Vinnur þú að verkefni innan örverufræði, dýraheilsu eða dýraverndar sem þjónar hagsmunum allra Norðurlanda? Norræni vinnuhópurinn um örverufræði, dýraheilsu og dýravernd (NMDD) styrkir norræn samstarfsverkefni á þessum sviðum.
Styrkir til doktorsnema felast í þriggja mánaða dvöl á bókasafni stofnunarinnar. Styrkurinn dugar fyrir ferðakostnaði til og frá Uppsölum í Svíþjóð og uppihaldi á meðan á dvöl stendur. Auk þess fá styrkþegar lágmarksstyrk, til að koma á móts við kostnað vegna dvalarinnar. Einstaklingar geta sótt um styrkinn.
Markmiðið með styrkjunum er að auka samstarf milli Norðurlandanna í gegnum framhaldsmenntun og miðlun reynslu jafnframt því að auka þekkingu þátttakenda á plöntuframleiðslu Mannaskipti þurfa ekki að vera gagnkvæm. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að atvinnurekandi leggi jafn mikið að mörkum og taki þátt í að greiða kostnað.
Norræna samstarfsnefndin um afbrotafræði veitir styrki til rannsóknaverkefna, fundavinnuhópa, ferða, námsferða og þýðinga. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að þátttakendur í verkefnum séu frá þremur Norðurlöndum hið minnsta.
Norræna samstarfsnefndin um hug- og félagsvísindarannsóknir (NOS-HS) lýsir eftir umsóknum um styrki til Norrænna rannsóknasamstarfsverkefna - NORDic COllaborative Research Projects (NORDCORP). NOS-Hs vill efla norrænar rannsóknir og þróa nýog nýskapandi rannsóknasvið innan hug- og félagsvísinda.
Útgefendur tímarita um hug- og félagsvísindi geta árlega sótt um styrki til Norrænu útgáfunefndarinnar um hug- og félagsvísindatímarit (NOP-HS). Umsækjendur geta verið norræn hug- og félagsvísindaleg tímarit, þar sem ritstjórn og dreifing er norræn og sem rituð eru af norrænum greinahöfundum og áskrifendur eru norrænir.
Sænsk-norski samstarfssjóðurinn er tvíhliða, ríkisrekinn sjóður sem miðar að því að auka samstarfið milli Noregs og Svíþjóðar. Sjóðurinn á að auka gagnkvæma menningar- og upplýsingamiðlum um sænskar og norskar menningar- og samfélagsaðstæður. Sjóðurinn veitir þrjár tegundir styrkja: verkefnastyrki, listamannastyrki og dvalarstyrki. Einstaklingar, samtök og stofnanir geta sótt um styrkina.
A.P. Møllers sjóðurinn fyrir íslenska námsmenn styrkir íslenska námsmenn til náms við æðri menntastofnanir í Danmörku. Fulltrúi félagsins Dansk-Islandsk Samfund situr í sjóðstjórn, en félagið sér um að taka við umsóknum. Einstaklingar geta sótt um styrkina.
Umhverfis- og efnahagshópur Norrænu ráðherranefndarinnar (MEG) er þverfaglegur hópur sem starfar í umboði umhverfis- og efnahagssviðs Norrænu ráðherranefndarinnar. Vinnuhópurinn fjármagnar verkefni á sínu fagsviði í samræmi við forgangsröðun ársins.
Meginmarkmið hópsins er að stuðla að efnahagsþróun sem byggir á sjálfbærum framleiðslu- og neyslumynstrum.
Hlutverk sjóðsins er að stuðla að auknum skilningi milli Danmerkur og Svíþjóðar á menningarsviðinu og á öðrum sviðum. Veittir eru styrkir til menntunar, menningarlegra samskipta og fyrirtækja.
Markmiðið er að efla gagnkvæmt samtarf milli Finnlands og Íslands og að auka gagnkvæma þekkingu á menningar- og samfélagslífi í rikjunum. Menningarsjóðurinn Ísland - Finnland var stofnaður árið 1975. Frá og með árinu 2008 fær sjóðurinn árlegan styrk frá íslenska ríkinu.
Markmkið Vestnorræna ferðamálaráðsins (NATA) er að auka skilvirkni í ferðamálasamstarfi Vestur-Norðurlandanna. Styrkja skal, samhæfa og tryggja framboð samvinnuverkefna aðildarlandanna á þeim sviðum ferðamála þar sem þau eiga einkum sameiginlegra hagsmuna að gæta. Tvö af löndunum þremur hið minnsta skulu taka þátt í verkefnum sem sótt er um styrki til.
Vinnuhópur um sjálfbæra neyslu og framleiðslu (HKP) er vinnuhópur sem heyrir undir Norrænu ráðráðherranefndina um umhverfismál. Vinnuhópurinn fjármagnar verkefni á sínu fagsviði í samræmi við forgangsröðun ársins.
Vinnuhópurinn er þverfaglegur samstarfsvettvangur umhverfis-, atvinnu- og neytendageiranna. Meginmarkmiðið er að neysla og framleiðsla fari fram á þann hátt að það bæti umhverfis- og heilbrigðisástand, samhliða því að nýting auðlinda sé skilvirk og sjálfbær.
Vinnuhópur um vistkerfi vatnabúskapar (AEG), er vinnuhópur sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina um umhverfismál. Vinnuhópurinn fjármagnar verkefni á sínu fagsviði í samræmi við forgangsröðun ársins.
Markmið vinnuhóps um vistkerfi vatnabúskapar er að styrkja Norðurlöndin með verkefnum, sem stuðla að uppbyggingu vísindaefnis jafnframt því að stuðla að því að koma í veg fyrir mengun á norrænum haf- og strandsvæðum.