Námsstyrkir í Svíþjóð
Á þessari vefsíðu eru upplýsingar fyrir þá sem koma frá öðru norrænu ríki til að stunda nám í Svíþjóð.
Námsstyrkir frá heimalandi
Almenna reglan er sú að norrænir námsmenn fá námsstyrki/lán frá sínu heimalandi. Norrænir námsmenn geta að uppfylltum vissum skilyrðum fengið námstyrki í Svíþjóð.
Námsstyrkir frá Svíþjóð
Námsstyrkir eru fyrir þá sem stunda nám við háskóla, æðri menntastofnanir eða annað nám að loknum framhaldsskóla. Námsstyrkjanefndin; Centrala Studiestödsnämnden getur veitt námsstyrki í tólf annir að hámarki fyrir nám eftir framhaldsskólanám. Stuðningur einnig í boði fyrir þá sem stunda nám í framhaldskóla, lýðháskólum, og í fullorðinsfræðslu á vegum hins opinbera eða sveitarfélaga.
Almennar kröfur sem settar eru fyrir sænskum námsstyrkjum
- Skólinn verður að vera erlendur skóli utan Svíþjóðar
- Skólinn og menntunin verður að veita réttindi til námsstyrkja
- Einstaklingur verður að vera sænskur ríkisborgari, sérstakar reglur gilda um erlenda ríkisborgara
- Einstaklingur verður að hafa undirstöðuþekkingu ef hann ætlar að nema tungumál við stofnun utan Norðurlanda, sem ekki er á háskólastigi
- Einstaklingur verður að hafa búið í Svíþjóð samfellt í tvö ár hið minnsta, undanfarin fimm ár
CSN skoða málið
Þegar einstaklingur sem ekki er Svíi sækir í fyrsta sinn um sænskan námsstyrk gerir CSN tveggja þrepa athugun. CSN athugar fyrst hvort viðkomandi á rétt á að sækja um námsstyrk almennt, svonefndan grundvallarrétt.
Ef CSN veitir einstaklingi grundvallarréttindi til námsstyrks er gerð önnur athugun. Hún felur í sér að CSN skoðar hvort viðkomandi uppfyllir kröfur um þann námsstyrk sem sótt er um.
CSN getur einungis veitt grundvallaréttindi til stuðnings ef viðkomandi hefur flutt til Svíþjóðar í öðrum tilgangi en að stunda nám. Viðkomandi verður að vera skráður inn í landið og að ætla að búa í Svíþjóð.
- Börn innflytjenda; Ef viðkomandi hefur flutt með foreldrum sínum til Svíþjóðar getur hann/hún í vissum tilvikum fengið grundvallarréttindi til sænskra námsstyrkja. Viðkomandi verður að hafa verið yngri en 20 ára þegar hann/hún flutti til Svíþjóðar og foreldarnir verða að búa og starfa í Svíþjóð.
- Gestanemendur: Ef viðkomandi er gestanemandi í Svíþjóð, þ.e. í þeim megintilgangi að stunda nám, er ekki mögulegt að fá námsstyrk frá Svíþjóð. Nemendur sem fá námsstyrki eða tilsvarandi frá heimalandi sínu eru flokkaðir sem gestanemendur.
Undanþágur fyrir norræna þegna og fjölskyldur þeirra
Ef einstaklingur er á vinnumarkaði og ríkisborgari í ESB eða fellur undir EES samkomulagið, er í undantekningartilkum hægt að fá námsstyrk þrátt fyrir að viðkomandi uppfylli ekki þær kröfur sem gerðar eru áður en grundvallarréttindi til námsstyrks eru veitt. Upplýsingar um þessar aðstæður eru á vefsíðu Centrala Studiestödsnämndens sida.
