Styrkirnir eru ætlaðir til að veita blaðamönnum tækifæri til að afla sér þekkingu um Norðurlöndin og norrænt samstarf. Umsækjendur geta verið sjálfstætt starfandi blaðamenn og blaðamenn í föstu starfi hjá dagblöðum, tímaritum, útvarpi og sjónvarpi.
Áherslusvið eru sex: menntun, rannsóknir, tækniþróun, ferðaþjónusta og atvinnulíf, samfélagsþjónusta, náttúru- og menningarumhverfi sem auðlindir, samskipti og samstarf yfir landamæri (orka, menning, samstarf milli borga og þorpa).
Innovation Express er sameiginleg evrópsk nálgun sem miða að því að styðja við alþjóðavæðingu lítilla og meðalstórra fyrirtækja í gegnum klasasamstarf. Markmiðið með styrkjaáætluninni er að stuðla að alþjóðavæðingu, sérhæfingu og þekkingarmiðlunar og þróun færni þvert á landamæri með því að efla tengsl lítilla og meðalstórra fyrirtækja, klasa og annarra sérhæfðra rannsókna og nýsköpunarfyrirtækja - til hagsbóta fyrir fulltrúa þeirra.
Clara Lachmanns sjóðurinn stuðlar að því að efla skandinavíska samkennd. Starf sjóðsins er tvíþætt, annars vegar styrkir hann einstaklinga frá einu af skandinavísku löndunum til þess að kynna sér aðstæður í öðru norrænu ríki. Hinsvegar segir í reglum að hann skuli styðja við skandinavískt samstarf á öllum sviðum, svo framarlega sem það sé nytsamlegt.
Dansk-norski samstarfssjóðurinn hefur það að markmiði að vinna að auknum skilningi og samstarfi milli Danmerkur og Noregs á svið menningar auk annarra sviða. Sjóðurinn á og rekur Lysebu í Ósló og Schæffergården rétt utan við Kaupmannahöfn. Markmiðið með rekstri staðanna er að taka á móti styrkþegum sjóðsins og mynda ramma um dansk-norska viðburði sem sjóðurinn stendur fyrir. námskeiðum, námstefnum, ráðstefnum og einnig opnum viðburðum fyrir almenning.
Hópar, sem vinna að nýskapandi verkefnum innan sjónlistar og menningar, hönnun og arkitektúr, geta sótt um að dveljast í listamiðstöðinni. Einungis hópar geta sótt um.
Vísindamenn, sem vinna með sjónlist, þar með talið hönnun og arkitektúr, eiga þess kost að sækja um dvöl í Norrænu menningarmiðstöðinni Dalsåsen í Noregi. Einungis einstaklingar geta sótt um.
Eystrasaltsáætlunin (The Baltic Sea Region Programme 2007-2013) er ein af mikilvægum áætlunum ESB um svæðasamstarf. Fjárhagsáætlun áætlunarinnar er 236,6 milljónir evra og er hún styrkt af þróunarsjóði ESB, grannsvæðaáætlun ESB (European Neighbourhood and Partnership Instrument - ENPI) og norska ríkinu. Þar að auki kemur fjármagn frá svæðunum.
NEFCO er alþjóðleg fjármálastofnun, sem sett var á stofn af norrænu ríkjunum. NEFCO fjármagnar aðallega fjárfestingar og verkefni í Rússlandi, Úkraínu, Eistlandi, Lettlandi, Litháen og Hvíta-Rússlandi. NEFCO fjármagnar verkefni og fjárfestingar sem hafa í för með sér jákvæð umhverfisáhrif og eru áhugaverð fyrir Norðurlönd.
Menningarstjórnin býður gestum að dvelja í Villa Bergshyddan í Stokkhólmi. Um er að ræða þriggja herbergja íbúð í uppgerðu 18. aldar húsi, dvöl í íbúðinni er ókeypis fyrir skapandi listamenn frá norrænu höfuðborgunum tímabilið 31. mars til 28. september 2008. Umsækjendur skulu vera starfandi innan menningargeirans og eiga lögheimili í einni af norrænu höfuðborgunum, annarri en Stokkhólmi.
Hlutverk Grænlandssjóðs er að stuðla að nánari samskiptum Íslendinga og Grænlendinga og veitir sjóðurinn styrki til kynnisferða, námsdvalar, listsýninga, íþróttasýninga og annarra málefna á sviði lista, vísinda og tæknimála. Höfuðstóll sjóðsins, sem ríkissjóður lagði til á árunum 1981 og 1982, er í vörslu Seðlabanka Íslands og er árlegri ávöxtun hans varið til styrkveitinga.
ESB áætlunin Interreg Svíþjóð-Noregur fellur undir nýjar áherslur "svæðisbundið samstarf" þar sem markmiðið er að efla samstarf yfir landamæri innan ESB og í tilteknum löndum. Byggt verður á fyrri samstarfsverkefnum sem unnin hafa verið innan Norðurslóðaáætlunarinnar. Um er að ræða þrjár tegundir svæðasamstarfs: samstarf þvert á landamæri, alþjóðleg samstarf og samstarf innan svæða. Interreg Svíþjóð - Noregur er samstarf þvert á landamæri. Markmiðið með áætluninni er að styrkja og efla nýskapandi verkefni, þekkingu og samkeppnishæfni í atvinnulífi, tækni og samfélagsþróun. Efla á efnahagsvöxt með því að auka áherslu á innviði og með því að ryðja úr vegi stjórnsýsluhindrunum. Efla á lífsumhverfið með því að skapa svæði þar sem fólk vill búa og starfa.
Í áætluninni er lögð áhersla á þrjú meginsvið; þróun atvinnulífs, rannsóknir og þróun og menntun ásamt virkni og ímynd byggða. Í Noregi taka þrjú nyrstu héruðin Finnmörk, Troms og Nordland þátt í áætluninni, í Svíþjóð tekur Norrbotten þátt og í Finnlandi Lappland.
Í áætluninni er lögð megináhersla á þrjú svið; efnahags- og félagslega þróun, sameiginleg viðfangsefni og landamærasamstarf og samstarf alþýðu og uppbyggingu sjálfsmyndar. Á öllum sviðunum er sérstök áhersala viðfangsefni sem beina sjónum að konum og ungmennum.
NIB veitir viðbótarlán til lengri tíma til verkefna, sem stuðla að samkeppnisæfni og umhverfisvernd í samræmi við markmið NIB. NIB býður viðskiptavinum sínum, jafnt einkaaðilum og opinberum, sérsniðin lán og ábyrgðir á samkeppnishæfum kjörum.
Samkvæmt samþykktum er verkefni félagsins að stuðla að samkennd milli Norðurlandanna fimm hvað varðar iðnað, vísindi og listir. Félagið sér um að veita styrki til norrænna verkefna, gefur út Norrænt tímarit, veitir heiðursverðlaun Jacob Letterstedt auk þess að vinna að öðrum verkefnum.
Markmkiðið áætlunarinnar er að þróa og endurnýja norrænt lista- og menningarsamstarf. Í áætluninni er lögð mikil áhersla á miðlun og kynningu, jafnt til almennings og milli listamanna og þeirra sem láta sig menningu varða. Áætlunin skiptist í undiráætlanir: Áætlun um færniþróun, gagnrýni og þekkingarmiðlun og áætlun um framleiðslumiðaða starfsemi og kynningar. Jafnt stofnanir og einstaklingar geta sótt um styrki í áætlunina.
Mannaskiptaáætlunin fyrir atvinnulíf styrkir starfsmenn í atvinnulífinu og iðnaði til námsheimsókna og þjálfunar í öðru ríki, auk þess sem tækifæri gefst til eftirmenntunar og tengslmyndunar. Markmið áætlunarinnar er að styrkja og efla efnahagslegt samstarf, frumkvöðla, svæðisbundið samstarf og nýsköpunartækifæri. Áætlunin er til fimm ára, 2009 til 2013, henni er stjórnað af skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Lettlandi.