Document Actions

Upplýsinga- og fjarskiptatækni

Langtíma lán frá Norræna fjárfestingabankanum (NIB)
NIB veitir viðbótarlán til lengri tíma til verkefna, sem stuðla að samkeppnisæfni og umhverfisvernd í samræmi við markmið NIB. NIB býður viðskiptavinum sínum, jafnt einkaaðilum og opinberum, sérsniðin lán og ábyrgðir á samkeppnishæfum kjörum.
Norrænt Atlantshafssamstarf, NORA
NORA styrkir NORA-samstarfsverkefni, með þátttöku samstarfsaðila frá hið minnsta tveimur af fjórum NORA ríkjum (Grænlandi, Íslandi, Færeyjum og strandsvæðum Noregs). NORA á að stuðla að og auka samstarf á svæðinu með það að markmiði að gera Norður-Atlantshafsríkin að sterku norrænu svæði, sem einkennist af öflugri og sjálfbærri efnahagsþróun. Þetta er gert meðal annars með því að styrkja samstarfið milli fyrirtækja og rannsókna- og þróunarstofnana óháð landamærum.
Blaðamannastyrkir Norðurlandaráðs
Styrkirnir eru ætlaðir til að veita blaðamönnum tækifæri til að afla sér þekkingu um Norðurlöndin og norrænt samstarf. Umsækjendur geta verið sjálfstætt starfandi blaðamenn og blaðamenn í föstu starfi hjá dagblöðum, tímaritum, útvarpi og sjónvarpi.
Norræna tölvuleikjaáætlunin - Þróunarstyrkir
Markmiðið með Norrænu tölvuleikjaáætluninni er að tryggja árangursríkt skipulag fyrir þróendur, framleiðendur og dreifingaraðila tölvuleikja. Miðað er að því í áætluninni að samhæfa norrænar aðgerðir, tryggja upplýsingamiðlun og auka fagþekkingu. Norræn einkafyrirtæki geta sótt um styrki í áætlunina.
Grænlandssjóður
Hlutverk Grænlandssjóðs er að stuðla að nánari samskiptum Íslendinga og Grænlendinga og veitir sjóðurinn styrki til kynnisferða, námsdvalar, listsýninga, íþróttasýninga og annarra málefna á sviði lista, vísinda og tæknimála. Höfuðstóll sjóðsins, sem ríkissjóður lagði til á árunum 1981 og 1982, er í vörslu Seðlabanka Íslands og er árlegri ávöxtun hans varið til styrkveitinga.