Sjúkratryggingar námsmanna í Svíþjóð
Hvað gerist ef einstaklingur verður veikur á meðan á námi stendur? Er hann/hún sjúkratryggður?
Sjúkrabætur vegna veikinda
Þeir sem hyggja á nám í Svíþjóð lengur en eitt ár, skulu flytja lögheimili sitt til Svíþjóðar. Nánar um þetta á vefsíðu okkar um skráningu í þjóðskrá hjá Hagstofu í Svíþjóð Ef þú átt rétt á sænskum námsstyrkjum og verður veik/ur á námstímanum og þarft að fara í veikindaleyfi, átt þú rétt á að halda námsstyrknum á meðan á veikindum stendur.
Á vefsíðunniCentrala studiestödsnämndens sida om sjukdom och studiestöd eru upplýsingar um hvað gera skal þegar veikindi ber að garði eða þegar annast þarf um náinn ættingja.
Tekjutengdir sjúkradagpeningar - SGI
Þeir sem hafa unnið í Svíþjóð áður en nám hefst geta átt rétt á tekjutengdum sjúkradagpeningum. Tryggingastofnun Försäkringskassan veitir nánari upplýsingar um þetta.
Heilsuvernd
Norrænir nemendur eiga almennt rétt á nauðsynlegri heilsuvernd í Svíþjóð. Nánari upplýsingar eru í upplýsingabæklingi Tryggingastofnunar; Sjukvård i Sverige för utländska studenter.
Sérstakar sjúkratryggingar fyrir skiptinema
Skiptinemar og doktorsnemar geta átt rétt á sérstökum sjúkratryggingum. Hafa skal samband við viðkomandi menntastofnun til að fá nánari upplýsingar.
Einkatryggingar
Nemendur sem eiga aðild að stéttarfélagi fackförbund geta átt rétt á nemendatryggingu í gegnum stéttarfélagið.
Einnig er unnt að kaupa tryggingar hjá tryggingafélagi.
