- Info
Orkumál, samgöngur og byggðastefna
-
Langtíma lán frá Norræna fjárfestingabankanum (NIB)
-
NIB veitir viðbótarlán til lengri tíma til verkefna, sem stuðla að samkeppnisæfni og umhverfisvernd í samræmi við markmið NIB. NIB býður viðskiptavinum sínum, jafnt einkaaðilum og opinberum, sérsniðin lán og ábyrgðir á samkeppnishæfum kjörum.
-
Styrkir Norrænu ráðherranefndarinnar úr áætlun um sjálfbæra þróun á Norðurlöndunum 2009-2012
-
Norræna ráðherranefndin hefur veitt styrki til verkefna sem stuðla að framkvæmd norrænnar stefnu um sjálfbæra þróun á sviði; loftslagsmála og endurnýjanlegra orkugjafa; sjálfbærrar framleiðslu og neyslu; velferðarþjóðfélagsins; auk menntunar og rannsókna, þátttöku borgaranna og staðbundinnar sjálfbærnistefnu. Ekki verður auglýst eftur umsóknum um styrki á árinu 2012.
-
Styrkir Norrænna orkurannsókna
-
Norrænar orkurannsóknir (NER) styrkja rannsóknir á sviði orkumála sem varða öll norrænu ríkin og geta eflt fjölþjóðlegt rannsóknasamstarf.
-
Styrkir Norræna þróunarsjóðsins, NDF
-
NDF styrkir verkefni sem fjalla um loftslagsbreytingar í láglaunalöndum.
Styrkir NDF eru ætlaðir til að fjármagna verkefni sem fjalla um aðlögun og skilvirkar aðgerðir tengdar loftslagsbreytingum. NDF styrkir eru einkanlega veittir til að fjármagna tækniaðstoð, s.s. ráðgjafaþjónustu, til fjárfestinga í vörum, vinnu, þjónustu og til að koma til móts við annan kostnað sem tengist tækniaðstoð.
-
Norrænt Atlantshafssamstarf, NORA
-
NORA styrkir NORA-samstarfsverkefni, með þátttöku samstarfsaðila frá hið minnsta tveimur af fjórum NORA ríkjum (Grænlandi, Íslandi, Færeyjum og strandsvæðum Noregs). NORA á að stuðla að og auka samstarf á svæðinu með það að markmiði að gera Norður-Atlantshafsríkin að sterku norrænu svæði, sem einkennist af öflugri og sjálfbærri efnahagsþróun. Þetta er gert meðal annars með því að styrkja samstarfið milli fyrirtækja og rannsókna- og þróunarstofnana óháð landamærum.
-
Fjármögnunarstyrkir frá NEFCO
-
NEFCO er alþjóðleg fjármálastofnun, sem sett var á stofn af norrænu ríkjunum. NEFCO fjármagnar aðallega fjárfestingar og verkefni í Rússlandi, Úkraínu, Eistlandi, Lettlandi, Litháen og Hvíta-Rússlandi. NEFCO fjármagnar verkefni og fjárfestingar sem hafa í för með sér jákvæð umhverfisáhrif og eru áhugaverð fyrir Norðurlönd.
-
Vestnorræni sjóðurinn
-
Vestnorræni sjóðurinn veitir lán til fjárfestinga í fyrirtækjum í Færeyjum og á Grænlandi og einnig til íslenskra fyrirtækja, svo framarlega að um sé að ræða samstarfsverkefni íslensks fyrirtækis og fyrirtækis annað hvort frá Færeyjum eða Grænlandi.
-
Norræn jaðarsvæði
-
Áætlunin er skipulögð til þess að takast á við þau sérstöku úrlausnarefni sem norræn jaðarsvæði þufa að takast á við, eins og t.d. dreifða byggð á landsbyggðinni. Nýsköpun, umhverfismál, aðgengi og tenging milli dreifbýlis og þéttbýlis eru forgangsmál. NPP 2007-2013 er sérstaklega ætlað að leggja áherslu á fjölþjóðlegt samstaf um þróun nýrra, nýstárlegra vara og þjónustu. Verkefnin skulu, með miðlun reynslu og uppbyggingu tengslaneta, hafa í för með sér raunverulegar niðurstöður sem skapa virðisauka á þeim svæðum sem taka þátt.
-
Kolarctic ENPI CBC
-
Í áætluninni er lögð megináhersla á þrjú svið; efnahags- og félagslega þróun, sameiginleg viðfangsefni og landamærasamstarf og samstarf alþýðu og uppbyggingu sjálfsmyndar. Á öllum sviðunum er sérstök áhersala viðfangsefni sem beina sjónum að konum og ungmennum.
-
Kattegat-Skagerrak
-
Áherslusvið áætlunarinnar eru þrjú:
* Að efla sjálfbæran efnahagsvöxt * Að tengja svæðið saman * Að efla samþættingu almennt
-
Interreg - Norðurslóðaáætlunin
-
ESB áætlunin Interreg Svíþjóð-Noregur fellur undir nýjar áherslur "svæðisbundið samstarf" þar sem markmiðið er að efla samstarf yfir landamæri innan ESB og í tilteknum löndum. Byggt verður á fyrri samstarfsverkefnum sem unnin hafa verið innan Norðurslóðaáætlunarinnar. Um er að ræða þrjár tegundir svæðasamstarfs: samstarf þvert á landamæri, alþjóðleg samstarf og samstarf innan svæða. Interreg Svíþjóð - Noregur er samstarf þvert á landamæri. Markmiðið með áætluninni er að styrkja og efla nýskapandi verkefni, þekkingu og samkeppnishæfni í atvinnulífi, tækni og samfélagsþróun. Efla á efnahagsvöxt með því að auka áherslu á innviði og með því að ryðja úr vegi stjórnsýsluhindrunum. Efla á lífsumhverfið með því að skapa svæði þar sem fólk vill búa og starfa.
-
Eystrasaltsáætlunin
-
Eystrasaltsáætlunin (The Baltic Sea Region Programme 2007-2013) er ein af mikilvægum áætlunum ESB um svæðasamstarf. Fjárhagsáætlun áætlunarinnar er 236,6 milljónir evra og er hún styrkt af þróunarsjóði ESB, grannsvæðaáætlun ESB (European Neighbourhood and Partnership Instrument - ENPI) og norska ríkinu. Þar að auki kemur fjármagn frá svæðunum.
-
Botnia-Atlantica
-
Áherslusvið eru sex: menntun, rannsóknir, tækniþróun, ferðaþjónusta og atvinnulíf, samfélagsþjónusta, náttúru- og menningarumhverfi sem auðlindir, samskipti og samstarf yfir landamæri (orka, menning, samstarf milli borga og þorpa).
-
Svíþjóð-Noregur: Samstarf án landamæra
-
Meginmarkmið áætlunarinnar er að auka aðdráttaafl og samkeppnishæfni svæðisins með samstarfi þvert á landamæri. Áætlunin leggu áherslu á þrjú svið; hagvöxt, aðlaðandi lífsumhverfi og tæknilega aðstoð. Fyrri tvö sviðin sjá um utanaðkomandi verkefnavinnu en það þriðja sér um fjármögnun á umsjón og framkvæmd áætlunarinnar.
-
Norðursjávaráætlunin
-
Norðursjávaráætlunin vinnur með nýjustu aðferðir á sviði byggðaþróunar í fjölþjóðlegum verkefnum. Meginmarkmið áætlunarinnar er að víkka ramma svæðasamstarfs og leggja áherslu á öflug gæðaverkefni á sviði nýsköpunar, umhverfismála, aðgengi, og sjálfbærra og samkeppnishæfra byggða. Áætlunin hefur fengið 140 milljónir evra frá ESB. Að auki koma 9,6 milljónir evra frá norskum samstarfsaðilum.
-
INTERREG IV A Nord
-
Í áætluninni er lögð áhersla á þrjú meginsvið; þróun atvinnulífs, rannsóknir og þróun og menntun ásamt virkni og ímynd byggða. Í Noregi taka þrjú nyrstu héruðin Finnmörk, Troms og Nordland þátt í áætluninni, í Svíþjóð tekur Norrbotten þátt og í Finnlandi Lappland.
-
Svíþjóð-Noregur: Innri Skandínavía
-
Meginmarkmið áætlunarinnar er að auka aðdráttaafl og samkeppnishæfni svæðisins með samstarfi þvert á landamæri. Áætlunin leggu áherslu á þrjú svið; hagvöxt, aðlaðandi lífsumhverfi og tæknilega aðstoð. Fyrri tvö sviðin sjá um utanaðkomandi verkefnavinnu en það þriðja sér um fjármögnun á umsjón og framkvæmd áætlunarinnar.
-
Norður: Sàpmi
-
Markmið áætlunarinnar er að árið 2013 skuli samíska svæðið hafa eflt menningar- og atvinnulífið, með því að skapa forsendur fyrir breiðara og skipulagðra samstarfi á sviði atvinnulífs, með áherslu á sameiginlegar lausnir til þess að hægt verði að þróa það sem er einstakt fyrir samíska menningu.
