- Info
Menntun og rannsóknir
-
Styrkir til lýðháskóladvalar á Norðurlöndum fyrir Íslendinga
-
Norræna félagið á Íslandi, fyrir hönd Norrænu ráðherranefndarinnar, veitir Íslendingum styrki til lýðháskóladvalar í öðru norrænu ríki. Einstaklingar geta sótt um styrkina.
-
Styrkir sænsk-norska samstarfssjóðsins
-
Sænsk-norski samstarfssjóðurinn er tvíhliða, ríkisrekinn sjóður sem miðar að því að auka samstarfið milli Noregs og Svíþjóðar. Sjóðurinn á að auka gagnkvæma menningar- og upplýsingamiðlum um sænskar og norskar menningar- og samfélagsaðstæður. Sjóðurinn veitir þrjár tegundir styrkja: verkefnastyrki, listamannastyrki og dvalarstyrki. Einstaklingar, samtök og stofnanir geta sótt um styrkina.
-
Námsferðastyrkur dansk-færeyska félagsins
-
Námsferðastyrkir dansk-færeyska félagsins eru auglýstir í Danmörku og Færeyjum einu sinni á ári.
Styrkirnir eru tveir, 10.000 danskra krónur hvor. Annar styrkurinn er ætlaður til námsferðar til Færeyja og hinn til námsferðar til Danmerkur, fyrir einstaklinga á aldrinum 18 til 30 ára. Markmið námsferðarinnar verður að vera í samræmi við markmið Dansk-færeyska menningarsjóðins.
-
Norrænt Atlantshafssamstarf, NORA
-
NORA styrkir NORA-samstarfsverkefni, með þátttöku samstarfsaðila frá hið minnsta tveimur af fjórum NORA ríkjum (Grænlandi, Íslandi, Færeyjum og strandsvæðum Noregs). NORA á að stuðla að og auka samstarf á svæðinu með það að markmiði að gera Norður-Atlantshafsríkin að sterku norrænu svæði, sem einkennist af öflugri og sjálfbærri efnahagsþróun. Þetta er gert meðal annars með því að styrkja samstarfið milli fyrirtækja og rannsókna- og þróunarstofnana óháð landamærum.
-
Lista- og menningaráætlunin
-
Markmkiðið áætlunarinnar er að þróa og endurnýja norrænt lista- og menningarsamstarf. Í áætluninni er lögð mikil áhersla á miðlun og kynningu, jafnt til almennings og milli listamanna og þeirra sem láta sig menningu varða. Áætlunin skiptist í undiráætlanir: Áætlun um færniþróun, gagnrýni og þekkingarmiðlun og áætlun um framleiðslumiðaða starfsemi og kynningar. Jafnt stofnanir og einstaklingar geta sótt um styrki í áætlunina.
-
Verkefnastyrkir frá Norræna samstarfsvettvanginum um landbúnaðar- og matvælarannsóknir
-
Norræni samstarfsvettvangurinn um landbúnaðarrannsóknir setur af stað og fjármagnar norræn gæðarannsóknarverkefni á sviði landbúnaðar. Tekið er á móti umsóknum um verkefnisstyrki sem tengjast rannsóknavirkni svo sem til námstefna og tengslanetamyndunar. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að þátttakendur í verkefnum séu frá þremur norrænu ríkjunum hið minnsta.
-
Støtte under arbejdsgruppen for Mikrobiologi, Dyrehelse og Dyrevelfærd (NMDD)
-
Søg støtte under arbejdsgruppen for Mikrobiologi, Dyrehelse og Dyrevelfærd (NMDD)
-
Styrkjaáætlun Samnorrænna skógarannsókna
-
Samnorrænu skógarannsóknirnar styrka rannsóknir á skógrækt og nýtingu, skógum og öðrum trávaxtarsvæðum, nýtinu framleiðslu úr tré og öðrum framleiðsluvörum úr skógum og einnig eru styrktar rannsóknir á gildi skóga almennt. Sjóðurinn styrkir samstarf sem felur í sér þátttöku þriggja norrænna ríkja hið minnsta. Lönd á grannsvæðum Norðurlandanna geta einnig tekið þátt í samstarfinu, en þátttakendur verða samt sem áður að vera frá þremur norrænum ríkjum hið minnsta.
-
Norrænt-rússneskt samstarf um menntun og rannsóknir
-
Norræna-rússneska áætlunin veitir styrki til samstarfs og myndunar tengslaneta milli norrænna og norðvestur-rússneskra menntastofnana.. Enn er verið að semja um fyrirkomulag áætlunarinnar milli Norrænu ráðherranefndarinnar og rússneskra stjórnvalda, en auglýst hefur verið eftir umsóknum um undirbúningsstyrki. Samtals eru 2.9 milljónir danskra króna til úthlutunar, umsóknarfrestur rann út 15. desember 2009.
-
Nordplus styrkjaáætlanir
-
Nordplus styrkir verkefni, sem hafa það að markmiði: að stuðla að framgangi norrænna tungumála og menningar, og gagnkvæmum tungumála- og menningarskilningi milli Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Að styðja við þróun gæða og nýsköpunar í símenntun í þátttökulöndunum með menntasamstarfi, þróunarverkfenum, því að skiptast á reynslu og tengslanetum. Að efla, þróa, læra af og miðla nýsköpunarverkefnum og ferlum á menntasviðinu með því að skiptast á reynslu kerfisbundið, eða styrkja og þróa norræna menntasamstarfið og stuðla að þróun menntasamstarfs milli Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Umsækjendur verða að vera stofnanir og samtök, einstaklingar geta ekki sótt um styrkina.
-
Styrkir Vestnorræna ferðamálaráðsins
-
Markmkið Vestnorræna ferðamálaráðsins (NATA) er að auka skilvirkni í ferðamálasamstarfi Vestur-Norðurlandanna. Styrkja skal, samhæfa og tryggja framboð samvinnuverkefna aðildarlandanna á þeim sviðum ferðamála þar sem þau eiga einkum sameiginlegra hagsmuna að gæta. Tvö af löndunum þremur hið minnsta skulu taka þátt í verkefnum sem sótt er um styrki til.
-
Dvöl norrænna listrannsakenda í Norrænu menningarmiðstöðinni Dalsåsen
-
Vísindamenn, sem vinna með sjónlist, þar með talið hönnun og arkitektúr, eiga þess kost að sækja um dvöl í Norrænu menningarmiðstöðinni Dalsåsen í Noregi. Einungis einstaklingar geta sótt um.
-
Letterstedtska félagið
-
Samkvæmt samþykktum er verkefni félagsins að stuðla að samkennd milli Norðurlandanna fimm hvað varðar iðnað, vísindi og listir. Félagið sér um að veita styrki til norrænna verkefna, gefur út Norrænt tímarit, veitir heiðursverðlaun Jacob Letterstedt auk þess að vinna að öðrum verkefnum.
-
Styrkir Norrænu stofnunarinnar um áfengis- og vímuefnarannsóknir
-
Norræna stofnunin um áfengis- og vímuefnarannsóknir styrkir norrænar sambanburðarrannsóknir á áfengis- og vímuefnasviðinu, svo framarlega sem rannsóknirnar hafa samfélagslega tengingu. Minnst tvö norræn ríki þurfa að taka þátt í hverju rannsóknaverkefni. Jafnt stofnanir og einstaklingar geta sótt um styrki í sjóðinn.
-
Norrænir lýðháskólastyrkir
-
Styrkirnir eru ætlaðir til að efla áhuga á norrænum lýðháskólum og auka þekkingu á norrænum tungumálum og menningu. Danskir nemendur, þá einnig nemendur frá Færeyjum og Grænlandi, geta sótt um styrki til að dvelja á lýðháskólum í öðrum norrænum ríkjum, en lýðháskóladvöl í Danmörku er ekki styrkhæf.
-
Styrkir til íslenskra námsmanna við æðri menntastofnanir í Danmörku
-
A.P. Møllers sjóðurinn fyrir íslenska námsmenn styrkir íslenska námsmenn til náms við æðri menntastofnanir í Danmörku. Fulltrúi félagsins Dansk-Islandsk Samfund situr í sjóðstjórn, en félagið sér um að taka við umsóknum. Einstaklingar geta sótt um styrkina.
-
Styrkir norrænu afríkustofnunarinnar fyrir doktorsnema
-
Styrkir til doktorsnema felast í þriggja mánaða dvöl á bókasafni stofnunarinnar. Styrkurinn dugar fyrir ferðakostnaði til og frá Uppsölum í Svíþjóð og uppihaldi á meðan á dvöl stendur. Auk þess fá styrkþegar lágmarksstyrk, til að koma á móts við kostnað vegna dvalarinnar. Einstaklingar geta sótt um styrkinn.
-
Styrkjaáætlun: Lærið um Afríku í Uppsölum
-
Námsstyrkirnir felast í eins mánaðar dvöl á bókasafni stofnunarinnar. Auk þess kostnaðar við húsnæði og uppihald og ferðina til og frá Uppsölum. Auk þess fá styrkþegar lágmarksstyrk, til að koma á móts við kostnað vegna dvalarinnar. Einstaklingar geta sótt um styrkinn.
-
Styrkjaáætlun: Vettvangsstarf í Afríku
-
Þessi styrkjaáætlun veitir styrki til vettvangsstarfs í Afríku. Árlega eru veittir styrkir til 30-40 stúdenta eða vísindamanna við norræna háskóla. Einstaklingar geta sótt um styrkinn.
-
Grænlandssjóður
-
Hlutverk Grænlandssjóðs er að stuðla að nánari samskiptum Íslendinga og Grænlendinga og veitir sjóðurinn styrki til kynnisferða, námsdvalar, listsýninga, íþróttasýninga og annarra málefna á sviði lista, vísinda og tæknimála. Höfuðstóll sjóðsins, sem ríkissjóður lagði til á árunum 1981 og 1982, er í vörslu Seðlabanka Íslands og er árlegri ávöxtun hans varið til styrkveitinga.
