Styrkir Vestnorræna ferðamálaráðsins
Markmkið Vestnorræna ferðamálaráðsins (NATA) er að auka skilvirkni í ferðamálasamstarfi Vestur-Norðurlandanna. Styrkja skal, samhæfa og tryggja framboð samvinnuverkefna aðildarlandanna á þeim sviðum ferðamála þar sem þau eiga einkum sameiginlegra hagsmuna að gæta. Tvö af löndunum þremur hið minnsta skulu taka þátt í verkefnum sem sótt er um styrki til.
Styrkir til verkefna í ferðaþjónustu
Fyrirtæki, einstaklingar og stofnanir geta sótt um styrk að hámarki 100.000 DKK.
Styrkir eru veittir:
- Til markaðssetningar
- Til nýsköpunar- og – vöruþróunar
- Í kynnisferðir á milli ferðaþjónustufyrirtækja
- Til gæða- og umhverfismála innan ferðaþjónustunnar
Ekki eru veittir styrkir vegna launakostnaðar, ráðgjafar, útgáfu efnis eða vefsíðugerðar.
Styrkir vegna kynnis- og námsferða
Styrkjunum er einvörðungu ætlað að standa straum af ferðakostnaði. Hámarksstyrkur á hvern einstakling er 1000 DKK og hvert verkefni fær að hámarki 20.000 DKK í heildarstyrk.
Styrkir eru veittir til:
- Skóla
- Íþróttahópa
- Tónlistarhópa
- Annars menningarsamstarfs
Samskipti skóla - árganga, bekkja - ganga að öðru jöfnu fyrir við mat á umsóknum.
Fáanlegt í eftirfarandi löndum
Ísland, Færeyjar, Grænland
Tengd stofnun
Vestnorrænt ferðamálasamstarf Ferðamálaráð Færeyja, Ferðamálaráð Íslands, Ferðamálaráð Grænlands
