- Info
Umhverfi og náttúra
-
Styrkir frá vinnuhóp um lifandi auðlindir jarðar
-
Vinnuhópur um lifandi auðlindir jarðar (TEG) er vinnuhópur á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar um umhverfismál. Vinnuhópurinn fjármagnar norræn verkefni á sínu sviði og eru verkefnin skilgreind árlega.
Meginmarkmið með setningu vinnuhópsins er að sjá til þess að farið sé með náttúruna á sjálfbæran hátt með það að markmiði að vernda náttúruna og menningarlandslag, þannig að vistkerfi jarðar verði við haldið. Vinnuhópurinn hefur breiðan starfsgrundvöll sem nær til verndunar og sjálfbærrar nýtingar á náttúrunni, liffræðilegs fjölbreytileika, landslags, menningarverðmæta, menningarumhverfis og útivistar. Starfið nær einnig til tengslanna á milli loftslagsbreytinga og líffræðilegs fjölbreytileika, landslags og menningarumhverfis.
-
Langtíma lán frá Norræna fjárfestingabankanum (NIB)
-
NIB veitir viðbótarlán til lengri tíma til verkefna, sem stuðla að samkeppnisæfni og umhverfisvernd í samræmi við markmið NIB. NIB býður viðskiptavinum sínum, jafnt einkaaðilum og opinberum, sérsniðin lán og ábyrgðir á samkeppnishæfum kjörum.
-
Styrkir sænsk-norska samstarfssjóðsins
-
Sænsk-norski samstarfssjóðurinn er tvíhliða, ríkisrekinn sjóður sem miðar að því að auka samstarfið milli Noregs og Svíþjóðar. Sjóðurinn á að auka gagnkvæma menningar- og upplýsingamiðlum um sænskar og norskar menningar- og samfélagsaðstæður. Sjóðurinn veitir þrjár tegundir styrkja: verkefnastyrki, listamannastyrki og dvalarstyrki. Einstaklingar, samtök og stofnanir geta sótt um styrkina.
-
Styrkir Norrænu ráðherranefndarinnar úr áætlun um sjálfbæra þróun á Norðurlöndunum 2009-2012
-
Norræna ráðherranefndin hefur veitt styrki til verkefna sem stuðla að framkvæmd norrænnar stefnu um sjálfbæra þróun á sviði; loftslagsmála og endurnýjanlegra orkugjafa; sjálfbærrar framleiðslu og neyslu; velferðarþjóðfélagsins; auk menntunar og rannsókna, þátttöku borgaranna og staðbundinnar sjálfbærnistefnu. Ekki verður auglýst eftur umsóknum um styrki á árinu 2012.
-
Styrkir vinnuhóps um vistkerfi vatnabúskapar
-
Vinnuhópur um vistkerfi vatnabúskapar (AEG), er vinnuhópur sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina um umhverfismál. Vinnuhópurinn fjármagnar verkefni á sínu fagsviði í samræmi við forgangsröðun ársins.
Markmið vinnuhóps um vistkerfi vatnabúskapar er að styrkja Norðurlöndin með verkefnum, sem stuðla að uppbyggingu vísindaefnis jafnframt því að stuðla að því að koma í veg fyrir mengun á norrænum haf- og strandsvæðum.
-
Styrkir Norrænna orkurannsókna
-
Norrænar orkurannsóknir (NER) styrkja rannsóknir á sviði orkumála sem varða öll norrænu ríkin og geta eflt fjölþjóðlegt rannsóknasamstarf.
-
Styrkir á vegum norræna úrgangshópsins.
-
Norræni úrgangshópurinn er vinnuhópur um umhverfismál sem starfar á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Vinnuhópurinn fjármagnar verkefni á sínu fagsviði í samræmi við forgangsröðun ársins.
Hópurinn vinnur að sjálfbærri meðferð úrgangs á Norðurlöndum og í Evrópu. Meginmarkmiðið er að lágmarka umhverfisáhrif úrgangs í samræmi við vistferilssjónarmið.
-
Styrkir loftslags- og lofthópsins
-
Loftslags- og lofthópurinn (KoL) er vinnuhópur sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina um umhverfismál. Vinnuhópurinn fjármagnar verkefni á sínu fagsviði í samræmi við forgangsröðun ársins.
Loftslags- og lofthópurinn styrkir verkefni sem falla að norrænum markmiðum um að fyrirbyggja alvarlegar loftslagsbreytingar og koma í veg fyrir að loftmengun skaði ekki umhverfið og heilsu fólks.
-
Nopef styrkir undirbúningsrannsóknir
-
Markmið sjóðsins er að styrkja og efla alþjóðlega samkeppnishæfni norrænna fyrirtækja með því að taka þátt í fjármögnun undirbúningskannana, sem stuðla að því að efla alþjóðavæðingu norrænna fyrirtækja. Nopef fjármagnar undirbúningsrannsóknir lítilla og meðalstórra norrænna fyrirtækja áður en þau hefja starfsemi í löndum utan ESB og EFTA.
-
Styrkir Norræna þróunarsjóðsins, NDF
-
NDF styrkir verkefni sem fjalla um loftslagsbreytingar í láglaunalöndum.
Styrkir NDF eru ætlaðir til að fjármagna verkefni sem fjalla um aðlögun og skilvirkar aðgerðir tengdar loftslagsbreytingum. NDF styrkir eru einkanlega veittir til að fjármagna tækniaðstoð, s.s. ráðgjafaþjónustu, til fjárfestinga í vörum, vinnu, þjónustu og til að koma til móts við annan kostnað sem tengist tækniaðstoð.
-
Norrænt Atlantshafssamstarf, NORA
-
NORA styrkir NORA-samstarfsverkefni, með þátttöku samstarfsaðila frá hið minnsta tveimur af fjórum NORA ríkjum (Grænlandi, Íslandi, Færeyjum og strandsvæðum Noregs). NORA á að stuðla að og auka samstarf á svæðinu með það að markmiði að gera Norður-Atlantshafsríkin að sterku norrænu svæði, sem einkennist af öflugri og sjálfbærri efnahagsþróun. Þetta er gert meðal annars með því að styrkja samstarfið milli fyrirtækja og rannsókna- og þróunarstofnana óháð landamærum.
-
Styrkir vinnuhóps um sjálfbæra neyslu og framleiðslu
-
Vinnuhópur um sjálfbæra neyslu og framleiðslu (HKP) er vinnuhópur sem heyrir undir Norrænu ráðráðherranefndina um umhverfismál. Vinnuhópurinn fjármagnar verkefni á sínu fagsviði í samræmi við forgangsröðun ársins.
Vinnuhópurinn er þverfaglegur samstarfsvettvangur umhverfis-, atvinnu- og neytendageiranna. Meginmarkmiðið er að neysla og framleiðsla fari fram á þann hátt að það bæti umhverfis- og heilbrigðisástand, samhliða því að nýting auðlinda sé skilvirk og sjálfbær.
-
Styrkir umhverfis- og efnahagshóps Norrænu ráðherranefndarinnar
-
Umhverfis- og efnahagshópur Norrænu ráðherranefndarinnar (MEG) er þverfaglegur hópur sem starfar í umboði umhverfis- og efnahagssviðs Norrænu ráðherranefndarinnar. Vinnuhópurinn fjármagnar verkefni á sínu fagsviði í samræmi við forgangsröðun ársins.
Meginmarkmið hópsins er að stuðla að efnahagsþróun sem byggir á sjálfbærum framleiðslu- og neyslumynstrum.
-
Styrkir frá norræna efnavöruhópnum
-
Norræni efnavöruhópurinn (NGK) er vinnuhópur á vegum Norrænu ráðheranefndarinnar um umhverfismál. Vinnuhópurinn fjármagnar verkefni á sínu fagsviði í samræmi við forgangsröðun ársins. Meginmarkmið hópsins er að lágmarka neikvæð heilbrigðis- og umhverfisáhrif hættulegra efna í vörum, losun og úrgangi.
-
Fjármögnunarstyrkir frá NEFCO
-
NEFCO er alþjóðleg fjármálastofnun, sem sett var á stofn af norrænu ríkjunum. NEFCO fjármagnar aðallega fjárfestingar og verkefni í Rússlandi, Úkraínu, Eistlandi, Lettlandi, Litháen og Hvíta-Rússlandi. NEFCO fjármagnar verkefni og fjárfestingar sem hafa í för með sér jákvæð umhverfisáhrif og eru áhugaverð fyrir Norðurlönd.
-
Verkefnastyrkir frá Norræna samstarfsvettvanginum um landbúnaðar- og matvælarannsóknir
-
Norræni samstarfsvettvangurinn um landbúnaðarrannsóknir setur af stað og fjármagnar norræn gæðarannsóknarverkefni á sviði landbúnaðar. Tekið er á móti umsóknum um verkefnisstyrki sem tengjast rannsóknavirkni svo sem til námstefna og tengslanetamyndunar. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að þátttakendur í verkefnum séu frá þremur norrænu ríkjunum hið minnsta.
-
Styrkjaáætlun Samnorrænna skógarannsókna
-
Samnorrænu skógarannsóknirnar styrka rannsóknir á skógrækt og nýtingu, skógum og öðrum trávaxtarsvæðum, nýtinu framleiðslu úr tré og öðrum framleiðsluvörum úr skógum og einnig eru styrktar rannsóknir á gildi skóga almennt. Sjóðurinn styrkir samstarf sem felur í sér þátttöku þriggja norrænna ríkja hið minnsta. Lönd á grannsvæðum Norðurlandanna geta einnig tekið þátt í samstarfinu, en þátttakendur verða samt sem áður að vera frá þremur norrænum ríkjum hið minnsta.
-
Sækja um styrk til Samstarfsáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar um norðurskautssvæðin
-
Samstarfsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar um norðurskautssvæðin úthlutar árlega um 8 milljónum danskra króna. Sækja má um styrki til Samstarfsáætlunar um norðurskautssvæðin til verkefna sem unnin eru á Norðuskautssvæðinu.
-
Styrkir Norrænu erfðaauðlindastofnunarinnar
-
Markmiðið með styrkjunum er að auka samstarf milli Norðurlandanna í gegnum framhaldsmenntun og miðlun reynslu jafnframt því að auka þekkingu þátttakenda á plöntuframleiðslu Mannaskipti þurfa ekki að vera gagnkvæm. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að atvinnurekandi leggi jafn mikið að mörkum og taki þátt í að greiða kostnað.
-
Styrkir Vestnorræna ferðamálaráðsins
-
Markmkið Vestnorræna ferðamálaráðsins (NATA) er að auka skilvirkni í ferðamálasamstarfi Vestur-Norðurlandanna. Styrkja skal, samhæfa og tryggja framboð samvinnuverkefna aðildarlandanna á þeim sviðum ferðamála þar sem þau eiga einkum sameiginlegra hagsmuna að gæta. Tvö af löndunum þremur hið minnsta skulu taka þátt í verkefnum sem sótt er um styrki til.
