Document Actions

Styrkir Menningasjóðs Danmerkur og Grænlands

Sjóðurinn vinnur að því að efla menningartengsl milli Grænlands og annarra hluta danska ríkisins. Styrkir eru meðal annars veittir til ferðalaga til og frá Grænlandi, til menningar- og félagslegra stofnana, til útgáfu tímarita, bóka og kvikmynda. Þá eru veittir styrkir til heimsókna til og frá Grænlandi og til Grænlendinga sem stunda nám í Danmörku.

Fjármagn og styrkveitingar

Höfuðstóllinn nemur u.þ.b. 22 milljónum danskra króna og árið 2008 voru veittir styrkir að upphæð 744.000 danskra króna. Styrkirnir nema frá 5.000 til 30.000 dönskum krónum. Árið 2008 fékk sjóðurinn 67 umsóknir og veittir voru 42 styrkir.

Nánari upplýsingar um þetta fjármögnunartækifæri.

Fáanlegt í eftirfarandi löndum

Danmörk, Grænland

Tengd stofnun

Menningarsjóður Danmerkur og Grænlands