Viðurkenning á menntun í Svíþjóð
Einstaklingur sem lokið hefur háskólanámi getur fengið menntun sína metna hjá Högskoleverket.
Einstaklingur sem lokið hefur háskólanámi í útlöndum getur fengið námið metið hjá Högskoleverket. Högskoleverket segir þá til um hvaða sænska prófi erlenda prófið samsvarar. Þetta er til hægðarauka bæði fyrir einstaklinginn og vinnuveitandann þegar sótt er um starf.
En til eru undantekningar. Högskoleverket metur ekki menntun sem veitir starfsréttindi í greinum sem ekki eru löggildar í Svíþjóð. Að menntun sé löggild felur í sér að til að stunda hana þarf leyfi, til dæmis húkrunarfræði eða læknanám. Þessi próf eru metin af Socialstyrelsen. Undantekningin er kennaramenntun, en hana metur Högskoleverket.
Einstaklingur sem vill fá menntun sína metna, skal senda útfyllt umsóknareyðublað ásamt staðfestum afritum af einkunnum til Högskoleverket.
Matið er ókeypis. Högskoleverket metur ekki hluta menntunar eða menntun sem er styttri en tveggja ára.
