Document Actions

Menning og skapandi greinar

Styrkir sænsk-norska samstarfssjóðsins
Sænsk-norski samstarfssjóðurinn er tvíhliða, ríkisrekinn sjóður sem miðar að því að auka samstarfið milli Noregs og Svíþjóðar. Sjóðurinn á að auka gagnkvæma menningar- og upplýsingamiðlum um sænskar og norskar menningar- og samfélagsaðstæður. Sjóðurinn veitir þrjár tegundir styrkja: verkefnastyrki, listamannastyrki og dvalarstyrki. Einstaklingar, samtök og stofnanir geta sótt um styrkina.
Lista- og menningaráætlunin
Markmkiðið áætlunarinnar er að þróa og endurnýja norrænt lista- og menningarsamstarf. Í áætluninni er lögð mikil áhersla á miðlun og kynningu, jafnt til almennings og milli listamanna og þeirra sem láta sig menningu varða. Áætlunin skiptist í undiráætlanir: Áætlun um færniþróun, gagnrýni og þekkingarmiðlun og áætlun um framleiðslumiðaða starfsemi og kynningar. Jafnt stofnanir og einstaklingar geta sótt um styrki í áætlunina.
Norræna menningarsjóðurinn: verkefnastyrkir
Sjóðurinn vinnur á sviði lista- og menningar, bæði með atvinnu- og áhugamönnum. Sjóðurinn styrkir starfsemi sem uppfyllir kröfur um framsýni, aðgengi og fjölbreytni þar sem bæði hefðbundin og ný vinnuform fái þróast.
Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn
Norræni kvikmynda- og sjónvarssjóðurinn styrkir norræna gæða kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu.
Norræna tölvuleikjaáætlunin - Þróunarstyrkir
Markmiðið með Norrænu tölvuleikjaáætluninni er að tryggja árangursríkt skipulag fyrir þróendur, framleiðendur og dreifingaraðila tölvuleikja. Miðað er að því í áætluninni að samhæfa norrænar aðgerðir, tryggja upplýsingamiðlun og auka fagþekkingu. Norræn einkafyrirtæki geta sótt um styrki í áætlunina.
Nordplus styrkjaáætlanir
Nordplus styrkir verkefni, sem hafa það að markmiði: að stuðla að framgangi norrænna tungumála og menningar, og gagnkvæmum tungumála- og menningarskilningi milli Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Að styðja við þróun gæða og nýsköpunar í símenntun í þátttökulöndunum með menntasamstarfi, þróunarverkfenum, því að skiptast á reynslu og tengslanetum. Að efla, þróa, læra af og miðla nýsköpunarverkefnum og ferlum á menntasviðinu með því að skiptast á reynslu kerfisbundið, eða styrkja og þróa norræna menntasamstarfið og stuðla að þróun menntasamstarfs milli Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Umsækjendur verða að vera stofnanir og samtök, einstaklingar geta ekki sótt um styrkina.
Styrkir Vestnorræna ferðamálaráðsins
Markmkið Vestnorræna ferðamálaráðsins (NATA) er að auka skilvirkni í ferðamálasamstarfi Vestur-Norðurlandanna. Styrkja skal, samhæfa og tryggja framboð samvinnuverkefna aðildarlandanna á þeim sviðum ferðamála þar sem þau eiga einkum sameiginlegra hagsmuna að gæta. Tvö af löndunum þremur hið minnsta skulu taka þátt í verkefnum sem sótt er um styrki til.
Vestnorræni sjóðurinn
Vestnorræni sjóðurinn veitir lán til fjárfestinga í fyrirtækjum í Færeyjum og á Grænlandi og einnig til íslenskra fyrirtækja, svo framarlega að um sé að ræða samstarfsverkefni íslensks fyrirtækis og fyrirtækis annað hvort frá Færeyjum eða Grænlandi.
Dvöl norrænna listrannsakenda í Norrænu menningarmiðstöðinni Dalsåsen
Vísindamenn, sem vinna með sjónlist, þar með talið hönnun og arkitektúr, eiga þess kost að sækja um dvöl í Norrænu menningarmiðstöðinni Dalsåsen í Noregi. Einungis einstaklingar geta sótt um.
Letterstedtska félagið
Samkvæmt samþykktum er verkefni félagsins að stuðla að samkennd milli Norðurlandanna fimm hvað varðar iðnað, vísindi og listir. Félagið sér um að veita styrki til norrænna verkefna, gefur út Norrænt tímarit, veitir heiðursverðlaun Jacob Letterstedt auk þess að vinna að öðrum verkefnum.
Dvalir fyrir hópa í Norrænu menningarmiðstöðinni Dalåsen
Hópar, sem vinna að nýskapandi verkefnum innan sjónlistar og menningar, hönnun og arkitektúr, geta sótt um að dveljast í listamiðstöðinni. Einungis hópar geta sótt um.
Norrænir lýðháskólastyrkir
Styrkirnir eru ætlaðir til að efla áhuga á norrænum lýðháskólum og auka þekkingu á norrænum tungumálum og menningu. Danskir nemendur, þá einnig nemendur frá Færeyjum og Grænlandi, geta sótt um styrki til að dvelja á lýðháskólum í öðrum norrænum ríkjum, en lýðháskóladvöl í Danmörku er ekki styrkhæf.
Grænlandssjóður
Hlutverk Grænlandssjóðs er að stuðla að nánari samskiptum Íslendinga og Grænlendinga og veitir sjóðurinn styrki til kynnisferða, námsdvalar, listsýninga, íþróttasýninga og annarra málefna á sviði lista, vísinda og tæknimála. Höfuðstóll sjóðsins, sem ríkissjóður lagði til á árunum 1981 og 1982, er í vörslu Seðlabanka Íslands og er árlegri ávöxtun hans varið til styrkveitinga.
Listamannadvöl í Norrænu menningarmiðstöðinni Dalåsen
Myndlistamenn, hönnuðir og arkitektar geta sótt um listamannadvöl. Einungis einstaklingar geta sótt um.
Styrktasjóður A.P. Møller og eiginkonu hans Chastine Mc-Kinney Møller til almennra verkefna
Sjóðurinn styrkir samstarf og menningarstarf milli Danmerkur og annarra Norðurlanda. Jafnt stofnanir og einstaklingar geta sótt um styrki í sjóðinn.
Gestadvöl í Villa Bergshyddan í Stokkhólmi
Menningarstjórnin býður gestum að dvelja í Villa Bergshyddan í Stokkhólmi. Um er að ræða þriggja herbergja íbúð í uppgerðu 18. aldar húsi, dvöl í íbúðinni er ókeypis fyrir skapandi listamenn frá norrænu höfuðborgunum tímabilið 31. mars til 28. september 2008. Umsækjendur skulu vera starfandi innan menningargeirans og eiga lögheimili í einni af norrænu höfuðborgunum, annarri en Stokkhólmi.
NORDVULK (Norræna eldfjallastöðin): áætlun
Nordvulk beinir sjónum að ungum vísindamönnum. Árlega eru auglýstar fimm stöður fyrir unga vísindamenn á sviði eldfjallafræða, þar sem ungum norrænum þegnum gefst kostur á að koma til Íslands búa þar og starfa.
Styrkjaáætlun Norræna sumarháskólans
Norræni sumarháskólinn styrkir náms- og rannsóknaverkefni. Verkefnisstyrkir eru fyrst og fremst ætlaðir til að styðja við verkefni sem unnin eru af þátttakendum sem árlega halda vetrarnámskeið, standa fyrir sumarnámskeiðum og sjá um útgáfu fyrir sumarháskólann. Verkefnin verða að vera norræn.
Styrkir til norrænna verkefna á sviði menningar, tungumála og menntunar
Samstarfsnefnd um fræðslu um Norðurlönd erlendis hefur það að markmiði að efla kennslu í norrænum tungumálum og menningu við erlenda háskóla.