Document Actions

Stúdentagarðar í Svíþjóð

Hversu vel gengur að fá húsnæði á stúdentagarði í Svíþjóð veltur að miklu leyti á námsstað. Í borgunum er það almennt erfiðara og þar er oft langur biðlisti eftir húsnæði á stúdentagarði, en það getur verið auðveldara í minni bæjum. Hér að neðan eru upplýsingar fyrir þá sem leita að húsnæði á námstíma.

Boende

Stúdentagarðar. Ljósmynd: Magnus Fröderberg/norden.org

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

 

Við alla háskóla og á öllum háskólasvæðum í Svíþjóð eru íbúðir sérstaklega ætlaðar þeim námsmönnum sem eru virkir í námi. Á flestum þessum stöðum er hægt að skrá sig á biðlista til að fá íbúð, en íbúð fæst ekki fyrr en sýnt er fram á að viðkomandi nemandi hafi fengið aðgang að námi. Á sumum stöðum eru nýstúdendum tryggðar íbúðir, en á stærstu háskólasvæðunum er yfirleitt erfitt að fá stúdentaíbúð. Það er því ráðlegt að skrá sig sem fyrst á biðlista þegar á íbúð þarf að halda og hafa það hugfast að það er yfirleitt erfiðast að fá íbúð í upphafi annar.

Yfirleitt eru það húseignafélög sem reka íbúðirnar en ekki skólarnir. Hvert húseignafélag hefur sinn eiginn biðlista og leigureglur, sem þýðir að oft eru fleiri biðlistar í gangi á stærstu háskólasvæðunum. Það er því ekki hægt að flytja forgangsröð á biðlista á milli lista eða svæða.
Upplýsingar um húseignafélög sem leigja út stúdentaíbúðir og upplýsingar um hvernig sótt er um stúdentaíbúðir á ýmsum svæðum, eru á vefsíðunni sokstudentbostad. Einnig er hægt að fara inn á vefsíðu hvers skóla fyrir sig til að fá nánari upplýsingar um stúdentaíbúðir á viðkomandi svæði.

Margar tegundir húsnæðis eru í boði fyrir stúdenta, einnig herbergi í íbúðum með aðgangi að eldhúsi og baði. Þá er einnig til staðar húsnæði sem er ætlað fjölskyldum og einstaklingum með hreyfihömlun. Nánari upplýsingar veita húsnæðisfélög á staðnum. Einstaklingar með hreyfihömlun geta nálgast upplýsingar um stuðningsmöguleika á vefsíðunni Studera med funktionshinder.

Erlendir námsmenn

Erlendir námsmenn skulu hafa samband við námsstofnun til þess að fá upplýsingar um húsnæði í boði. Í sumum tilvikum er ákveðinn fjöldi íbúða frátekinn fyrir erlenda námsmenn.
Ef viðkomandi námsmaður kemur frá landi utan Schengen-svæðisins þarf hann dvalarleyfi áður en hann kemur til Svíþjóðar.

Að leigja íbúð beint eða í gegnum millilið

Húsnæðisskortur er mikill, sérstaklega í borgunum, og það getur verið erfitt að fá venjulega námsmannaíbúð. Þess vegna finna margir íbúðir á annan hátt, til dæmis í gegnum millilið. Upplýsingar um að hverju skal huga hvað varðar samninga og hvaða réttindi leigjendur hafa eru á vefsíðunni vår sida om bostad i Sverige, í kaflanum Hyresrätt (Leiguhúsnæði).
Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni Om boende.

Hyresgästföreningen er aðildarfélag leigjenda. Þar er hægt að fá aðstoð t.d. ef aðilar eiga í útistöðum við leigusala.

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Öresund Direkt (Samtök)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.

  • Landamæraþjónustan (Samtök)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.


 

Vantar þig nánari upplýsingar?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.