist, ljósmyndum og ritun. Önnur dæmi eru námskeið um alþjóðalegt þróunarstarf, tölvur og heilbrigðismál. Margir lýðháskólar bjóða heimavist. Nánari upplýsingar um hvaða skólar það eru: Folkhögskolornas hemsida

Góð ráð!

Tveir lýðháskólar sérhæfa sig í norrænum málum:

Norræni lýðháskólinn í Kungälv

Norræni lýðháskólinn í Biskops-Arnö

Tengt efni
  • Námsefni um Norðurlönd

    Yfirlit yfir námsefni um Norðurlönd og norræn tungumál.

  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Organisation)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Öresund Direkt (Organisation)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.

  • Landamæraþjónustan (Organisation)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.

  • Æðri menntun (Cooperation Area)
  • Um samstarf um fullorðinsfræðslu

    Norðurlöndin hafa þörf fyrir velmenntað og sveigjanlegt starfsafl. Þess vegna leggja löndin áherslu á að fleiri ungmenni ljúki námi eftir grunnskólann og að allir fái tækifæri til að læra og þróast allt lífið. Norænt samstarf um fullorðinsfræðslu er mikilvægur vettvangur til þess að miðla reynslu, fá hugmyndir og öðlast þekkingu til þess að mæta þessum úrlausnarefnum. Norrænt samstarf getur stuðlað að því að löndin uppfylli sín markmið um færniþróun, gæðatryggingu og jafnrétti.


 

Vantar þig nánari upplýsingar?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.