- Info
Atvinnumál
-
Langtíma lán frá Norræna fjárfestingabankanum (NIB)
-
NIB veitir viðbótarlán til lengri tíma til verkefna, sem stuðla að samkeppnisæfni og umhverfisvernd í samræmi við markmið NIB. NIB býður viðskiptavinum sínum, jafnt einkaaðilum og opinberum, sérsniðin lán og ábyrgðir á samkeppnishæfum kjörum.
-
Styrkir Norrænu ráðherranefndarinnar úr áætlun um sjálfbæra þróun á Norðurlöndunum 2009-2012
-
Norræna ráðherranefndin hefur veitt styrki til verkefna sem stuðla að framkvæmd norrænnar stefnu um sjálfbæra þróun á sviði; loftslagsmála og endurnýjanlegra orkugjafa; sjálfbærrar framleiðslu og neyslu; velferðarþjóðfélagsins; auk menntunar og rannsókna, þátttöku borgaranna og staðbundinnar sjálfbærnistefnu. Ekki verður auglýst eftur umsóknum um styrki á árinu 2012.
-
Mannaskiptaáætlun fyrir atvinnulíf á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum
-
Mannaskiptaáætlunin fyrir atvinnulíf styrkir starfsmenn í atvinnulífinu og iðnaði til námsheimsókna og þjálfunar í öðru ríki, auk þess sem tækifæri gefst til eftirmenntunar og tengslmyndunar. Markmið áætlunarinnar er að styrkja og efla efnahagslegt samstarf, frumkvöðla, svæðisbundið samstarf og nýsköpunartækifæri. Áætlunin er til fimm ára, 2009 til 2013, henni er stjórnað af skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Lettlandi.
-
Nopef styrkir undirbúningsrannsóknir
-
Markmið sjóðsins er að styrkja og efla alþjóðlega samkeppnishæfni norrænna fyrirtækja með því að taka þátt í fjármögnun undirbúningskannana, sem stuðla að því að efla alþjóðavæðingu norrænna fyrirtækja. Nopef fjármagnar undirbúningsrannsóknir lítilla og meðalstórra norrænna fyrirtækja áður en þau hefja starfsemi í löndum utan ESB og EFTA.
-
Styrkir Norræna þróunarsjóðsins, NDF
-
NDF styrkir verkefni sem fjalla um loftslagsbreytingar í láglaunalöndum.
Styrkir NDF eru ætlaðir til að fjármagna verkefni sem fjalla um aðlögun og skilvirkar aðgerðir tengdar loftslagsbreytingum. NDF styrkir eru einkanlega veittir til að fjármagna tækniaðstoð, s.s. ráðgjafaþjónustu, til fjárfestinga í vörum, vinnu, þjónustu og til að koma til móts við annan kostnað sem tengist tækniaðstoð.
-
Norrænt Atlantshafssamstarf, NORA
-
NORA styrkir NORA-samstarfsverkefni, með þátttöku samstarfsaðila frá hið minnsta tveimur af fjórum NORA ríkjum (Grænlandi, Íslandi, Færeyjum og strandsvæðum Noregs). NORA á að stuðla að og auka samstarf á svæðinu með það að markmiði að gera Norður-Atlantshafsríkin að sterku norrænu svæði, sem einkennist af öflugri og sjálfbærri efnahagsþróun. Þetta er gert meðal annars með því að styrkja samstarfið milli fyrirtækja og rannsókna- og þróunarstofnana óháð landamærum.
-
Styrkir vinnuumhverfisnefndar Norrænu ráðherranefndarinnar
-
Vinnuumhverfisnefndin styrkir verkefni, sem miða að því að styrkja samstarf milli Norðurlandanna á vinnuumhverfissviðinu. Verkefni sem tengjast því hvernig bæta má andlegar, líkamlegar og félagslegar aðstæður á vinnustöðum, auka sjálfbæra nýtingu þeirra auðlinda sem felast í starfmanninum sjálfum, auka jafnrétti og jafnræði og þróa Norðurlöndin sem áhugavert og aðlaðandi starfssvæði.
-
Styrkir vinnuréttarnefndar Norrænu ráðherranefndarinnar
-
Styrkirnir eru einkum ætlaðir til að styðja við greiningarvinnu og námstefnuhald um pólitísk efni norrænt sjónarhorn sem eru á döfinni. Mikilvægasta viðmiðið fyrir styrki, er að verkefnin séu Norðurlöndunum og Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum til góðs og hafi þar með norrænt notagildi.
-
Styrkir vinnumarkaðsnefndar Norrænu ráðherranefndarinnar
-
Styrkir vinnumarkaðsnefndarinnar eru ætlaðir til norrænna verkefna sem fjalla um vinnumarkaðsmál. Verkefnin geta til að mynda falist í greiningarverkefnum, ráðstefnum eða þemafundum sem stuðla að því að styrkja samstarf milli Norðurlanda með það að markmiði að miðla þekkingu á sviði vinnumarkaðsmála. Verkefni sem fjármögnuð eru af vinnumarkaðsnefndinni skulu hafa norrænt markmið og vera unnin í samstarfi minnst þriggja Norðurlanda. Nefndin telur jákvætt ef Færeyjar, Grænland og Álandseyjar eru þátttakendur í verkefnunum.
-
Mannaskiptaáætlun Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna fyrir opinbera stjórnsýslu
-
Mannaskiptaáætlun Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna fyrir opinbera stjórnsýslu hefur árlega 270.000 evrur til úthlutunar. Styrkir eru veittir til embættismanna og annarra opinberra starfsmanna til námsheimsókna, starfsþjálfunar, þjálfunar og uppbyggingu tengslaneta á svæðinu. Styrkir eru háðir því að þrjú lönd hið minnsta taki þátt í verkefnunum, þar af minnst eitt Norðurland og eitt Eystrasaltsríki.
-
Styrkir Norrænu erfðaauðlindastofnunarinnar
-
Markmiðið með styrkjunum er að auka samstarf milli Norðurlandanna í gegnum framhaldsmenntun og miðlun reynslu jafnframt því að auka þekkingu þátttakenda á plöntuframleiðslu Mannaskipti þurfa ekki að vera gagnkvæm. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að atvinnurekandi leggi jafn mikið að mörkum og taki þátt í að greiða kostnað.
-
Verkefnastyrkir Nordic Innovation
-
Nordic Innovation fjármagnar norræn verkefni sem efla nýsköpun og samkeppnishæfni í atvinnulífinu og leiða til viðskipta, og eru með sjálfbæra þróun í huga.
-
Vestnorræni sjóðurinn
-
Vestnorræni sjóðurinn veitir lán til fjárfestinga í fyrirtækjum í Færeyjum og á Grænlandi og einnig til íslenskra fyrirtækja, svo framarlega að um sé að ræða samstarfsverkefni íslensks fyrirtækis og fyrirtækis annað hvort frá Færeyjum eða Grænlandi.
-
Letterstedtska félagið
-
Samkvæmt samþykktum er verkefni félagsins að stuðla að samkennd milli Norðurlandanna fimm hvað varðar iðnað, vísindi og listir. Félagið sér um að veita styrki til norrænna verkefna, gefur út Norrænt tímarit, veitir heiðursverðlaun Jacob Letterstedt auk þess að vinna að öðrum verkefnum.
